Skessuhorn - 27.01.2016, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 2016 11
Á fimmtudag í síðustu viku var
undirritaður nýr kjarasamning-
ur Samtaka atvinnulífsins við Al-
þýðusamband Íslands og aðild-
arfélög þess. Samningurinn á að
tryggja frið á vinnumarkaði til loka
árs 2018, eða í þrjú ár. Grundvöll-
ur samningsins byggir á svoköll-
uðu SALEK-samkomulagi sem
var rammasamningur milli aðila
vinnumarkaðarins undirritaður í
október síðastliðinn, og bókun um
lífeyrissréttindi frá 2011. Launa-
hækkun kemur til framkvæmda 1.
janúar á þessu ári og nemur hún
6,2% eða 15.000 krónum að lág-
marki. Á næsta ári verður síð-
an 4,5% almenn launahækkun og
árið eftir (2018) verður hún svo
3%. Launagreiðendur munu einn-
ig þurfa að greiða meira í lífeyris-
sjóði. Sú hækkun verður í þrepum.
Framlag þeirra hækkar um 0,5%
1. júní á þessu ári, 1,5% árið 2017
og aftur um sama prósentuhlut-
fall árið 2018. Heildarframlag-
ið verður þá komið í 11,5% í stað
8% nú. Skessuhorn ræddi við tvo
formenn verkalýðsfélaga á Vestur-
landi, þau Vilhjálm Birgisson for-
mann VLFA og Signýju Jóhannes-
dóttur formann Stéttarfélags Vest-
urlands. Þau hafa afar ólíka sýn á
nýja samninginn.
Harmar hlut hinna
tekjulægstu
Allir 80 þúsund félagsmenn ASÍ
greiða atkvæði um þennan nýja
samning í sameiginlegri atkvæða-
greiðslu. „Þessi nýjasti samning-
ur er þannig uppbyggður að þau
tekjulægstu eru ekki að bera neitt
úr býtum að undanskildu því að
hækkunum sem þau áttu að fá sam-
kvæmt samningum sem voru und-
irritaðir 29. maí í fyrra er flýtt frá
1. júní til 1. janúar 2016. Það er
svo að langflestir launataxtar þeirra
tekjulægstu áttu samkvæmt samn-
ingnum sem gerður var í fyrra að
hækka um 6,2%. Þeir einu sem
græða nú eru þeir tekjuhærri sem
fá þessar hækkanir nýjar inn hjá
sér. Hið sama á líka við um 2017
og 2018,“ segir Vilhjálmur Birg-
isson formaður Verkalýðsfélags
Akraness (VLFA).
Varðandi það að iðgjöld atvinnu-
rekenda í lífeyrissjóði hækki alls um
3,5% til loka árs 2018 segir Vil-
hjálmur að hann hefði frekar viljað
sjá þennan kostnaðarauka fyrir at-
vinnurekendur inni í launum fólks
og þá sem hækkanir á þeim. „Við
erum með það lág laun í dag að
þau duga mörgum vart til að halda
mannlegri reisn. En heilt yfir við
þessa nýju samninga þá finnst mér
dapurlegast að þeir tekjulægstu
skuli hafa verið skildir eftir.“
Sér samninginn í sam-
hengi við SALEK
Formaður VLFA segist líka enn
sem fyrr vera afar ósáttur við SA-
LEK-samkomulagið svokallaða.
„Við hjá VLFA kærðum það til
félagsdóms og málið verður tekið
fyrir í dag, miðvikudag. Þeir sem
að þessu standa eru að koma því
á fót að hér á landi verði stofn-
að eins konar þjóðhagsráð sem
ákveði allar launabreytingar á ís-
lenskum vinnumarkaði eftir 2018.
Þetta þjóðhagsráð á að ákveða að
launahækkanir á hverjum tíma
megi ekki vera meiri en einhver
ákveðin prósentutala. Og að stétt-
arfélögunum verði skylt að vera
innan svigrúmsins í sínum kröfum.
