Skessuhorn - 27.01.2016, Síða 28
Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is
Óskaskrínin okkar eru frábær leið til þess að gefa upplifanir í stað hluta.
Hægt er að velja um fjórar tegundir gjafakorta, Rómantík, Gourmet, Töff og
Dekurstund. Í hverju óskaskríni er fjöldi valkosta sem hægt er að velja úr.
Í Rómantík er meðal annars að finna gistingu fyrir tvo ásamt kvöldverði og
morgunverði á Hótel Glym og Sveitahótelinu Hraunsnefi. Í Gourmet óska-
skríninu okkar er þriggja rétta máltíð fyrir tvo á veitingahúsinu Bjargarsteini í
Grundarfirði.
Endilega skoðið úrvalið á heimasíðu okkar www.oskaskrin.is eða
fáið nánari upplýsingar hjá Óskaskríni í síma 577-5600.
Langar þig að gefa upplifun?
Fyrir rúmum tveimur áratugum
lauk Sigurbjörg Ósk Áskelsdótt-
ir námi í landslagsarkitektúr frá
Landbúnaðarháskólanum á Ási í
Noregi. „Ég hef alltaf haft áhuga
fyrir gróðri, umhverfi og hönn-
un auk þess sem ég hef alltaf haft
gaman af því að teikna. Landslags-
arkitektúr sameinar öll þessi áhuga-
mál mín í einu fagi, sem er auðvitað
tær snilld,“ segir Sigurbjörg. Eftir
að hafa unnið á stofu ytra lá leiðin
heim og opnaði hún Teiknistofuna
Jaðar í Bæjarsveitinni og fékk strax
nóg að gera. „Verkefnin fóru strax
að streyma inn og fljótlega sá ég
að ég þyrfti að ráða til mín starfs-
mann,“ segir hún. „Úr varð að ég
stofnaði Landlínur í desember árið
2000, eftir að hafa rekið teiknistof-
una í þrjú ár.“ Starfsmenn Landlína
fögnuðu því fyrir skömmu 15 ára
afmæli fyrirtækisins.
Að sögn Sigurbjargar ætlaði hún
sér upphaflega að hafa stofuna í
sveitinni, en sá að það gengi líklega
ekki og Borgarnes væri heppilegri
staðsetning. Fór hún því að svip-
ast um eftir húsnæði fyrir nýja fyr-
irtækið sitt. „Við fengum inni hér
að Borgarbraut 61, þar sem við höf-
um verið alla tíð. Leigðum fyrstu
árin af Ungmennasambandinu en
keyptum á endanum húsnæði á
sömu hæð,“ segir hún og kveðst
hæstánægð með það. „Hér er gott
að vera. Það er góður andi í hús-
inu. Skrifstofan er björt með góðu
útsýni, við erum vel staðsett í bæn-
um og síðast en ekki síst erum við
óskaplega heppin með nágranna,“
segir hún.
Verkefnin eru fjölbreytt
Landlínur taka að sér alla almenna
þjónustu á sviði landslagsarkitekt-
úrs, allt frá almennri skipulagsvinnu
til landmælinga og hönnunarverk-
efna. Stofan hefur á undanförn-
um fimmtán árum tekið að sér fjöl-
mörg verkefni á sviði skipulags og
hönnunar. Má þar nefna skipulag
frístundabyggða, fallvatnsvirkjana,
íbúðahverfa og aðalskipulagsgerð
sveitarfélaga. Á stofunni hafa einn-
ig verið hannaðar fjölmargar lóð-
ir eins og við dvalarheimili, hótel,
leikskóla, einkagarða og svæði eins
og kirkjugarða, áningarstaði, úti-
vistarsvæði og aðkomu fyrirtækja,
svo dæmi séu tekin. „Okkar kjöl-
festuverkefni eru þó að miklu leyti
skipulagsverkefni sem við vinnum
fyrir sveitarfélög, einkum á Vestur-
landi og sunnanverðum Vestfjörð-
um, en alls ekki eingöngu. Við höf-
um unnið að sjö aðalskipulagsáætl-
unum fyrir sveitarfélög og teljum
okkur sterk á því sviði,“ segir Sigur-
björg og bætir því við að um þess-
ar mundir séu Landlínur að vinna í
samstarfi með öðrum að gerð hverf-
isskipulags eins borgarhluta fyrir
Reykjavíkurborg. „Um er að ræða
yfirgripsmikið samstarfsverkefni
þriggja stofa, Hornsteina arkitekta
sem stýrir verkinu, Urban arkitekta
og Landlína sem er bæði gríðarlega
skemmtilegt og lærdómsríkt.“ Sig-
urbjörg segir að verkefnið hafi vak-
ið athygli bæði innanlands og er-
lendis. „Önnur lönd eru farin að
horfa til Reykjavíkur vegna þessa
frumkvöðlaverkefnisins. Helsta
markmið verkefnisins er að auka
sjálfbærni hverfanna og þróa og
hanna notendavænt og traust skipu-
lagstæki sem íbúar, hagsmunaaðilar
og yfirvöld geta notað til að skipu-
leggja og halda utan um uppbygg-
ingu, endurbætur og þróun í grón-
um hverfum,“ bætir hún við.
