Skessuhorn - 27.01.2016, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 20166
Hjónin Ingi Hans Jónsson og Sigur-
borg Kr. Hannesdóttir eiga og reka
gistihúsið Bjarg Apartments í Grund-
arfirði. Eftir að hafa gert húsið upp
var gistiheimilið opnað snemma á síð-
asta ári. Það hefur fengið lofsamlega
dóma gesta og er nú með fullt hús
stiga, 10,0 í einkunn samkvæmt um-
sögnum 24 síðustu dvalargesta á bók-
unarvefnum Booking.com. Margir
gististaðir um vestanvert landið hafa
verið að skora hátt í umsögnum gesta
bókunarvefjarins, en þessi einkunn
hefur hvergi sést upp nýverið, enda
fátíð. Á vefnum booking.com má lesa
umsagnir gesta sem dásama aðbúnað,
notalegt húsnæði, ægifagurt útsýni,
frítt þráðlaust net og sitthvað fleira.
Vegna þessa árangurs segist Ingi
Hans vera afskaplega stoltur fyrir
hönd þeirra hjóna af þeim umsögn-
um sem gistihúsið hefur verið að
fá. „Margir spyrja hvernig gerið þið
þetta? Eða hvernig er þetta hægt? Hér
er náttúrulega sambland af heppni og
færni. Það eru nokkrir þættir sem
gestirnir vega þegar kemur að því að
gefa einkunn. Á nokkra þeirra get-
ur maður haft talsverð áhrif eins og
t.d. hreinlæti, starfsfólk og frítt WiFi.
Aðrir þættir eru mun matskennd-
ari svo sem staðsetning, þægindi, að-
búnaður og hversu mikið gestir telja
sig fá fyrir peninginn. Helst er hægt
að hafa áhrif á þessa þætti með því
að lofa ekki meiru en staðið er við og
að gestir hafi sem bestar upplýsingar
um hvað þeir eru að kaupa. En hvort
rúmið er of mjúkt eða of hart metur
sá einn sem í því liggur hverju sinni,“
segir Ingi Hans.
mm
Íkveikja til
rannsóknar
AKRANES: Eldur var lagður að
blaðabunka innandyra í stigagangi
íbúðarhúss á Akranesi um liðna
helgi. Ekki er vitað hver þarna
var að verki en viðkomandi hef-
ur líklegast þurft lykil til að kom-
ast inn í húsið sem talið var hafa
verið læst. Íbúi í húsinu rumsk-
aði við umgang um miðja nótt og
heyrði síðan í reykskynjara sem
fór í gang. Rauk hann þá af stað, sá
eld í stigaganginum, náði í hand-
slökkvitæki og tókst að slökkva
með því, áður en eldurinn náði
að breiðast út um húsið. Nokkurt
tjón hlaust af þessari íkveikju en
þó minna en á horfðist. Málið er
til meðferðar hjá rannsóknadeild
Lögreglunnar á Vesturlandi.
Lokahnykkur í
söfnun fyrir
björgunarbát
REYKHÓLAR: Björgunarsveit-
in Heimamenn í Reykhólahreppi
hefur um skeið safnað fé til kaupa
á nýjum og hraðskreiðum björg-
unarbáti. Reykhólavefurinn upp-
lýsir að nú sé búið að safna liðlega
sjö af þeim tíu milljónum króna
sem þarf til að festa kaup á bátn-
um. Þar af koma þrjár frá björg-
unarsveitinni, tvær frá Reykhóla-
hreppi og tvær frá Þörungaverk-
smiðjunni. Nú síðast lét Kven-
félagið Katla ágóða sinn af veit-
ingasölu á jólamarkaðinum í
Króksfjarðarnesi renna í sjóð-
inn til kaupa á bátnum. Nýi bát-
urinn þykir kostagripur. Hann er
slöngubátur af gerðinni Atlantic
75 og búinn öllum helstu tækj-
um sem kröfur eru gerðar um
til slíkra báta. Í honum er meðal
annars sjódæla sem nota má til að
slökkva elda eða dæla sjó úr skip-
um. Reykhólamenn eru þessa dag-
ana að leita fjármuna fyrir því sem
á vatnar til að björgunarsveitin
eigi fyrir bátnum. Orkubú Vest-
fjarða ætlar að láta hundrað þús-
und krónur rakna af hendi og búið
er að gera dreifibréf þar sem biðl-
að er eftir stuðningi fyrirtækja og
einstaklinga. –mþh
Ökumenn blóta
til fyrirmyndar!
VESTURLAND: Lögreglan
hélt úti töluverðu eftirliti með
umferð í kringum þorrablót-
in sem haldin voru víðs vegar í
umdæminu, í þéttbýli jafnt og
dreifbýli, það sem af er þorra.
