Skessuhorn - 27.01.2016, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 201618
Sjávarútvegsfyrirtækið KG Fisk-
verkun í Rifi er í sókn. Rétt fyr-
ir jólin fékk fyrirtækið skip númer
tvö í flota sinn. Það er línuveiðar-
inn Faxaborg SH. Skipið var keypt
notað en endurbætt mjög mikið í
skipasmíðastöð í Njarðvík áður en
því var siglt til heimahafnar í Rifi.
Fyrir átti KG Fiskverkun línuskip-
ið Tjald SH. Árið 2007 flutti fyrir-
tækið í nýtt og stórglæsilegt hús á
hafnarsvæðinu í Rifi þar sem unnin
hafa verið söltuð þorskflök í rúm-
lega 2000 fermetra vinnslusal. Nú
er verið að byggja 750 fermetra
nýtt húsnæði til viðbótar við þetta
sem standa á tilbúið í vor. Aukn-
ingin á vinnsluplássi verður þannig
veruleg. „Við framleiðum eingöngu
söltuð fiskflök úr þorski og svo að-
eins af löngu og keilu. Nær öll okk-
ar framleiðsla fer til eins kaupanda
í Barelona á Spáni. Þannig hefur
það verið síðan 1996. Það er rétt nú
upp á síðkastið að við höfum aðeins
prófað að selja á Ítalíumarkaði,“
segir Hjálmar Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri og aðaleigendi KG
Fiskverkunar.
Golþorskurinn er
kominn aftur
KG Fiskverkun er umsvifamikið
fyrirtæki á Snæfellsnesi. „Við höf-
um verið að framleiða um þúsund
tonn árlega af söltuðum afurð-
um. Hér í landvinnslunni hjá okk-
ur starfa um 25-30 manns. Síðan
eru sjómenn á Tjaldi og Faxaborg,“
segir Hjálmar. Í heildina starfa um
55-60 manns hjá KG Fiskverkun
bæði á sjó og landi. Þar af eru 21
á Tjaldinum og 6 á Faxaborg. Auk
þess skapar fyrirtækið ýmis afleidd
störf svo sem í iðn- og tæknigrein-
um. Í máli Hjálmars kemur fram að
öll landvinnslan er til dæmis nán-
ast öll með íslenskum tækjabúnaði
og Faxaborg SH var endurnýjuð í
skipasmíðastöð hér á landi.
„Allt hráefni í okkar vinnslu
hefur komið úr afla línubátsins
Tjalds SH sem er í eigu fyrirtæk-
isins. Þorskurinn fer til okkar en
hitt fer á markað. Nú síðast bætt-
ist svo nýr bátur við. Það er Faxa-
borg SH sem einnig er með beitn-
ingarvél eins og Tjaldur. Hún á að
landa ferskum afla hingað í vinnsl-
una á tveggja sólarhringa fresti.
Tjaldur er svo stílaður á að koma
inn á fimmta degi nema það veiðin
sé þess betri og hann þurfi að koma
inn fyrr. Ástæða þess að við bætum
við nýju skipi er sú að við viljum
stækka fyrirtækið aðeins meira og
kaupin á Faxaborg eru liður í því.
Við höfum ekki keypt til okkar afla-
heimildir af því tilefni enn, en erum
þó opin fyrir slíku. Vonandi vaxa
veiðiheimildirnar síðan á komandi
árum,“ segir Hjálmar.
Enginn vafi er á því að þorsk-
stofninn er í vexti og það gef-
ur væntingar. Hjálmar hefur starf-
að í sjávarútveginum allt sitt líf
og þekkir því sveiflurnar vel. „Ég
held að hrygningarstofn þorsksins
við Ísland í dag sé miklu stærri en
menn vilja viðurkenna. Við sjáum
til dæmis að stærðin er allt önnur á
öllum þorski allt í kringum landið.
Í dag erum við að fá miklu, miklu
stærri fisk heldur en fyrir sjö til tíu
árum síðan. Það er mikill munur á.
Golþorskurinn er kominn aftur,“
segir hann.
Þorskurinn styrkist
mikið
Tölur úr vinnslunni sanna síð-
astnefndu fullyrðingu Hjálm-
ars. Hann lýsir því: „Við flokkum
þorskaflann okkar um borð í Tjald-
inum í tvo flokka, það er fiska und-
ir og yfir 75 sentímetra á lengd. Við
erum með margar veiðiferðir núna
þar sem um tíu prósent línuaflans
er fiskur undir 75 sentímetrum.
Ég man eftir því þegar meðalvigt-
in á óslægðum línuþorski var bara
1,9 kíló og 2,2 kíló þegar hann var
vænn. Það var um og eftir 1980.
