Skessuhorn - 27.01.2016, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 2016 7
Innifalið alla Sparidaga
– gisting í 5 nætur í tveggja manna herbergi –
– morgunverðarhlaðborð og kvöldverður –
– og fjölbreytt dagskrá –
Verð 49.900 á mann
m.v. tveggja manna herbergi
Breiðumörk 1c, 810 Hveragerði - info@hotelork.is - sími: 483 4700 - www.hotelork.is
Að venju verður dagskrá Sparidaga fjölbreytt og
skemmtileg. Boðið verður upp á heimsókn í Friðheima auk
þess sem jarðhitasýning ON í Hellisheiðarvirkjun
verður heimsótt. Laddinn okkar allra sér um
Arkarleikhúsið þetta árið. Fastir liðir eins og
bingó og félagsvist verða svo auðvitað á sínum stað.
Bókanir fara fram hjá umsjónarmanni félags eldri borgara á hverjum
stað. Einnig er hægt að hafa samband við Hótel Örk í síma 483 4700
þar sem starfsfólkið veitir allar nánari upplýsingar eða á slóðinni
www.hotelork.is/sparidagar.
Vesturland
17. - 22. apríl
2016
Hafrannsóknastofnun lauk í síðustu
viku vinnu við að leggja mat á stofn-
stærð loðnu á Íslandsmiðum. Nið-
urstaðan er sú að veiðistofn loðn-
unnar sé aðeins 675 þúsund tonn að
stærð. Sé tekið tillit til aflareglu sem
tekur mið af náttúrulegum afföllum
loðnunnar í vetur og því að skilja
skal 150 þúsund tonn af loðnu eftir
til hrygningar, þá er niðurstaðan sú
að heildarloðnukvóti verður alls 173
þúsund tonn.
Íslendingar eru bundnir af fisk-
veiðisamningum við nágrannaþjóð-
irnar. Í þeim samningum eru ákvæði
um að þær hafi rétt til að veiða hluta
af loðnunni á Íslandsmiðum. Þess-
ir samningar gera það að verkum að
73 þúsund tonn af heildarkvótan-
um falla í hlut Norðmanna, Græn-
lendinga og Færeyinga. Norðmenn
fá 45.005 tonn þar sem 31.165 tonn
eru vegna skipta við þá á þorski í
Barentshafi vegna hins svokallaða
Smugusamnings. Grænlendingar fá
síðan 19.030 tonn og Færeyingar
8.650 tonn. Eftir standa svo 100.315
tonn til íslenskra skipa. Þessi kvóti
er aðeins einn fjórði af loðnuafla síð-
asta vetrar.
Loðnuvertíðin nú hefst því á mjög
litlum kvóta auk þess sem rússnesk-
ur markaður fyrir heilfrysta loðnu
og loðnuhrogn er lokaður. Sala á
loðnuafurðum til Rússlands hefur
lyft verðmætum á loðnuvertíðinni
mjög á undanförnum árum. Verð á
fiskimjöli og lýsi er hins vegar hátt
nú um stundir. Það gæti vegið upp
tapið en er líklega skammgóður
vermir því loðnukvótinn er svo lít-
ill. mþh
Loðnukvóti Íslands aðeins
hundrað þúsund tonn
Í fyrsta skipti verður keppt í nýrri Vesturlandsdeild í hesta-
íþróttum í febrúar og mars. Um einstaklings- og liðakeppni
verður að ræða sem svipar nokkuð til KS deildarinnar og
Meistaradeildar VÍS. Keppnisstaður verður reiðhöllin
Faxaborg í Borgarnesi. Selt verður inn á sýningarnar fyr-
ir 1.500 krónur og er aðgöngumiði jafnframt happdrætt-
ismiði. Í verðlaun verður folatollur undir einn af bestu stóð-
hestum svæðisins. Búið er að velja liðin og er óhætt að segja
að þau skarta mörgum af helstu knöpum og hestamönn-
um Vesturlands. Skráðir eru til leiks 24 knapar sem skiptast
í sex, fjögurra manna lið. Keppt verður í fimm greinum
hestaíþrótta á fjórum kvöldum í Faxaborg. Keppniskvöldin
verða sem hér segir: 5. febrúar – fjórgangur, 19. febrúar –
fimmgangur, 11. mars – tölt og 23. mars - gæðingafimi og
fljúgandi skeið.
mm
Eques
Guðmundur M. Skúlason – liðsstjóri
Bjarki Þór Gunnarsson
Guðbjartur Þór Stefánsson
Pernille Lyager Möller
Leiknir hestakerrur
Randi Holaker - liðsstjóri
Haukur Bjarnason
Berglind Ragnarsdóttir
Konráð Valur Sveinsson
Snæfellsnes
Anna Dóra Markúsdóttir - liðsstjóri
Jón Bjarni Þorvarðarson
Siguroddur Pétursson
Lárus Ástmar Hannesson
Snókur/Cintamani
Hanne Smidesang – liðsstjóri
Jakob Svavar Sigurðsson
Leifur Gunnarsson
Benedikt Þór Kristjánsson
Trefjar
Gunnar Halldórsson – liðsstjóri
Halldór Sigurkarlsson
Iðunn Silja Svansdóttir
Styrmir Sæmundsson
Sjötta liðið (ónefnt)
Máni Hilmarsson – liðsstjóri
Þorgeir Ólafssson
Julia Katz
Þorsteinn Björn Einarsson.
Keppnislið í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum
Keppnislið Trefja. Keppnislið Berg-Hrísdals. Keppnislið Eques.
Keppnislið Leiknis – hestakerrur. Keppnislið þetta hefur ekki enn fengið nafn. Keppnislið Snóks-Cintamani.