Á mannamáli heitir þetta að frjáls
samningsréttur er tekinn af stétt-
arfélögunum. Þetta brýtur gegn
öllu allt frá stjórnarskrá og nið-
ur úr, og er í mínum huga veru-
leg ógn við íslenska launþega. Það
verður ekki lengur hægt að sækja
sérstaklega stórauknar kjarabætur
til fyrirtækja sem ganga vel og skila
kannski ofurhagnaði. Það er alger-
lega með ólíkindum að menn ætli
inn á þessar brautir og við mun-
um berjast fram í rauðan dauð-
ann fyrir því að samningsréttur-
inn verið áfram frjáls og í höndum
stéttarfélaganna. Ég hygg reyndar
að samningsvilji atvinnurekenda í
þessum nýjasta kjarasamningi nú
sé til kominn vegna þess að þeir
ætli sér að hirða kjarabæturnar í
honum aftur úr höndum launþega
síðar meir og þá í gegnum þetta
SALEK-samkomulag.“
Vilhjálmur segir að greiða eigi
atkvæði um nýja samninginn fyr-
ir 27. febrúar. Hann vill ekki gefa
upp á þessari stundu hvort hann
hyggist mæla með honum eða ekki.
„Við erum bara að skoða þetta nú á
þessari stundu.“
Liður í jöfnun
lífeyrisréttinda
Signý Jóhannesdóttir formað-
ur Stéttarfélags Vesturlands seg-
ir að það sem lýtur að jöfnun líf-
eyrisréttinda skipti að hennar
mati langmestu máli í þessum nýja
kjarasamningi. „Staðan í dag er sú
að Lífeyrissjóður opinberra starfs-
manna lofar fólki 76% af meðal-
ævitekjum. Lífeyrisssjóðir okkar á
almennum vinnumarkaði eru hins
vegar að lofa fólki 56%. Við vilj-
um fylla upp í þetta bil. Hækkun
framlags atvinnurekenda er skref í
þá átt en það er meiri vinna fram-
undan. Ég hef til dæmis áhyggjur
af því að hluti af þessari nýju við-
bótargreiðslu megi fara í séreign
en ekki í sameiginlega lífeyrissjóði.
Þannig muni hún þar af leiðandi
ekki skila sér til fólks í fyllingu tím-
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000
www.kemi.is - kemi@kemi.is
Fyrir börn - Fyrir fullorðna - Fyrir fagmenn
Veit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16
Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
MEÐ ALLT Á HREINU
NÝ LÍNA FRÁ ELECTROLUX
ans. Það gæti þannig staðið frammi
fyrir lakari ellilífeyri eða örorkulíf-
eyri, en ella í framtíðinni. Við þurf-
um að gæta að þessu,“ segir Signý
Jóhannesdóttir formaður Stéttar-
félags Vesturlands.
Þau lægst launuðu
verða undir
Varðandi nýja kjarasamninginn
segir Signý mikilvægt að horfa til
þess að launahækkanir hafi náðst
fram og þeim flýtt, ekki megi bara
einblína á prósentutölur. Hún tek-
ur undir gagnrýni um að launa-
lægsta fólkið skuli ekki njóta nýja
samningsins í meiri mæli. „Því er
ekki að neita að á vissan hátt er hér
verið að eyða því út sem náðist í
vor í kjarabótum til handa þeim
lægst hafa launin. Aðrir á vinnu-
markaðinum hafa aðra sýn hvað
það varðar og við sitjum uppi með
það í þessari lotu. Við sem höfum
barist fyrir kjarabótum fyrir þau
lægst launuðu höfum orðið undir í
launastefnu sem rekin er að frum-
kvæði stjórnvalda. Það er fjár-
málaráðuneytið sem stendur fyrir
framúrkeyrslu í launahækkunum
og breytingum sem felast í því að
hætta að leggja áherslu á láglauna-
fólk. Í staðinn er tekið tillit til há-
launafólks, bæði í launahækkunum
og skattastefnu.“
Signý segir að Stéttarfélag Vest-
urlands muni leggja til að félags-
menn samþykki nýja samninginn.
„Samningurinn er jú undirritað-
ur fyrir hönd Stéttarfélags Vest-
urlands þar sem Sigurður Bessa-
son hjá Flóabandalaginu var með
samningsumboð frá okkur.“
mþh
Nýir samningar undirritaðir á vinnumarkaði
Vilhjálmur Birgisson formaður Verka-
lýðsfélags Akraness.
Signý Jóhannesdóttir formaður
Stéttarfélags Vesturlands.