Skessuhorn - 27.01.2016, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 201614
SÓ húsbyggingar eru nú búnar að
reisa nýtt fjölbýlishúshús við Arn-
arklett 28 í Borgarnesi. Það er fyr-
irtækið Arnarklettur 28 ehf sem
byggir en það er í eigu SÓ Hús-
bygginga ehf og fyrirtækis í eigu
Snorra Hjaltasonar verktaka. Hús-
ið var reist úr forsteyptum eining-
um frá Loftorku Borgarnesi og í
því verða 16 íbúðir, átta þeirra 61
fermetri og aðrar átta sem eru 80
fm. Á lóðinni er auk þess fríst-
andandi geymsluhús. Að sögn Jó-
hannesar Freys Stefánssonar fram-
kvæmdastjóra SÓ Húsbygginga er
ráðgert að ljúka framkvæmdum
við húsið og koma því í útleigu í
vor. Hann segir að lítilsháttar tafir
hafi orðið á framkvæmdinni, sem
einkum megi rekja til óhagstæðs
tíðarfars í desember og janúar sem
hafi tafið steypuvinnu. Íbúðarnar
fara allar í útleigu. „Eftirspurn er
töluverð og margir á biðlista. Nú
á næstunni verður svo byrjað að
ræða við væntanlega leigjendur og
gera samninga við þá,“ sagði Jó-
hannes Freyr.
mm
Nýtt fjölbýlishús risið í Borgarnesi
Húsið við Arnarklett 28 en þaðan er glæsilegt útsýni til suðurs yfir Borgarfjörðinn
og til Hafnarfjalls.
Byggðastofnun birti í síðustu viku
lista yfir þau verkefni sem koma til
greina sem handhafar Eyrarrósarinn-
ar 2015. Meðal þeirra er eitt verkefni
af Vesturlandi; Northern Wave stutt-
myndahátíðin í Grundarfirði. Hin
eru: Act Alone, Að – þáttaröð N4,
Barokksmiðja Hólastiftis, Eldheimar
í Vestmannaeyjum, Ferskir vindar,
Reitir, Rúllandi snjóbolti, Sauðfjár-
setur á Ströndum og Verksmiðjan á
Hjalteyri. Núverandi handhafi Eyr-
arrósarinnar er Frystiklefinn í Rifi
og verða næstu verðlaun afhent þar
um miðjan næsta mánuð. „Í ár barst
mikill fjöldi umsókna um Eyrarrós-
ina hvaðanæva af landinu. Eyrarrósin
er viðurkenning sem veitt er framúr-
skarandi menningarverkefni á starfs-
svæði Byggðastofnunnar. Hún bein-
ir sjónum að og hvetur til menn-
ingarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar
og uppbyggingar á sviði menning-
ar og lista. Að verðlaununum standa
Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og
Listahátíð í Reykjavík.“
Þau tíu verkefni sem tilnefnd voru
eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg
og eru víða um land. Þriðjudaginn 2.
febrúar verður tilkynnt hvaða þrjú af
þessum verkefnum hljóta tilnefning-
ar til verðlaunanna. Eitt þeirra hlýt-
ur að lokum Eyrarrósina, 1.650.000
krónur og flugferðir innanlands frá
Flugfélagi Íslands en hin tvö verk-
efnin hljóta peningaverðlaun og
flugferðir frá Flugfélagi Íslands.
mm
Tíu verkefni koma til greina
sem handhafi Eyrarrósarinnar
Mikill stórhugur er hjá fyrirtækinu
Hringhótel sem á og rekur Hótel
Stykkishólm. Hjá Stykkishólmsbæ
liggur fyrir deiliskipulagstillaga
sem snýr að verulegri stækkun
hótelsins. Greint var frá henni í
síðasta tölublaði Skessuhorns. Í
stuttu máli snýr hún að því að nú-
verandi hótelbygging verði hækk-
uð úr núverandi þremur hæðum í
fimm og að reist verði fimm hæða
nýbygging syðst á lóð hótelsins.
Einnig er lagt til að lóð hótelsins
verði stækkuð um 2.300 fermtra og
verði eftir það alls 12.100 fermetr-
ar. Þessar framkvæmdir eru allar í
ferli innan stjórnsýslunnar og því
hvergi hafnar. Hins vegar standa
nú yfir viðamiklar endurbætur á
hótelinu sem hefur af þeim sökum
verið lokað síðan í byrjun desemb-
er. Nú er verið að gera upp ríf-
lega helming herbergjanna þannig
að þau verða sem ný þegar fram-
kvæmdum lýkur.
Rúmlega helmingur
hótelsins endurnýjaður
„Það er verið að breyta öllum 47
herbergjum í hinum svokallaða
nýja hluta hótelsins. Það verð-
ur skipt um glugga í þeim öll-
um, sett ný gólfefni, ný rúm og ný
sjónvarpstæki. Auk þessa verða öll
herbergin máluð og sett verða upp
ný gluggatjöld. Það má segja að
herbergin séu nánast sett í fokhelt
ástand áður en þau eru alveg tek-
in í gegn. Auk þessa á líka að gera
miklar endurbætur á veislusal hót-
elsins sem tekur um 300 manns í
sæti. Sá salur hefur gert sitt til
þess að hótelið er vinsælt bæði fyr-
ir ýmsar veislur en líka ráðstefn-
ur,“ segir María Bryndís Ólafs-
dóttir hótelstjóri Hótel Stykkis-
hólms. Hún útskýrir að nýi hlut-
inn svokallaði sé suðurálma hót-
elsins sem hafi verið byggð árið
2004. Sú álma er á þremur hæð-
um. Með þessum endurbótum
verður þessi hluti Hótels Stykk-
ishólms sem nýr. „Fyrir þremur
árum gerðum við svipað við það
sem við köllum gamla hlutann
sem er elsti hluti hótelbyggingar-
innar eins og hún er í dag og var
upphaflega byggður 1976. Þá voru
öll herbergi þar endurýjuð alfarið
og meira að segja skipt um vatns-
lagnir og ofna,“ segir María.
