Skessuhorn - 27.01.2016, Síða 24
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 201624
Það var glatt á hjalla hjá konunum
í Sorptimistaklúbbi Akraness þeg-
ar lagt var í árlegan pönnuköku-
bakstur fyrir bóndadaginn síðastlið-
inn fimmtudag. Framtak klúbbfélaga
hefur mælst vel fyrir í fyrirtækjum í
bæjarfélaginu sem fyrir löngu eru
orðin fastir áskrifendur að pönnu-
kökum að morgni bóndadags. Að
sögn Önnu Láru Steindal blaðafull-
trúa Soroptimista á Akranesi hófst
baksturinn síðdegis á fimmtudeg-
inum og stóð fram á rauða kvöld.
Klukkan sex að morgni var svo haf-
ist handa við að bæta bæta í sykri og
rjóma, pakka pönnsunum og aka með
sendingarnar í fyrirtækin. „Það eru
um 80 fyrirtæki sem kaupa af okk-
ur og taka þessu afskaplega vel. Fyrir
það erum við þakklátar,“ sagði Anna
Lára. Í klúbbnum eru um 30 félagar
og af þeim bökuðu 22 konur að þessu
sinni. Pönnukökurnar runnu ljúflega
niður hjá starfsmönnum fyrirtækja
en geta má þess að uppskriftin er úr
smiðju Ólínu Jónsdóttur kennara.
„Við bökuðum 3400 pönnukökur
að þessu sinni. Þetta er okkar helsta
fjáröflun, en Soroptimistar eru al-
þjóðleg samtök kvenna sem styrkja
kynsystur sínar. Við komum sam-
an einu sinni í mánuði að vetrinum
í húsnæði HVER og það eru ein-
mitt konur þar sem notið hafa góðs
af fjáröflun okkar í gegnum sérstakan
námssjóð,“ segir Anna Lára.
mm
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
DAGLEGIR VÖRUFLUTNINGAR
Stykkishólmur – Reykjavík
B. Sturluson ehf.
Nesvegi 13, Stykkishólmi
438 1626 / 862 1189
Vélsmiðja BA
Nýsmíði • Vélaviðgerðir
Breytingar • Viðhald
Vélsmiðja BA • Sólbakka 25 • Borgarnesi • bhk@vortex.is
Björn Kristjánsson 894 – 3336
Arnar Björnsson 849 – 9341
SMÍÐAVINNA – MÚRVERK RG ehf
Bárugötu 19, Akranesi • Sími 821 2490 • ragnar4646@gmail.com
Pennagrein
Íþróttabandalag Akraness óskar öll-
um gleðilegs nýs árs með þökk fyr-
ir gott samstarf og stuðning á liðnu
ári. Við höfum trú á að árið 2016
verði gott ár fyrir okkur öll, sjötug-
asta starfsár ÍA með fullt af tækifær-
um sem við ætlum bæði að nýta og
njóta. Framundan eru mörg spenn-
andi verkefni á íþróttasviðinu og
samfélagið okkar á Akranesi mun
vaxa og dafna.
Á þessu starfsári mun Íþrótta-
bandalag Akraness opna sérstaka
þjónustumiðstöð í íþróttahúsinu
við Vesturgötu og er henni ætlað
að þjónusta íþróttafólk og almenn-
ing betur en nú er gert. Við teljum
mikilvægt að veita framúrskarandi
þjónustu varðandi íþróttamálefni.
Vera ávallt til staðar til að ræða góð-
ar hugmyndir og fylgja framfaramál-
um eftir.
Eins og flestir vita er Íþrótta-
bandalag Akraness breiðfylking átj-
án aðildarfélaga sem halda úti um-
fangsmiklu íþróttastarfi sem nær til
allflestra heimila á Akranesi. Á þriðja
þúsund einstaklinga koma að starfinu
með beinum hætti. Við höfum metn-
að til að halda merki ÍA og Akraness
hátt á lofti í öllum íþróttagreinum.
Við viljum einnig mæta ólíkum þörf-
um einstaklinga og samfélags með
áherslu á uppeldisleg gildi og öfl-
ugt félagsstarf. Í samræmi við þenn-
an vilja gengst ÍA á afmælisári fyrir
fjölbreyttum námskeiðum og fræðslu
fyrir ólíka hópa s.s. fyrir afreksmenn
í íþróttum, foreldra íþróttamanna,
stjórnarfólk í íþróttafélögum, þjálf-
ara og fólk sem vill stunda heilsuefl-
ingu.
Kjörorð ÍA sem íþróttabandalags
við að efla íþróttir á Akranesi má
setja fram á eftirfarandi hátt:
Að koma saman er byrjun,
Að ræða saman eru framfarir,
Að vinna saman er árangur.
Íþróttabandalag Akraness hvetur
öll aðildarfélög og félagsmenn sína til
að hlúa vel og jafnt að uppeldisstarfi
sem afreksstarfi.
Eðli íþrótta kall-
ar stundum á að menn fylgjast frek-
ar með árangri í einstökum íþrótta-
greinum en uppeldislegum gildum.
