Skessuhorn - 27.01.2016, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 201616
Vesturland státar af öflugu íþróttalífi og á afreksfólk í
fremstu röð í fjölmörgum greinum. Þegar nýja árið er
gengið í garð og púðurlyktin óðum að hverfa úr loftinu
er víða haft til siðs að íþróttafélög tilnefni þá íþrótta-
menn sem þykja hafa skarað fram úr á liðnu ári.
Skessuhorni lék forvitni á að vita hvað íþróttafólk
þyrfti að hafa til brunns að bera til að geta skarað fram úr
í sinni grein. Til að fræðast um málið var rætt við þrjá af-
reksíþróttamenn af Vesturlandi og kannað hvað þeir eiga
sammerkt. Fyrir þá sem vilja ná árangri er býsna fróðlegt
að heyra svörin.
kgk
Afreksíþróttafólk af Vesturlandi tekið tali
Snemma þessa mánað-
ar voru tilkynnt úrslit í
valinu á Íþróttamanni
Akraness fyrir árið
2015. Var það sund-
maðurinn Ágúst Júlíus-
son sem hreppti hnoss-
ið, annað árið í röð.
Hann er meðal fremstu
flugsundsmanna lands-
ins og hefur verið um
nokkurra ára skeið. Að-
spurður hvort hann hafi
alla tíð verið í fremstu
röð viðurkennir Ágúst
að svo sé. „Ég var allt-
af meðal þeirra bestu á
landinu í mínum ald-
ursflokki þegar ég var
yngri,“ segir hann. „En
síðan fór ég að einbeita
mér meira að flugsund-
inu. Bæði þótti mér það
skemmtilegasta sundið
og svo var ég svo góður
í því þegar ég var yngri
að ég fór að þjálfa það
meira. Núna keppi ég
nánast eingöngu í 50 og
100 metra flugsundi,“
bætir hann við. Í þeim
greinum varð hann ein-
mitt Íslandsmeistari á
árinu, bæði í 25 og 50
metra laug.
Ágúst segist helst
þakka árangurinn góðu skipulagi,
sem geri honum kleift að æfa vel
samhliða óreglulegum vinnutíma,
en hann vinnur á 12 tíma vöktum í
kerskála álversins á Grundartanga.
„Æfingin skapar meistarann og ég
reyni að fara í laugina fimm sinn-
um í viku, en það fer auðvitað eft-
ir vinnunni. Vaktirnar gera það að
verkum að ég get ekki alltaf æft jafn
oft. Þess í stað einbeiti ég mér að
því að ná góðum æfingum og að æfa
rétt,“ segir Ágúst. Aðspurður hvað
felist í því segist hann nú leggja
mun meiri áherslu á lyftingar með
sundinu en hann gerði áður. Hann
reyni að lyfta alltaf jafn oft og hann
fer í laugina. Sökum óreglulegs
vinnutíma segist hann enn frem-
ur þurfa að sýna meira sjálfstæði
við æfingar sínar. Hann lyfti oftast
einn en æfi undir handleiðslu þjálf-
ara á sundæfingunum. „Við í sund-
félaginu erum núna með frábæran
norskan þjálfara, Kjell Wormdal,“
segir hann.
Frábær stemning
á æfingum
Ágúst fór á sína fyrstu sundæfingu
í Bjarnalaug á Akranesi ungur að
árum. „Ég man ekki hvort ég byrj-
aði að æfa fimm, sex eða sjö ára gam-
all. Hvað sem því líður er ég búinn
að æfa sund í rúmlega 20 ár,“ segir
hann en bætir því við að nokkrum
sinnum hafi hann tekið sér stutt frí
frá sundinu. „Ég hef tekið mér pás-
ur en alltaf byrjað aftur. Maður er
ekki í þessu nema hafa
áhuga á þessu. Meðan
ég hef áhugann mun ég
halda áfram.“
Hann segir ekki síst
félagsskapinn í sund-
inu vera það sem veitir
sér ánægju og það sem
hann sæki í. „Félags-
skapurinn er mjög góð-
ur og hefur alltaf verið.
Ég hef æft með mörgum
hópum í gegnum tíðina
og alltaf eru skemmti-
legir krakkar með mér
í þessu,“ segir hann.
„Stemningin á æfingum
er frábær og einhvern
veginn höfum við alltaf
getað tekið þessu af al-
vöru en samt fíflast og
haft gaman af þegar það
koma stopp inni á milli
á æfingum. Krakkarn-
ir sem ég hef æft með
þekkja alveg muninn á
milli alvöru og gamans
og vita hvenær hvort á
við,“ segir Ágúst.
Snýst um að
velja og hafna
Hvað varðar lífs-
stíl sundmannsins og
heilbrigt líferni segist
Ágúst auðvitað huga að því hvað
hann lætur ofan í sig. „Ég borða
mikið og vel en er alls ekkert að
vigta ofan í mig matinn, borða bara
góðan mat og hollan,“ segir hann.
Eins kveðst hann taka þátt í félags-
lífi en þó sé þátttaka hans í því mis-
mikil eftir því hvernig stendur á
með tilliti til móta. „Þetta snýst
bara um að velja og hafna. Þegar
það er stutt í mót þá þarf maður að
fá góða hvíld og hugsa vel um lík-
amann. Þá er maður ekkert úti að
skemmta sér,“ segir hann en segir
að þegar langt sé í mót geri hann
sér að sjálfsögðu glaðan dag og fara
út að skemmta sér með vinum og
kunningjum.
