Skessuhorn - 10.02.2016, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2016 7
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Stykkishólmsbær
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi vegna Aðalgötu 17
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt á fundi
4. febrúar 2016 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi
samkvæmt 1.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Meginmarkmið breytingar á deiliskipulaginu er að, gert
verið ráð fyrir kjallara undir hluta hússins, aðgengi að
kjallara verður við gafl hússins, utan núverandi bygg-
ingarreits. Svalir vegna flóttaleiða fara út fyrir bygg-
ingarreit á göflum, byggingarreitur er stækkaður vegna
anddyris við Aðalgötu. Nýtingarhlutafall mun fara í
0,90. Akstursleið suð-austanmegin við byggingarreit
fellur út en bílastæðum verður fjölgað úr 17 í 25 innan
lóðar o.fl. Sjá nánari upplýsingar í deiliskipulagstillögu.
Deiliskipulagstillagan verður aðgengileg á vef
Stykkishólmsbæjar, www.stykkisholmur.is, og á
skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Hafnargötu 3
á skrifstofutíma milli 10-15, frá 10. febrúar 2016 til
23. mars 2016 og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna
að gæta, hvattir til að kynna sér breytinguna og koma
ábendingum eða athugasemdum á framfæri, skriflega
til skipulags- og byggingarfulltrúa Stykkishólmsbæjar,
Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, í síðasta lagi 23. mars
2016.
Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmur - Sími: 433-8100
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Sigurbjartur Loftsson, Skipulags- og
byggingarfulltrúinn í Stykkishólmi
Hálfgerð leiðindaveður gekk yfir
Snæfellsnes og Dali seinnipartinn
á fimmtudaginn og fram á nóttina.
Að sögn lögreglu urðu enginn al-
varleg óhöpp í umferðinni en þó
var eitthvað um að bílar festust og
færu jafnvel út af vegum. Á föstu-
daginn var hins vegar komið betra
veður þrátt fyrir að enn bætti í snjó.
Á myndinni er Kári Rafnsson um-
sjónarmaður fasteigna hjá Grunn-
skóla Snæfellsbæjar að gera göngu-
leiðir að skólanum hreinar með
snjóblásara.
af
Snjó kyngdi niður í Ólafsvík
Vélsmiðja Grundarfjarðar ehf. hef-
ur fest kaup á húsnæði og tækjum
af Berg Vélsmiðju ehf. í Grundar-
firði og mun hefja rekstur 1. maí
næstkomandi. Berg Vélsmiðja hef-
ur verið með rekstur í Grundar-
firði síðan 1992 en í vor mun þeim
kafla ljúka. Vélsmiðjan mun eftir
það verða rekin í svipaðri mynd og
því munu Grundfirðingar áfram
hafa slíka þjónustu í byggðarlag-
inu.
tfk
Keypti húsnæði og tæki Berg Vélsmiðju