Skessuhorn - 27.01.2016, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 2016 13
fyrrasumar að Íslendingar ættu að
hugleiða það að draga úr hvalveið-
um. Öll íslenska utanríkisþjónust-
an finnur fyrir þessari þungu undir-
öldu. Við heyrum líka á máli sendi-
herra svo sem Bretlands og annarra
ríkja innan Evrópusambandsins að
þeir spyrja okkur hvað gera megi
til að fá Ísland til að hætta hvalveið-
um. Við höfum svarað þeim og sagt
að þeir skuli ekki vera að skipta sér
af innanríkismálum á Íslandi. Slíkt
geri málin bara erfiðari. Hið sama
sagði ég við Sea Shepherd samtök-
in þegar þau voru að hugsa um að
senda lið hingað í fyrra. Þá skrifaði
ég Paul Watson forsprakka þeirra
bréf og réði honum frá því að sam-
tökin kæmu hingað. Það myndi
valda meiri skaða heldur en hitt að
láta slíkt ógert,“ segir Gísli og bætir
við að stöðvun hvalveiða Íslendinga
sé barátta sem verði að vinnast inn-
anlands hér á landi.
Fyrst og fremst verði þó að koma
í veg fyrir frekari veiðar á hvalaskoð-
unarslóðum. „Faxaflóinn er lang við-
kvæmastur. Borgarstjórnin í Reykja-
vík er búinn að samþykkja einróma
að hætta eigi hrefnuveiðum í Faxa-
flóa og þar eigi að vera griðland.
Önnur sveitarfélög eins og Akra-
nes ættu að taka undir þetta. Hvers
vegna ætti ekki að vera hægt að gera
út á hvalaskoðun frá Akranesi? Slíkt
gæti verið með í að byggja upp að-
dráttarafl fyrir ferðamenn til bæjar-
ins.“
Fuglaskoðun á sjó á
mikla möguleika
Gísli segir að ferðaþjónusta tengd
náttúruskoðun á hafi úti við Ísland
sé nokkuð sem geti skilað miklum
tekjum og enn séu margir mögu-
leikar ónýttir. Nú séu áform um að
hefja hvalaskoðun frá Ísafirði og
Siglufirði sem hefur verið í mikilli
sókn sem ferðamannabær. Hann
bendir á að fuglaskoðun úti á sjó
sé enn nánast óplægður akur. Þar
séu þau hjá Láki Tours að eygja
nýja möguleika. „Við höfum verið
að byggja upp ferðir í lundaskoð-
un út í Melrakkaey sem er hér úti
á firðinum. Þetta er að spyrjast út
og eftirspurn að aukast. Nú síðast
eru skemmtiferðaskipin sem hing-
að koma farin að kaupa meira fyr-
ir sína farþega í svona ferðir. Þau
byrjuðu að kaupa lundaferðirnar í
fyrra og eru að auka það í ár.“
Að sögn Gísla er líklega ein besta
aðstaða á landinu fyrir lundaskoð-
un einmitt frá Grundarfirði og þá
úti í Melrakkaey. Þar eru aðstæð-
ur afar góðar og stutt sigling héð-
an frá Grundarfjarðarhöfn. Lund-
inn þar hefur haldið velli þó hann
hafi nánast horfið úr eyjunum við
Reykjavík og fækkað mikið í Vest-
mannaeyjum. „Þetta eru mjög
þægilegir túrar hjá okkur sem taka
svona klukkutíma og kortér. Það er
svo aðdjúpt við Melrakkaey að við
erum með bátinn bara tvo til þrjá
metra frá landi. Víða annars stað-
ar eiga menn erfitt með að komast
nógu nærri landi þar sem lundavarp
er. Maður finnur líka alltaf skjól
einhvers staðar við Melrakkaeyna
þó vindar blási. Auk þessa er mikið
af lunda á sjónum við Melrakkaey.
Við getum því sýnt fuglana mjög
vel. Erlendir ferðamenn eru mjög
áfjáðir í að sjá þennan fugl í sínu
náttúrulega umhverfi en ekki bara
í lundabúðunum í Reykjavík. Þessi
litli fugl er mjög eftirspurður, jafn-
vel svo að maður skilur varla þessa
áráttu í lundann.“
Huga verður að
sveitarfélögunum
Heilt yfir þá er þessi reyndi ferða-
þjónustumaður á Vesturlandi mjög
bjartsýnn á framtíðina. „Ferð-
mannaárið 2016 lítur rosalega vel
út,“ slær hann föstu enn og aft-
ur. Áður en við slítum spjallinu vil
hann þó koma að nokkrum hugs-
unum um það hvernig færa mætti
hlutina til betra horfs. Hann segir
að vissulega hafi orðið sprenging í
ferðaþjónustunni og nú sé áríðandi
að hugsa, ræða og framkvæma leið-
ir til að ganga betur frá allri um-
gjörð kringum þennan atvinnuveg.