Nú finnst okkur smátt ef smáfisk-
urinn undir 75 sentímetra lengd er
2,2 kíló slægður. Það er ekki annað
að sjá en þorskurinn sé vel haldinn
og hafi nóg æti. Maður heyrir jafn-
vel nú upp á síðkastið frá togurun-
um að stóri þorskurinn sé byrjað-
ur að éta minni þorska. Okkar sjó-
menn hafa einnig aðeins orðið varir
við slíkt hjá þorskinum sem veiðist
á línuna.“
Hjálmar segir einnig að þorskur-
inn við Ísland sé búinn að breytast
mikið. „Fyrir nokkrum árum þeg-
ar við byrjuðum að róa austur fyr-
ir land þá var mun meiri nýting í
fiskinum þar heldur en hérna meg-
in. En það var meira los í fiskin-
um þaðan og hann var dekkri. Nú í
dag er nýtingin orðin mjög góð hér
vestanmegin landsins og fiskurinn
hér er ljósari og betra hráefni í okk-
ar afurðir en fiskur að austan.“
Átti að byrja fyrr að
bæta við kvótann
Hjálmar telur sjálfur að aflaheim-
ildir í þorski hafi verið að aukast
of hægt frá ári til árs. „Við hefð-
um mátt byrja fyrr að bæta við
kvótann þó þessar aukningar
hefðu kannski ekki þurft að koma
í stærri þrepum. Við höfum set-
ið af okkur sóknarfærin. Á árun-
um 2009-2011 vantaði mun meira
af þorski á markaði. Allar aðstæð-
ur á mörkuðum voru afar hagfelld-
ar og verðin í hámarki. Þá hefð-
um við átt að auka meira við kvót-
ann og við misstum þetta framhjá
okkur. Gott og öruggt framboð af
fiski skiptir einnig miklu máli. Ef
við getum sent þorskinn jafnar inn
á markaði þá eykur það eftirspurn.
Við þyrftum að geta haft þetta eins
og í eldislaxinum þar sem fram-
boðið er jafnt og stöðugt. Okk-
ar vara, þeirra sem erum að salta
og frysta, á alltaf að vera til af því
við erum með svo langan líftíma á
þessum vörum. Þannig eru kröf-
urnar bara í dag.“
Íslenskur sjávarútvegur er að
mati Hjálmars Kristjánssonar vel
undir það búinn að veiða meira
og auka hráefnisvinnslu á bol-
fiski. „Vinnslugetan bæði til sjós
og lands í íslenskum sjávarútvegi
er næg í dag til að taka á móti tölu-
verðri kvótaaukningu í þorski.
Fiskiskipaflotinn er að mörgu leyti
vannýttur og það er nóg af hús-
næði og tækjakosti sem nýta mætti
mun betur en gert er er í dag. Þetta
er meðal ástæða þess að aukning í
þorskkvóta mun ekki skila sér fylli-
lega í samsvarandi fjölgun á störf-
um í greininni. En nýtingin á
framleiðslutækjunum verður betri.
Ég hugsa að allir séu með borð
fyrir báru í vinnslunum í dag til að
taka við meira af hráefni án þess að
þurfa að stækka mikið við sig.“
Hóflega bjartsýnn
á 2016
Aðspurður segir þessi reyndi út-
gerðar- og fiskvinnslumaður að að
síðasta ár hafi verið ágætt fyrir KG
Fiskverkun. „Það var heldur lak-
ara en árið á undan sem var mjög
gott, en samt ekkert sem hægt er
að kvarta yfir. Segja má að efna-
hagslífið almennt í heiminum hafi
skapað okkur lakara rekstrarskil-
yrði 2015 heldur en 2014. Vissu-
lega var sumt hagfellt eins og þró-
un í olíuverði. Við verðum þó að
hafa í huga að olíuríkin kaupa líka
vörur og greiða fyrir þær meðal
annars með tekjum sínum af olíu-
sölu. Ef tekjur þeirra minnka þá
dregur úr kaupgetu hjá þeim. Verð
á afurðum til þeirra lækka. Hjá
okkur er það þannig að afurða-
verð frá okkur til slíkra ríkja hefur
lækkað meira heldur en sem nem-
ur lækkun á olíuverði. Aukaafurðir
úr okkar vinnslu svo sem hausar og
hryggir fara í fiskþurrkun þar sem
stærsti markaðurinn er olíurík-
ið Nígería í Afríku. Þar hafa verð
lækkað mjög mikið, það má segja
að hryggir og hausar séu verðlitl-
ar afurðir í dag. Þetta bitnar auð-
vitað á okkur sem seljum hráefnið
í þessa framleiðslu. Spánn sem er
okkar aðal markaðsland lenti svo
í miklum efnahagshremmingum
fyrir nokkrum misserum síðan eins
og reyndar mörg önnur lönd Evr-
ópu. Batinn þar hefur aðeins látið
á sér kræla en hann er mjög hæg-
ur. Afurðaverð á saltfiski frá okkur
var aðeins upp á við á síðasta ári en
mjög lítið, allavega hjá okkur.“
Hjálmar segist hóflega bjartsýnn
í upphafi nýs árs. „Ég býst við að
veiðin verði góð. Gæði fisksins
verða mikil og þægilegt að sækja
hann á miðin. Ég veit hins vegar
ekki hvað ég skal segja um mark-
aðsaðstæður. Þar eru fleiri blik-
ur á lofti svo sem í alþjóðamálum.
Efnahagskerfi heimsins gæti farið
að hiksta. Einhver sagði að ef Kína
hnerraði þá fengi heimurinn kvef.
En við erum auðvitað að framleiða
matvöru og sama hvernig allt fer
þá þarf fólk að borða. Það verður
ekkert vandamál að selja vöruna,
spurningarnar munu kannski frek-
ar snúast um verð.“
mþh
Hjálmar Kristjánsson framkvæmdastjóri KG Fiskverkunar:
„Þorskstofninn hefur styrkst mikið“
Hjálmar Kristjánsson framkvæmdastjóri KG Fiskverkunar í Rifi á Snæfellsnesi.
Línuskipið Tjaldur SH við bryggju framan við hús KG fiskverkunar sem tekið var í
notkun 2007.
Línuskipið Faxaborg SH kemur fyrsta sinni til heimahafnar í Rifi rétt fyrir jól.
Ljósm. af.
Bygging KG Fiskverkunar er glæsilegt hús. Nú er verið að stækka framleiðslu-
hlutann um rúmlega þriðjung og á nýi hlutinn að verða tilbúinn í vor.