Hvoru tveggja verður þó ekki skil-
ið að án þess að hafa áhrif á hinn
þáttinn. Við getum sagt að uppeld-
isleg gildi og afreksleg gildi séu ein-
faldlega tvær hliðar á sama peningn-
um og annað geti ekki án hins verið.
Áherslur á afreksstarf auka í sjálfu sér
ekki nýliðun í félagi og aukin nýliðun
tryggir ekki farsælt afreksstarf. Það
þarf hvoru tveggja til að ná árangri.
Kjarnastarf ÍA liggur einmitt í
heildstæðri nálgun en ekki í aðgrein-
ingu milli afreks og annars. Í þessu
sambandi fagnar framkvæmdastjórn
bandalagsins auknu félagsstarfi,
fræðslu- foreldra- og hópastarfi inn-
an aðildarfélaganna. Það er fagnað-
arefni að sjá fjölbreytta nálgun í þjálf-
un, aukið samstarf milli íþróttagreina
og margskonar hópefli. Í sumum ár-
göngum eru yfir 90% barna á Akra-
nesi þátttakendur í starfi íþrótta-
hreyfingarinnar og það er samfélags-
leg ábyrgð okkar að huga að félags-
legum þáttum og efla æsku Akraness
á allan hátt.
Við hvetjum fólk á öllum aldri
til að stunda íþróttir og almenna
heilsueflingu. Góð heilsa er ómet-
anleg auðlind sem við skulum gæta
að með öllum ráðum. Margt er í
boði til heilsueflingar hér á Akranesi
og áhugasamir geta kynnt sér fram-
boð íþróttagreina á heimasíðu okk-
ar www.ia.is. Nýir félagar eru sér-
staklega boðnir velkomnir í okkar
hóp. Hjá aðildarfélögum ÍA er alltaf
nóg um að vera og verkefni við allra
hæfi. Það verða ekki allir afreksmenn
í íþrótt en það geta allir gefið og þeg-
ið í íþróttastarfi.
Tökum þátt í íþróttastarfi því ÍA
er þar sem hjarta Akraness slær.
Sigurður Arnar Sigurðsson, for-
maður ÍA
Helga Sjöfn Jóhannesdóttir, vara-
formaður ÍA
Tökum þátt í íþróttastarfi,
leggjum áherslu á bæði
uppeldis- og afreksgildi Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggð-
ar 19. janúar síðastliðinn var tekin
til umfjöllunar fyrirhuguð breyt-
ing Íslandspósts á póstdreifingu til
dreifbýlis sem gerð er samkvæmt
heimild sem Póst- og fjarskipta-
stofnun gerði í samræmi við reglu-
gerð innanríkisráðuneytisins. Þar
var Íslandspósti heimilað að fækka
dreifingardögum í dreifbýli niður í
annan hvern virkan dag í stað dag-
legrar dreifingar eins og verið hef-
ur. Kemur það þannig út að aðra
hverja viku verða tveir dreifingar-
dagar og vikuna á móti þrír dag-
ar. Breytingin mun ekki hafa áhrif
á dreifingu á póststöðvarnar sjálfar
og verður því starfsemi pósthússins
í Búðardal með sama móti þegar frá
er talin póstdreifingin frá Búðardal
til dreifbýlis. „Sveitarstjórn Dala-
byggðar mótmælir boðaðri þjón-
ustuskerðingu og álítur að um sé
að ræða óþolandi mismunun milli
dreifbýlis og þéttbýlis. Sérstaklega
er mótmælt þeirri túlkun Íslands-
pósts að dreifing tvo daga vikunn-
ar uppfylli kröfur reglugerðarinn-
ar. Auk þess þykir dreifing með tvo
daga aðra vikuna og þrjá daga hina
vikuna vera ávísun á rugling og
snöggtum skárra væri að hafa þrjá
dreifingardaga allar vikur.“
Þá segir einnig í ályktun sveit-
arstjórnar að Dalabyggð sé dreif-
býlt sveitarfélag og hafa íbúar nýtt
hingað til ágæta þjónustu Íslands-
pósts á margvíslegan hátt. Sem
dæmi hafa bændur getað pantað lyf
hjá dýralækni í símatíma að morgni
og fengið þau með póstinum sam-
dægurs. Sama gildir að einhverju
leyti um sendingar frá apótekinu og
varahluti í búvélar sem eiga til að
bila yfir bjargræðistímann og þurfa
skjóta þjónustu. Einhverjir eru enn
áskrifendur að dagblöðum enda
nettengingar víða þannig að ekki
er boðlegt að reyna að lesa blöð-
in á tölvuskjá. „Með boðari breyt-
ingu geta áskrifendur gert ráð fyrir
að fá dagblöð síðustu fjögurra daga
á þriðjudegi,“ segir í ályktun sveit-
arstjórnar. sm
Dalamenn mótmæla
þjónustuskerðingu Íslandspósts
Bökuðu á fjórða þúsund pönnukökur