Skessuhorn - 27.01.2016, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 2016 23
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfang-
ið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánu-
dögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að
fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að
tölvupósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akra-
nesi (athugið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi
á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum
lausnum og fær vinningshafinn bókagjöf frá Skessu-
horni.
49 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu
viku. Lausnin var: „Heilsan fylgir hófi.“ Vinnings-
hafi er: Ágúst Guðmundsson, Kveldúlfsgötu 15, 310
Borgarnesi. mm
Máls-
háttur
Fúi
Snertill
Fát
Krókur
Sat
Læti
Lita
Argur
Sollur
Skel
Linir
Við-
burður
Kvísl
Menn
Glund-
ur
Ruglið
Þar til
Spyr
Hnjóð
Dá
Röð
Tölur
Goð
Lína
Á skipi
Band
Kvað
Korn
Rymja
Heilla-
ríkur
Bernska
6
Skv-
ompa
Fagur
Fágun
Alda
Klatti
Tölur
Sóun
Slappir
Tóm
Kona
Vissa
Hvíldi
Umsvif
Angan
Vesæl
Skinn
Bardagi
Ábreiða
Skoðar
4
Tenging
Kvaka
Önd
Býsn
Átt
Sköpun
Vagga
Skokk
Utan
Svall
Aml
Sk.st.
Ljósker
7 Sker
Reifi
1
Spurn
Skjól-
flík
Lötur
Hreinsa
Árla
Rán
Klútur
Dökkur
Órar
Tvenna
Span
Einn
Flón
Gjálfur
Forsögn
Gól
Aðstoð
Halur
Kven-
fugl
Samhlj.
Úir
Missir
Skyn
Drykkur
Samhlj.
Tók
2
3 Dýra-
hljóð
Glatt
Dýrka
Elfum
Hlupu
Nothæf
2000
Sniðug
Matur
Leit
8
Upphr.
Áhald
Harðæti
Bogi
Óreiða
Röð
Röð
5
Erfiði
Reikul
Svertir
Spil
Lík
Holl-
ustan
1 2 3 4 5 6 7 8
Rúmlega 50 nýir nemendur hófu
skólagöngu við Háskólann á Bif-
röst eftir áramótin. Flestir hófu nám
í grunn- og meistaranámi eða 39 en
aðrir byrjuðu annars vegar í Há-
skólagátt og hins vegar í Verslun-
arstjórnun á Símenntunarstigi. Er
þetta nokkur fjölgun frá í fyrra þeg-
ar um 40 hófu nám í janúar 2015.
Þetta er því annað árið í röð sem
tiltölulega stór hópur kemur inn í
skólann á vorönn og er mun stærri
en áður tíðkaðist. „Háskólinn á Bif-
röst horfir fram á betri tíma. Rekstur
skólans hefur verið að styrkjast með
fjölgun nemenda á síðustu árum og
stefnt er að frekari vexti í skólanum.
Þróun og nýjungar í námsframboði
hafa skilað árangri. Skólinn verður
hundrað ára árið 2018 og markmið-
ið er að hann verði þá öflug stofn-
un sem gegnir með sóma því aldar
gamla hlutverki sínu að mennta fólk
til forystu í atvinnulífinu og samfé-
laginu,“ segir Vilhjálmur Egilsson
rektor Háskólans á Bifröst.
Alls eru um 600 nemendur skráð-
ir til náms við Háskólann á Bifröst á
vorönn 2016 sem er svipaður fjöldi
og var á sama tíma í fyrra. Flestir
eru nemendurnir í grunn- og meist-
aranámi eða tæplega 500. Undan-
farin ár hefur nemendafjöldinn far-
ið vaxandi við Háskólann á Bifröst
og á það við á öllum skólastigum; sí-
menntun, Háskólagátt, grunn- og
meistaranámi.
mm/fréttatilk.