Unnið að nýju hverfi í
Stykkishólmi
Þessa dagana hafa Landlínur einn-
ig á sinni könnu skipulag íbúahverf-
is í Stykkishólmi. „Um er að ræða
alveg nýtt hverfi með bæði par- og
einbýlishúsum sem rísa á við Vatns-
ásinn, sem er vegfarendum á hægri
hönd þegar komið er inn í bæinn,“
segir Sigurbjörg. Við þá vinnu,
líkt og í skipulaginu fyrir Reykja-
vík, þarf að hyggja vel að tengingu
nýja hverfisins við aðra hluta bæjar-
ins. „Börn sem koma til með að búa
í þessu nýja hverfi verða að komast
gangandi í skólann og á leikskólann
og því er gert ráð fyrir göngustígum
sem tryggja eiga þeim sem greiðasta
leið á áfangarstaðinn,“ segir hún
en bætir því við að ýmislegt annað
hafi áhrif á skipulag hverfa. Nefnir
hún sem dæmi veðurfar. „Það þarf
að kanna ríkjandi vindátt og vind-
styrk miðað við árstíðir, bæði þegar
vel viðrar og í verstu veðrum.“
Sjálfbærni höfð að
leiðarljósi
Sigurbjörg segir nokkrar breyt-
ingar hafa orðið í greininni á þeim
15 árum sem Landlínur hafa starf-
að. „Það hefur orðið skýr breyting
á nálgun á viðfangsefninu meðal
helstu viðskiptavina okkar, sveit-
arfélaganna. Nú verður maður
var við bæði áhuga og pólitískan
vilja til að fara í átt til sjálfbærni
og skipulagsvinna fyrir sveitarfé-
lögin tekur mið af því,“ segir hún.
„Það er dálítið skemmtilegt til þess
að hugsa að sjálfbærni og vistvæn
hugsun var mjög fyrirferðamikill
hluti námsins þegar ég var að læra.
Það er ekki fyrr en 10 til 15 árum
seinna sem þau sjónarmið fara að
fá verulegan hljómgrunn meðal
þeirra sem fara með framkvæmda-
valdið,“ bætir hún við og brosir.
„Eins virðast stjórnendur sveitar-
félaga farnir að gera sér grein fyr-
ir því að það skiptir máli að tryggja
hagsmuni sveitarfélaganna með
því að gera áætlanir sem hlúa að
þeim gæðum og undirstrika þá
kosti sem sveitarfélögin hafa upp á
að bjóða.“ Hún segir það jöfnum
höndum eiga við um þéttbýl og
dreifbýl svæði. „Hagsmunir sveit-
arfélaga geta meðal annars falist í
því að standa vörð um gott rækt-
arland, kjarr- og votlendi og með
því að tryggja samgönguæðar og
aðra uppbyggingu til framtíðar,
svo dæmi séu tekin,“ segir Sigur-
björg.
Aðspurð kveðst hún ekki sjá fram
á breytingar á rekstri fyrirtækisins
í framtíðinni. Þar eru tveir starfs-
menn, Sigurbjörg sjálf og Ulla R.
Pedersen, landslagsarkitekt. „Við
erum afskaplega sáttar með hlut-
ina eins og þeir eru í dag,“ segir
hún og lítur til baka yfir þau 15 ár
sem fyrirtækið hefur starfað. „Við
höfum upplifað ýmislegt á þess-
um árum, bæði uppgang og nið-
ursveiflu í kjölfar kreppunnar. Það
er ekkert sjálfgefið að stofur eins
og þessi komist í gegnum slík-
ar þrengingar,“ segir hún. „Fyrir-
tækið hefði aldrei komist í gegn-
um niðursveiflurnar nema vegna
þess að hér hefur alltaf starfað
bæði hæft og gott fólk,“ bætir Sig-
urbjörg við. kgk
Landslagsarkitektastofan Landlínur varð 15 ára fyrir skömmu
„Hér hefur alltaf starfað bæði hæft og gott fólk“
Þessa dagana hafa Landlínur á sinni könnu skipulag nýs íbúahverfis við Vatnsás í Stykkishólmi. Sigurbjörg fer yfir teikningar-
nar.
Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir og Ulla R. Pedersen, landslagsarkitektar hjá
Landlínum í Borgarnesi.