Skessuhorn - 27.01.2016, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 201626
Hvernig líst þér á að til
standi að taka upp amerísku
stórmyndina Fast 8 hér í bæ?
Spurning
vikunnar
(spurt á Akranesi)
Valdís Stefánsdóttir:
„Bara vel. Húsmæður á Akranesi
verða líklega duglegar að fara í
göngutúra um Neðri-Skagann.“
Ingþór Sigurðsson:
„Mér líst bara vel á það.“
Þórunn Anna Magnúsdóttir:
„Ég hef bara enga sérstaka skoð-
un á því.“
Björnfríður Björnsdóttir:
„Mér líst illa á það. Það verða
örugglega margar götur lokað-
ar, maður verður lengur á leið
í vinnuna og þetta verður bara
vesen.“
Guðmundur Ingþór Guðjóns-
son:
„Glimrandi vel. Þetta verður
flott kynning fyrir Skagann.“
Inga Elín Cryer sundkona frá Akranesi keppti
um liðna helgi á Reykjavik International (RIG).
Þar synti hún 50, 100 og 200m flugsund og
200m skiðsund. Þetta var fyrsta sundmót árs-
ins í 50m laug og gekk henni nokkuð vel. Hún
bætti m.a. tíma sinn í 50m flugsundi og var
nálægt sínum bestu tímum í hinum grein-
unum. Á mótinu sigraði hún í 100 og 200m
flugsundi, varð í öðru sæti í 50m flugsundi og
200m skriðsundi. Mótið var geysisterkt en þar
voru m.a. keppendur frá Noregi, Danmörku og
Færeyjum auk Íslendinganna.
Inga Elín ætlar nú að leggja meiri áherslu
á flugsundsgreinarnar og 200m skriðsund,
en þar eru mestu möguleikarnir fyrir hana að
ná Ólympíulágmarkinu. Undanfarin ár hefur
hún keppt í langsundsgreinum, 800 og 400m
skriðsundi, en hún hefur ákveðið ásamt þjálf-
ara sínum að hvíla þær greinar fram í mars og
sjá svo til eftir það. „Nú halda áfram æfingar
af fullum krafti og er ég að vinna fulla vinnu
samhliða sundinu. Þannig er álagið nokkuð
mikið, en ég ætla mér að ná ÓL lágmarkinu,“
segir hún. mm
Inga Elín stefnir
að lágmarki á ÓL
Þriðjudaginn 19. janúar síðastliðinn stóð
Sundfélag Akraness fyrir hinu árlega
Bárumóti sem haldið er til minningar um
Báru Daníelsdóttur. Mótið fór fram í Bjarna-
laug og syntu 52 sundmenn úr SA í 50 m
bringusund og 50 m skriðsund í keppninni
um stigahæsta sundmanninn. Mótið er fyr-
ir sundfólk á aldrinum 8-12 ára.
Skemmst er frá því að segja að í meyja-
flokki sigraði Ragnheiður Karen Ólafsdóttir.
Aníta Sól Gunnarsdóttir hafnaði í öðru sæti
og Auður Elsa Kristjánsdóttir í þriðja.
Í sveinaflokki sigraði Alex Benjamín Bjarna-
son en Kristján Magnússon hafnaði í öðru
sæti. Þriðja sætið kom í hlut Rafaels Andra
Williamssonar. kgk
Ragnheiður og
Alex sigruðu á
Bárumótinu
Alex Benjamín Bjarnason
og Ragnheiður Karen Ólafs-
dóttir, Bárumeistarar 2016, með
verðlaunagripina. Ljósm. SA.
Sex klifrarar frá ÍA tóku þátt á móti í Klifurhús-
inu í Reykjavík um liðna helgi. Karen Káradótt-
ir og Sylvía Þórðardóttir kepptu í 8-10 ára flokki
og Hjalti Rafn Kristjánsson í 11-12 ára flokki. Öll
náðu þau stigalágmarki mótsins í sínum flokki
og hlutu aukaverðlaun fyrir vikið. Í unglinga-
flokki 13-15 ára kepptu Ástrós Elísabet Ást-
þórsdóttir, Brimrún Eir Óðinsdóttir og Þorgils
Sigurþórsson og stóðu sig með prýði og var
Ástrós Elísabet var hársbreidd frá því að tryggja
sér verðlaunasæti. Síðasta mót vetrarins verður
haldið í mars og að því loknu verður bikarmót-
ið í apríl þar sem stigahæstu keppendur lands-
ins etja kappi.
Að sögn Þórðar Sævarssonar klifurþjálfara
hefur verið aukning í klifur hjá ÍA á árinu og
má það ekki síst rekja til stækkaðrar aðstöðu,
en stutt er síðan klifurfélagið fékk viðurkenn-
ingu fyrir frábært uppbyggingarstarf frá stjórn
Íþróttabandalags Akraness. mm/þs
Tóku þátt í klifur-
móti í Reykjavík
Blaklið Ungmennafélags Grundar-
fjarðar stóð í ströngu í liðinni viku.