Um sex hundruð nemend-
ur við Háskólann á Bifröst
Vetrarferðamennska er hugtak tengt
ferðaþjónustunni sem heyrist æ oft-
ar nefnt. Þegar farið er um Vestur-
land er augljóst að ferðamönnum
hefur fjölgað mjög um vetrartím-
ann í landshlutanum. Blaðamað-
ur Skessuhorns fór um Snæfellsnes
á miðvikudag í síðustu viku. Á ferð
fyrir Búlandshöfða, beint handan
þjóðvegarins þar sem útsýnisstað-
urinn og bílastæðið er á höfðanum,
þaðan sem sjá má vítt og breitt yfir
Breiðafjörð og nágrenni, voru fjór-
ir menn að klifra í klakabrynjuðu
bergstálinu sem gnæfir yfir þjóð-
veginn.
Þegar þeir voru teknir tali kom
fram að þeir væru komnir í heim-
sókn hingað til lands til að stunda ís-
klifur og fjallamennsku að vetri. Að-
stæður til þess á Íslandi væru hreint
einstakar. Þeir ætla að vera hér í um
tveggja vikna skeið og athafna sig á
Vesturlandi og við Vatnajökul. „Við
klifum upp á Kirkjufell í gær. Það
tók okkur þrjá tíma að komast upp
og þrjá tíma að fara niður. Síðan
gengum við einnig á Snæfellsjökul
en komumst ekki alveg upp á efsta
topp því það var svo skýjað. Við ætl-
uðum að slaka á í dag og sleppa öllu
klifri en þegar við ókum framhjá
þessum ísvegg hér við þjóðveginn
stóðumst við ekki mátið að klífa
hann. Þessi staður hér í Búlands-
höfða er mjög fínn og magnað að
finna svona við hliðina á bílastæði,“
sögðu þeir glaðbeittir í bragði.
Allir eru frá borginni Grenoble í
suðaustur Frakklandi en hún stend-
ur við rætur frönsku Alpanna.
Fjallamennskan er þeim Domini-
que Moreau, Sébastien Kraken,
Antoine Martin-Cocher og Théo
Turpin því í blóð borin. „Við stund-
um allir fjallaklifur. Ísklifur er hluti
af því. Þetta er mjög gaman. Að-
stæður hafa ekki verið mjög góðar
til að stunda slíkt í fjöllum í Frakk-
landi nú í vetur. Það hafa verið hlý-
indi og erfitt að finna góða staði þar
sem klettar er þaktir ís. Því fórum
við til Íslands.“ Auk þess að vera
útivistarmenn þá eru þeir Domini-
que og Antoine ljósmyndarar og
halda úti eigin vefsíðum þar sem
þeir segja frá ævintýrum sínum og
sýna verk sín. Þar eiga sjálfsagt eft-
Ísklifurkappar á ferð um Vesturland
ir að birtast heillandi ljósmyndir frá
ferðalagi þeirra til Íslands nú í janú-
ar (sjá adventure-nature.com, an-
toinemc.fr og Antoine MC photog-
raphie á Facebook).
Eftir nokkurra daga dvöl á Vest-
urlandi sögðust þeir mjög hrifnir af
aðstæðum í landshutanum. Á ferð-
um þeirra hafði eitt fjall vakið sér-
staka athygli þeirra. „Okkur lang-
ar til að reyna að klífa Skessuhorn
nú á næstu dögum og bíðum bara
færis að það verði gott veður. Það
er mjög fallegur og freistandi tind-
ur. Þegar við erum búnir hér á Vest-
urlandi ætlum við svo að halda til
suðausturhluta landsins og skoða
Vatnajökul og stunda ísklifur þar.“
mþh
Félagarnir fjórir frá Grenoble við frönsku Alpana og vanir fjallamennsku. Frá vinstri:
Antoine Martin-Cocher, Sébastien Kraken, Dominique Moreau og Théo Turpin.
Hér eru kapparnir komnir á topp Kirkjufells. Ljósm. af Facebook síðu þeirra; Antoine
MC photographie.
Sébastien klífur ísvegginn á meðan
Antoine Martin-Cocher beið fyrir ofan
og ljósmyndaði.
Sébastien Kraken gerir sig kláran til að klífa ísbrynjuna sem huldi bergstál Búlands-
höfða.