Framundan á næstu misserum
segir Ágúst vera Íslandsmeistara-
mótið í apríl. Auk þess skoðar hann
nú möguleika þess að fara erlend-
is og keppa að því móti loknu. „Ég
fékk styrk frá Verkalýðsfélagi Akra-
ness, sem ég er mjög þakklátur fyr-
ir. Hann ætla ég að nota til að fara
út og keppa,“ segir Ágúst. Aðspurð-
ur hvort ferðin sé hugsuð til að ná
tímalágmörkum inn á stórmót seg-
ir hann svo ekki vera. „Ég hef ekki
hugsað þessa ferð til að reyna við
einhver lágmörk heldur aðallega til
að keppa við sjálfan mig og reyna
að gera betur en ég hef gert,“ seg-
ir hann. „Að ná inn á einhver stór-
mót er markmið sem er bara lengra
í burtu, ég er ekki að hugsa um það
á hverri æfingu. Maður verður allt-
af að setja sér skýr og krefjandi en
raunhæf markmið sem vinna sam-
an bæði til skemmri og lengri tíma
og vinna jafnt og þétt að því að ná
þeim markmiðum,“ segir hann.
kgk
„Maður verður að setja sér skýr,
krefjandi en raunhæf markmið“
-segir Ágúst Júlíusson sundmaður frá Akranesi
Ágúst synti flugsundsprettinn fyrir boðsundsveit Íslands sem vann silfurverðlaun í
4x100 m fjórboðsundi á Smáþjóðaleikunum í Reykjavík síðasta sumar.
Ágúst Júlíusson, Íþróttamaður Akraness 2015.
Þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára
gamall var knattspyrnumaðurinn
Helgi Guðjónsson á dögunum val-
inn Íþróttamaður Borgarfjarðar
2015, annað árið í röð. Hann hefur
undanfarin þrjú ár æft og leikið með
Fram en knattspyrnu hefur hann
lagt stund á frá unga aldri. „Ég byrj-
aði að æfa fótbolta þegar ég var sex
ára, með Reykdælum,“ segir hann
en bætir því við að aðeins hafi verið
æft á sumrin vegna þess að aðstæður
buðu ekki upp á annað. Hann segir
Umf. Reykdæla enn standa fyrir æf-
ingum á sumrin. Þátttaka sé auðvi-
tað misjöfn milli ára, eins og geng-
ur en hann er þakklátur fyrir að hafa
átt þess kost á því að leggja stund á
íþróttina ungur að árum, slíkt sé alls
ekki sjálfgefið í sveitum landsins.
Helgi leikur stöðu framherja og
líkar vel að vera fremsti maður vall-
arins. „Ég hef nánast alltaf spilað
frammi og kann best við mig þar.
Það er mín uppáhaldsstaða,“ segir
Helgi og er ekki í vafa um hvað góð-
ur framherji þarf að hafa til brunns
að bera. „Góður framherji þarf að
hafa góðar staðsetningar og tilfinn-
ingu fyrir því hvar boltinn lend-
ir eftir skot eða fyrirgjafir. Þessi til-
finning fyrir því hvar boltinn lend-
ir er líklega ekkert sem maður æfir,
annað hvort hefur maður hana eða
ekki,“ útskýrir Helgi; „hraði er góð-
ur kostur en mikilvægast af öllu er
auðvitað að geta klárað færin,“ bæt-
ir hann við.
Æfir átta sinnum í viku
Aðspurður hvað hann telji að
íþróttamaður þurfi að hafa til að
ná árangri í íþrótt sinni hikar Helgi
stutta stund en segir svo: „Ég held að
mikilvægast sé að hafa mikla ástríðu
fyrir íþróttinni, æfa mikið og gefa
alltaf allt sem þú getur á hverri ein-
ustu æfingu og í leikjum.“ Hann
ráðleggur ungum og upprennandi
íþróttamönnum að leggja sig alla
fram á æfingum. „Það skiptir gríð-
arlega miklu máli ef maður ætlar að
taka framförum.“ Hann bætir því
við að mikilvægt sé að gæta þess
að fá góðan nætursvefn og næra sig
vel. „Mataræðið skiptir miklu máli.
Eftir að ég fór til næringarfræðings
breyttist mitt mataræði mjög mik-
ið. Ég hætti til dæmis eiginlega al-
veg að drekka gos og fæ mér ekki
oft nammi. Ég hætti öllum þess-
um jukk mat og óhollustu. Núna
samanstendur grunnurinn af mínu
mataræði af ferskum fiski, kjöti og
kjúklingi í staðinn fyrir að fara á
KFC eða aðra skyndibitastaði eins
og ég gerði áður,“ segir Helgi.
Engan þarf að undra að gott
mataræði skipi stóran sess í lífi
Helga. Hann æfir að jafnaði átta
sinnum frá mánudegi til föstudags,
fimm sinnum með Fram og þrisvar
í skólanum, en Helgi stundar nám
til stúdentsprófs á afreksíþrótta-
sviði Borgarholtsskóla. „Ég æfi
stundum aukalega um helgar. Þá
bara einn míns liðs uppi í sveit og
svo eru landsliðsæfingar sem ég tek
þátt í ef ég er valinn í hópinn,“ seg-
ir hann. „Best er þó að geta hvílt
sig um helgar. Þá nær maður að
hvílast og endurnæra sig eftir vik-
una og getur svo aftur tekið vel á
því í næstu viku,“ bætir hann við.
Aðspurður segir Helgi knatt-
spyrnuiðkun sína ekki taka tíma
frá afþreyingu, öðru félagslífi eða
áhugamálum. „Ég veit ekki hvað ég
myndi annars gera,“ segir hann og
„Mikilvægast að hafa
mikla ástríðu fyrir
íþróttinni“
-segir Helgi Guðjónsson knattspyrnu-
maður og Íþróttamaður Borgarfjarðar
Helgi Guðjónsson (fyrir miðju) var á dögunum kjörinn Íþróttamaður Borgar-
fjarðar, annað árið í röð. Ljósm. bhs.