Skessuhorn - 27.01.2016, Qupperneq 22
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 201622
Í síðasta tölublaði birtist grein eft-
ir Halldóru Jónsdóttur bæjarbóka-
vörð á Akranesi. Þar segir hún frá
ýmsu í starfsemi Ljósmynda- og
Héraðsskjalasafns. Ljósmyndasafn-
ið hýsir myndir fjölda ljósmyndara,
bæði faglærðra og áhugaljósmynd-
ara en í safninu eru um 44.000
myndir. Markmið Ljósmyndasafns
Akraness er að gefa heildarmynd
af þeirri ljósmyndamenningu sem
stunduð hefur verið í bænum frá
því að byrjað var að taka ljósmyndir
á Akranesi. Til að afla sem mestra
heimilda hefur fólki verið boð-
ið á vinnufundi í safninu þar sem
skráðar eru heimildir um myndir
sem eru í fórum safnsins. Á með-
fylgjandi mynd eru þátttakendur á
fyrsta vinnufundi ársins sem hald-
inn var síðastliðinn miðvikudag.
Lengst til hægri er Nanna Þóra Ás-
kelsdóttir deildarstjóri Ljósmynda-
safnsins. mm/ Ljósm. hj.
Vinnufundur hjá
Ljósmyndasafni Akraness Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody‘s hefur tekið saman
skýrslu um almennar horf-
ur í rekstri íslenskra orku-
og veitufyrirtækja. Grein-
endur fyrirtækisins telja að
Orkuveita Reykjavíkur (OR)
muni njóta almenns vaxtar
í efnahagslífinu hér á landi,
ekki síst vegna vaxandi eft-
irspurnar eftir rafmagni og
heitu vatni. Á vef OR segir
að í frétt Moody‘s um skýrsl-
una sé haft eftir Ericu Gauto Flesch,
greinanda hjá Moody‘s, að fyrirtæk-
ið búist við að þróun í íslenska hag-
kerfinu muni styrkja fjárhag tveggja
stærstu orku- og veitufyrirtækja
landsins, Orkuveitu Reykja-
víkur og Landsvirkjunar, þó
OR fremur þar sem megin-
hluti starfsemi fyrirtækisins
sé veiturekstur, þ.e. þjónusta
með sérleyfi á Íslandi. „Sam-
kvæmt spá Moody‘s muni eft-
irspurn eftir rafmagni aukast
um 3% á ári fram til 2018 og
eftir heitu vatni um 1,5% á ári.
Þá er þess getið að styrking ís-
lensku krónunnar gagnvart er-
lendum gjaldmiðlum hafi já-
kvæð á stöðu skulda OR, sem að
mestu eru í erlendri mynt.“ mm
Matsfyrirtæki spáir vexti veitufyrirtækja
Aukin eftirspurn verður eftir virkjun jarðvarma.
Ljósm. or.is
Á bóndadaginn voru Borghrepp-
ingar í hópi þeirra sem fyrstir
fögnuðu þorra í félagsheimilinu
Valfelli, en í Borgarhreppnum er
reyndar haldið Hreppsmót. Glatt
var á hjalla og snæddur góður mat-
ur og að lokum stiginn dans. Með-
al skemmtiatriða var spurninga-
keppni þar sem sessunautar við
borð skipuðu liðin. Í verðlaun var
myndataka og vilyrði fyrir birt-
ingu í Skessuhorni. Á meðfylgj-
andi mynd eru sem sagt gáfuð-
ustu Borghreppingarnir 2016 með
góðri kveðju frá Hreppsmóts-
nefnd. mm/ Ljósm. þs.
Gáfuðustu Borghreppingarnir
fengu að launum mynd í Skessuhorni
Haraldur Benediktsson bóndi og
alþingismaður á Vestra-Reyni í
Hvalfjarðarsveit fagnaði 50 ára af-
mæli sínu á laugardaginn. Afmæl-
isveislu hélt hann í félagsheimilinu
Miðgarði ásamt Lilju Guðrúnu eig-
inkonu sinni, börnum og öðru skyld-
fólki. Haraldur sagði sjálfur að ann-
að hús hefði aldrei komið til greina
til að halda slíkan viðburð. Þetta
ágæta félagsheimili Innnesinga var
þó í smærra lagi þegar mið er tek-
ið af þeim fjölda vina og vinnufé-
laga sem sáu ástæðu til að heiðra af-
mælisbarnið á þessum tímamótum.
Glatt var á hjalla, haldnar skemmti-
legar ræður og afmælisbarninu
færðar ýmsar gjafir, þrátt fyrir að
hafa staðfastlega afþakkað þær með
öllu. Veislustjóri var Guðlaugur Þór
Þórðarson, Guðbjörg Haraldsdótt-
ir var formaður afmælisnefndar, Jó-
hannes Kristjánsson eftirherma fór
á kostum á ávarpi sínu og þing-
menn, jafnaldrar og skyldfólk Har-
aldar steig á stokk. Greinilegt er að
fólki er afar hlýtt til Haraldar á Reyn
enda hefur hann verið farsæll í störf-
um sínum og góður fjölskyldufaðir.
Fólki var tíðrætt um störf hans fyrir
bændur og nú eftir að þingmennsk-
an tók við hefur hann verið trúr því
verkefni að færa ljósleiðara inn á öll
heimili landsins fyrir 2020.
Gaman er að segja frá því að þeg-
ar afmælisbarnið bauð gesti vel-
komna gat hann þess að hann hafi
í fyrsta skipti farið inn í vínbúð dag-
inn áður. Þar sem hann væri ung-
legur þótti honum ákveðið öryggi í
að taka einn 25 ára með sér, til að
tryggt yrði að hann fengi nú örugg-
lega afgreiðslu. Líklega þjakar hann
ekki sú staðreynd að ekki er enn
hægt að kaupa vín í matvörubúðum
og beindi orðum sínum sérstaklega
til Vilhjálms lögregluþjóns og sam-
þingmanns sem þarna var staddur
ásamt fleirum úr þingliðinu.
mm
Fagnaði hálfri öld með vinnufélögum og vinum
Haraldur Benediktsson og Lilja Guðrún Eyþórsdóttir ásamt börnum sínum, þeim
Eyþóri, Guðbjörgu og Benediktu.
Þeir Brynjar Níelsson og Jón Gunnarsson, samflokksmenn Haraldar, færðu bónd-
anum þennan glæsilega hana að gjöf. Haninn var ekki kominn úr kassanum þegar
hann hafði fengið nafnið Jón Brynjar.
Gamlir vinir og nágrannar hér á spjalli. Frá vinstri Ragnheiður þingflokks-
formaður, Einar og Erna í Einarsbúð, Anton og Ingileif á Ytri-Hólmi og Guðjón og
Guðný af Skaganum.
Afmælisbarnið sagði sögur af því þegar Guðlaugur Þór veislustjóri hafði kennt
sér að nota skotvopn. Fyrsta fórnarlamb hans var þessi einmana fóðurkálsplanta
sem Guðlaugur fékk mynd af. Guðlaugur hafði hinsvegar í misgripum skotið
aligæsina á bænum í fyrstu veiðiferð þeirra. Hluti gesta í Miðgarði, en fullt var út úr dyrum í þessu notalega félagsheimili Innsveitunga.