Næsta haust segir María að von-
ir standi síðan til að hefja megi
framkvæmdir við stækkun hótels-
ins sem nú telur 79 herbergi. Með
þeirri stækkun verði herbergin ná-
lega hundrað talsins. „Sú stækkun
gengur út á að byggja ofan á bil-
ið milli gamla og nýja hlutans yfir
þar sem inngangurinn er. Stefnt
er á að það verði tilbúið vorið
2017. Síðan er ekki enn búið að
ákveða hvenær verður farið í frek-
ari stækkun á hótelinu með því að
bæta við hæðum og reisa nýbygg-
ingu við suðurenda hótelsins enda
eru þau áform rétt komin í deili-
skipulagsferli.“
Ferðaþjónustan
þróast hratt
María Bryndís Ólafsdóttir hef-
ur stýrt daglegum rekstri Hótels
Stykkishólms síðan 2007. Í heild
hefur hún þó unnið við hótelið
í ein 17 ár, og er fædd og uppal-
inn í Stykkishólmi. „Ég hef hvergi
annars staðar búið,“ segir hún og
brosir við.
Með þessa reynslu hefur María
því staðgóða þekkingu á ferða-
þjónustunni. Hún segir að starfs-
greinin sé alltaf að stækka í snið-
um í Hólminum. Því er kannski
ekki seinna vænna en fara að huga
að stækkun hótelsins. „Megnið af
okkar gestum í gegnum árin hafa
verið hópar sem gista hér allt upp
í þrjá daga og nota þá tímann til
að skoða sig um á Snæfellsnesi
og jafnvel víðar. Þetta er þá fólk
á ferð um landið sem er að koma
að norðan eða sunnan. Sumt fólk
er líka að fara eða koma með ferj-
unni Baldri um Breiðafjörð. Nú
síðast sjáum við svo að umferð af
einstaklingsferðamönnum er að
aukast mjög mikið. Þetta er fólk
sem skipuleggur sínar ferðir og
bókar sjálft á netinu og ferðast sem
einstaklingar en eru ekki á vegum
neinna ferðaskrifstofa. Þegar ég
byrjaði hér var svona ferðaskipu-
lag nokkuð sem þekktist varla. Nú
er þetta orðið algengt og eykst ár
frá ári. Þetta eru gestir alls staðar
að úr heiminum.“
Reksturinn gengur vel
Rekstur Hótel Stykkishólms geng-
ur mjög vel að sögn Maríu. „Síðasta
ár kom mjög vel út hjá okkur. Bók-
anir eru síðan mjög fínar fyrir þetta
og ár og einnig mikið búið að bóka
2017. Við sjáum aukningu ár frá ári
um leið og háannatímabil hvers árs í
ferðaþjónustunni sem er vor, sumar
og haust er alltaf að lengjast í báð-
ar áttir. Nú fer þetta af stað í maí og
varir út september. Það má segja að
það sé mjög vel á þessu tímabili. Síð-
an eru vetrarmánuðurnir svona frá
október til mars erfiðari en ferða-
mönnum er þó greinilega að fjölga
líka á þeim árstíma. Það er langtíma-
verkefni að koma á vetraropnun hjá
ferðaþjónustuaðilum svo bjóða megi
fulla þjónustu árið um kring.“
Hótel Stykkishólmi hefur yfir-
leitt haldið opnu yfir vetrartímann.
Nú var þó lokað í byrjun desember
og stendur sú lokun út janúarmán-
uð. „Það er fyrst og fremst vegna
framkvæmdanna sem nú standa yfir.
Þær eru það umfangsmiklar að þeim
fylgir svo mikil röskun að annað var
ekki hægt. Við ætlum svo að opna
aftur núna 1. febrúar. Nýja álm-
an verður reyndar ekki alveg tilbú-
in þá en komin það langt að truflan-
ir vegna framkvæmda verða að baki.
Það verður því gamli hluti hótelsins
sem við opnum fyrir gestum,“ segir
María Bryndís Ólafdóttir hótelstjóri
Hótel Stykkishólms. mþh
Miklar endurbætur standa yfir á Hótel Stykkishólmi
María Bryndís Ólafsdóttir hótelstjóri.
Hótel Stykkishólmur. Sá hluti hótelsins sem er vinstra megin á myndinni var upphaflega reistur 1976 en endurnýjaður
algerlega fyrri þremur árum. Nú er svo verið að taka öll herbergin í gegn í hinum svokallaða nýja hluta sem er álman hægra
megin á myndinni.
Iðnaðarmenn að störfum við að skipta um glugga í Hótel Stykkishólmi þegar
blaðamaður Skessuhorns leit þar við í síðustu viku. Horft er yfir Stykkishólmsbæ
út um gluggan en útsýni frá hótelinu er mjög fallegt í allar áttir og rómað af
gestum.