„Í stuttu máli má segja að allir
ökumenn hafi verið allsgáðir og
í góðu lagi þó svo að flestir far-
þegarnir hafi angað af súrmat,
hákarli og jafnvel áfengi. Einn
ökumaður var hins vegar tekinn
fyrir meinta ölvun við akstur um
miðjan dag í þéttbýli og var sá
hvorki á leiðinni á eða af þorra-
blóti. Lögregla fagnar þeirri
þróun að ökumenn séu allsgáðir
í þorrablótaumferðinni. „Það er
af sem áður var þegar lögreglu-
menn við eftirlit fundu jafnvel
gallsúra gambralykt úr ökutækj-
um á þessum árstíma. En slík-
ur mjöður lyktaði vægast sagt
mjög illa og bragðaðist eftir því
trúlega ekki vel,“ segir Theódór
Þórðarson upplýsingafulltrúi
Lögreglunnar á Vesturlandi sem
man tímana tvenna í þessu sam-
bandi. „Áferðin á gambranum
var svo groddaleg að ekki sást í
gegnum glærar flöskur, þó svo
að vasaljós væri borið að þeim.
Var gambrinn á að líta eins og
miðlungsþykkur hafragrautur
með þrútnum, fljótandi rúsín-
um samanvið. Báru menn þess-
ar flöskur gjarnan innanklæða
og drukku þetta síðan „maga-
volgt“ brosandi út að eyrum
og buðu mönnum jafnvel með
sér. Trúlega hefur þessi mjöður,
sem síðan var oftast soðinn og
varð þá að landa, verið hvað lík-
astur þeim forna miði er forfeð-
ur okkar brugguðu og drukku
síðan með bestu lyst fljótlega
eftir að hafa numið hér land á
sínum tíma.“
-mm
Læknaskortur
bitnar á þjónustu
AKRANES: Mikil mannekla er
nú á læknasviði heilsugæslunnar
á Akranesi og má því búast við
töfum á ýmsri þjónustu við íbúa
á næstu vikum. Guðjón Brjáns-
son forstjóri HVE segir í sam-
tali við Skessuhorn að einkum
eigi þetta við um þá sem þurfa
að leita læknisþjónustu. „Ákaft
er leitað eftir læknum til starfa
en til þessa hefur sú vinna ekki
skilað árangri en áfram er unn-
ið að lausn á vandanum. Þetta
kann að valda íbúum einhverj-
um óþægindum en öll aðkall-
andi verkefni eru leyst eins og
frekast er kostur. Starfsfólk ósk-
ar vinsamlegast eftir að tillit
verði tekið til þessara aðstæðna
þegar leitað er eftir þjónustu
á stöðinni á næstunni,“ seg-
ir Guðjón. Hann segir óhjá-
kvæmilegt annað en að grípa til
skammtímalausna á næstunni
sem er ekki viðunandi ástand
nema í mjög stuttan tíma. „Við
leitum að öflugum yfirlækni til
að byggja upp að nýju og teljum
að við höfum að bjóða framúr-
skarandi umhverfi fyrir metn-
aðarfulla heimilislækna sem
einblína á faglegt starf, hafa í
bland hugsjón að leiðarljósi en
ekki bara mikla peninga þótt
þeir séu góðir að sínu leyti, en
þetta er þó ansi fyrirferðamikill
þáttur í allri umræðu. Þar stefn-
ir í óefni en við róum nú lífróð-
ur í erfiðum sjó, fátt eða ekkert
um fína drætti,“ segir Guðjón
Brjánsson.
–mm
Gistiheimilið Bjarg í Grundarfirði
hlýtur fullt hús stiga
Gistiheimilið Bjarg. Ljósm. tfk.
Einkunn byggir á umsögnum 24
síðustu gesta sem skráðu sig í
booking.com.
Í Vínbúðirnar var síðastliðinn
fimmtudag rúllað inn brettum af
þorrabjór frá innlendum framleið-
endum. Sá vestlenski er líkt og í
fyrra Hvalur II, þorrabjór brugghúss
Steðja í Borgarfirði. Þessi bjór hef-
ur vakið gríðarlega athygli víðsvegar
um heiminn. „Má geta þess að ýms-
ir fréttamiðlar hafa fjallað um hann,
svo sem BBC, The Guardian, Wash-
ington Post, Skessuhorn og margir
fleiri,“ segir í tilkynningu frá Steðja.
Bjórnum er ítarlega lýst í bjórbókinni
„The wackiest beer in world“ sem er
verið að gefa út um þessar mundir
og situr efstur á mörgum listum yfir
„brjáluðustu bjóra í heimi“. Því má
segja að Hvalur annar sé fyrir þá sem
þora, ekki aðra.
Hvalur II er yfirgerjaður bjór
sem er hannaður í kringum tað-
reykt langreyðareistu. Allt er gert til
að fanga anda þorrans í ölinu. Bjór-
meistarinn er hinn þýski Philipp
Ewers, bruggari Steðja. „Við not-
um sérstaka berja-humla til að gefa
hið fullkomna villibráðarkrydd. Eist-
un er taðreykt með gamla mátan-
um og náum við því mjög sérstöku
og rammíslensku reykbragði í bjór-
inn. Bjórinn er 5,1% að styrkleika og
hentar fullkomlega með þorramatn-
um og svo gefa langreyðareistun
skemmtilegan kjöttón í eftirbragðið.
Þetta er bjór sem á sér enga líkan og
er kominn í flestallar Vínbúðir lands-
ins,“ segir í tilkynningu.
mm
Þorrabjór fyrir þá sem þora