Stelpurnar mættu bikarmeisturum
Aftureldingar í íþróttahúsi Grund-
arfjarðar á fimmtudag. Bikarmeist-
ararnir voru aðeins of stór biti fyr-
ir heimamenn sem töpuðu leiknum
3-0 þrátt fyrir ágætis spretti inn á
milli. Svo áttu stelpurnar bikarleik
gegn HK Wunderblak í Fagralundi
á laugardaginn. Öllu betur gekk í
þeim leik fyrir Grundfirðinga en
leikurinn endaði 3-1 Grundarfirði
í vil og stelpurnar verða því í pott-
inum þegar dregið verður í átta liða
úrslit í bikarkeppni blaksambands-
ins. Drátturinn fer fram 27. janú-
ar en þá kemur í ljós hverjir verða
andstæðingar UMFG í næstu um-
ferð. tfk
Tap og sigur UMFG í blakinu
Leikmenn UMFG fagna í leikslok.
Karlalið Snæfells í körfunni halaði
sér inn gríðarlega mikilvæg stig
þegar það sigraði Hött frá Egils-
stöðum með minnsta mun í hörku-
leik í Stykkishólmi á þriðjudaginn
í Dominos deildinni. Viðureign-
in endaði 90-89. Hér var um mik-
inn spennuleik að ræða þótt leik-
urinn þætti á köflum minna meira
á götubolta en skipulagðar og
vel útfærðar sóknir. Héraðsbúar
komu prýðilega innstilltir til leiks
og náðu í upphafi sex stiga for-
ustu, sem fljótlega í öðrum leik-
hluta var þó unnin niður. Heima-
menn leiddu með 45 stigum gegn
40 í hálfleik. Í síðari hluta leiks-
ins var skammt á milli liðanna á
stigatöflunni en tvö síðustu stig-
in skoraði Sigurður Á Þorvaldsson
af vítalínunni. Hattarmenn fengu
tækifæri til að komast yfir í loka-
sókninni en mistókst að færa sér
það í nyt. Með sigrinum hafa Snæ-
fellingar komið sér í þægilega fjar-
lægð frá fallsæti og geta látið sig
dreyma um sæti í úrslitakeppninni
í vor.
mm/ Ljósm. Eyþór Ben.
Götuboltaspil en naumur sigur karlaliðs Snæfells
Stjórn Knattspyrnufélags ÍA hefur
ákveðið að hinu árlega Norðuráls-
móti polla í knattspyrnu verði flýtt
um eina viku næsta sumar. Í stað
þess að mótið hefði átt að fara fram
um þjóðhátíðarhelgina verður það
nú dagana 10.-12. júní. Að sögn
Magnúsar Guðmundssonar for-
manns KFÍA er ástæðan Evrópu-
meistaramótið í knattspyrnu sem
hefst í Frakklandi 14. júní. Beiðni
um færslu Norðurálsmótsins barst
frá nokkrum íþróttafélögum sem
töldu erfitt að manna ferð á Akranes
vegna þess hversu margir hyggjast
verða í Frakklandi á þessum tíma.
Magnús segir í samtali við Skessu-
horn að búið sé að hafa samband
við öll félögin sem sent hafa lið til
keppni undanfarin ár og býst hann
ekki við neinum forföllum utan eitt
félag sem ekki á heimangengt þessa
helgi. Í stað þess er von á heim-
sókn knattspyrnuliðs frá Græn-
landi sem í fyrsta skipti verður nú
gestalið á Norðurálsmóti. Magn-
ús segir að sem fyrr gæti tilhlökk-
unar hjá foreldrum og aðstandend-
um KFÍA vegna Norðurálsmótsins.
„Það er okkur afar þýðingarmikið
að vel takist til með Norðurálsmót
því það er orðið okkar stærsta fjár-
öflun. Afrakstur af mótinu er nýttur
til að byggja upp yngri flokkastarfið
hjá okkur.“ mm
Norðurálsmótinu flýtt um viku vegna EM
Gunnhildur Gunnars-
dóttir körfuknattleik-
skona í Snæfelli var
síðastliðinn þriðju-
dag útnefnd Íþrótta-
maður Snæfells 2015
og fékk afhentan bikar
og blóm eftir stórleik
Snæfells og Hauka, en
liðin verma toppsæti
deildarinnar. Gunn-
hildur leikur nú með
Snæfelli í körfunni og
átti drjúgan þátt í vel-
gengni liðsins á síðasta
ári þegar Snæfell varð
meistari enn og aftur.
Gunnhildur hefur í
ár skorað um 12 stig í
leik og tekið um fimm
fráköst að jafnaði með
liði Snæfells.
mm/ Ljósm.
Eyþór Ben.
Gunnhildur er íþróttamaður Snæfells 2015
Hér er Gunnhildur ásamt þeim Hjörleifi Kr. Hjörleifssyni formanni Snæfells og Maríu Valdimars-
dóttur stjórnarmanni.