„Vandi okkar nú er að mínu mati
mestan partinn stofnanalegs eðlis.
Sveitarfélög hafa í dag engar bein-
ar tekjur af ferðaþjónustu nema
gegnum fasteignagjöld og útsvar.
Ferðaþjónustunni er oft líkt við
sjávarútveg. Þar hafa sveitarfélög
sömu tekjustofna af atvinnugrein-
inni og í ferðaþjónustu en til við-
bótar koma svo hlutir eins og afla-
og hafnargjöldin sem eru jú mik-
ill hvati til þess að farið er í hafn-
arframkvæmdir. Það vantar svona
tekjustofna frá ferðaþjónustunni
til að sveitarfélögin sjái sér hag í að
koma að uppbyggingu innan henn-
ar með því að bæta aðstöðu fyrir
ferðamenn.“
Gísli segir að hugsa þurfi upp
leið til að búa til hvata fyrir sveit-
arfélögin. Ríkið gerir þá kröfur á
þau að leggi það peninga úr sjóð-
um eyrnamerktum til uppbygg-
ingar á aðstöðu fyrir ferðamenn þá
verði sveitarfélögin að koma með
mótframlag. En sveitarfélög með
veikan fjárhag og mjög takmarkað
fé til framkvæmda eru ekki að fara
að taka pening úr aðkallandi lög-
bundnum verkefnum eins og skóla-
málum eða gatnagerð til að setja í
ferðaþjónustu.“
Nýrrar nálgunar er þörf
Gísli Ólafsson telur ákveðið að
sveitarfélög, þjóðgarðar og vernd-
arsvæði eigi ekki að þurfa að koma
með mótframlag gegn ríkinu þeg-
ar fjárfest er í innviðum fyrir ferða-
þjónustu. Þetta sé lausnin. „Einka-
aðilar sem hafa tekjur af ferða-
þjónustu eiga hins vegar að koma
með mótframlag. Síðan eru aðrir
staðir sem eru í eigu einkaaðila en
hafa ekki tekjur af ferðaþjónustu
en skipta samt miklu máli og eru
fjölsóttir. Hér má nefna sem dæmi
Helgafell í Helgafellssveit og Glym
í Hvalfirði. Þetta eru fjölfarnir stað-
ir með mikilli umferð og átroðn-
ingi en landeigendur eða ábúendur
eru ekki að fá tekjur af þeim ferða-
mannastraumi. Svona staðir þurfa
samt á verndun eða uppbyggingu að
halda svo sem göngustígum, bíla-
stæðum, salernum og þess háttar.
Hér á ríkið bara að koma inn með
fjármagn án kröfu um mótframlag
landeigenda,“ segir Gísli.
Hann bætir því svo við að finna
verði svar við spurningunni um
það hvaða frekari tekjur sveitarfé-
lögin eigi að fá af ferðaþjónustunni.
Það sé sanngirnismál að þau fái sinn
hlut af kökunni. „Getur ríkið gef-
ið eftir gistináttaskattinn til sveit-
arfélaganna? Hann er reyndar ekki
mjög hár en það gæti verið byrjun-
in. Það er vel þekkt í borgum í ná-
grannalöndunum að þær hafa ákveð-
inn borgarskatt sem er ígildi gisti-
náttaskatts hjá okkur, mishár reynd-
ar eftir borgum. Í Bandaríkjunum
er hann mishár eftir fylkjum. Það
mætti hugsa sér einhverja svona út-
færslu sem fæli í sér lausn. Það þarf
að hugsa þetta allt upp á nýtt,“ segir
hann að lokum. mþh
Laus störf hjá Akraneskaupstað
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:
Starf leikskólakennara i Leikskólanum Akraseli
Hlutastörf við liðveislu
Sótt er um rafrænt á heimasíðu
Akraneskaupstaðar á þar til gerðu eyðublaði.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.akranes.is
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Viðskiptavinir athugið!
Vegna árshátíðar starfsmanna
verða skrifstofur embættisins lokaðar
frá kl.13:00 föstudaginn 29. janúar nk.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Ólafur K. Ólafsson SKE
SS
U
H
O
R
N
2
01
6
CLARVISTA
STURTUGLER
FYRIR
VANDLÁTA
Allt í gleri
ÚTI OG INNI
M
ynd: Josefine Unterhauser
Hótel Framnes. Gísli Ólafsson er orðinn langeygur eftir því að fá leyfi til að stækka
það og bæta.
Hvalaskoðunarfólk fylgist með háhyrningi sýna sig á Grundarfirði. Gísli segir að
náttúruskoðun á sjó eigi mikla framtíð fyrir sér í íslenskri ferðaþjónustu og hún
snúist ekki bara um hvali. Miklir möguleikar séu líka í fuglaskoðun. Ljósm. tfk.
Að sögn Gísla er líklega ein besta aðstaða á landinu fyrir lundaskoðun einmitt frá
Grundarfirði og þá úti í Melrakkaey. Ljósm. tfk.