Skessuhorn - 10.02.2016, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 20168
Byrja skimun
vegna ristil-
krabbameins
LANDIÐ: Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra og Kristján
Oddsson, forstjóri Krabbameins-
félags Íslands, undirrituðu í síð-
ustu viku samkomulag um und-
irbúning skimunar fyrir krabba-
meini í ristli og endaþarmi hjá
aldurshópnum 60 – 69 ára. Stefnt
er að því að hefja skimun í byrj-
un næsta árs. Velferðarráðuneytið
leggur 25 m.kr. til verkefnisins og
Krabbameinsfélagið 20 m.kr. en
áætlaður heildarkostnaður er 45
m.kr. –mm
Umfang
sérkennslu og
stuðnings
LANDIÐ: Á síðasta skólaári
fengu 12.263 nemendur hér á
landi sérkennslu eða stuðning,
eða 28,4% allra nemenda. Það er
fjölgun um 60 nemendur frá fyrra
skólaári. Fjöldinn hefur ekki ver-
ið meiri frá því að Hagstofan hóf
innsöfnun um sérkennslu skóla-
árið 2004-2005 en hlutfall nem-
enda sem fékk sérkennslu var lít-
ið eitt hærra skólaárið 2013-2014,
28,6%. Af þeim nemendum
sem fengu stuðning voru 61,5%
drengir og 38,5% stúlkur. Nem-
endum sem hafa erlent móðurmál
og fá stuðning vegna íslensku-
náms hefur fjölgað um 64,6% á
undanförnum fimm árum og voru
2.374 skólaárið 2014-2015, um
900 færri en nemendur með er-
lent móðurmál. –mm
Aflatölur
fyrir Vesturland
30. janúar - 5. febrúar
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 3 bátar.
Heildarlöndun: 26.115 kg.
Mestur afli: Akraberg ÓF:
20.856 kg í fimm löndunum.
Arnarstapi 3 bátar.
Heildarlöndun: 55.940 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 35.479
kg í fimm löndunum.
Grundarfjörður 3 bátar.
Heildarlöndun: 146.642 kg.
Mestur afli: Hringur SH: 61.801
kg í einni löndun.
Ólafsvík 15 bátar.
Heildarlöndun: 398.930 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
52.650 kg í fimm löndunum.
Rif 13 bátar.
Heildarlöndun: 460.082 kg.
Mestur afli: Rifsnes SH: 90.880
kg í tveimur löndunum.
Stykkishólmur 7 bátar.
Heildarlöndun: 74.076 kg.
Mestur afli: Fjóla SH: 19.992 kg
í sjö löndunum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Tjaldur SH - RIF:
78.136 kg. 1. febrúar.
2. Hringur SH - GRU:
61.801 kg. 4. febrúar.
3. Rifsnes SH - RIF:
47.422 kg. 4. febrúar.
4. Grundfirðingur SH - GRU:
45.491 kg. 2. febrúar.
5. Rifsnes SH - RIF:
43.458 kg. 31. janúar.
grþ
Strætó hækkar
fargjöld
LANDIÐ: Ný gjaldskrá
mun taka gildi fyrir þjón-
ustu strætisvagna Strætó bs.
1. mars næstkomandi. Með-
al breytinga eru að almenn-
ir farmiðar verða seldir 20
saman, eða með sama fyrir-
komulagi og í tilviki afslátt-
arfarmiða, og munu farmiða-
spjöldin hækka um 2,9%.
Mesta hækkunin mun verða
á eins- og þriggja daga kort-
um. Eftir breytinguna mun
eins dags kort kosta 1.500 kr.
og þriggja daga kort 3.500 kr.
Staðgreiðslugjaldið hækkar
um 5% og verður 420 krón-
ur, en á móti mun Strætó taka
upp staðgreiðslugjald fyr-
ir börn og ungmenni yngri
en 18 ár, öryrkja og aldraða
og verður það 210 kr. Tíma-
bilskort og farmiðar hækka á
bilinu 2,9-4,2%. „Verðhækk-
un er ætlað að mæta almenn-
um kostnaðarhækkunum,“
segir í tilkynningu. Nán-
ari upplýsingar er að finna á
strætó.is.
-mm
Atvinnuleysi var
3,1% í árslok
LANDIÐ: Á fjórða ársfjórð-
ungi síðasta árs voru 189.200
manns á aldrinum 16–74 ára
á vinnumarkaði hér á landi.
Af þeim voru 183.300 starf-
andi og 5.900 án vinnu og í
atvinnuleit. Atvinnuþátttaka
mældist 81,6%, hlutfall starf-
andi mældist 79% og atvinnu-
leysi var 3,1%. Frá fjórða árs-
fjórðungi 2014 fjölgaði starf-
andi fólki um 5.300 og hlut-
fallið jókst um 1,5 prósentu-
stig. Atvinnulausum fækkaði
á sama tíma um 1.800 manns
og hlutfallið sömuleiðis um
eitt prósentustig. Atvinnu-
lausar konur voru 2.100 og
var atvinnuleysi á meðal
kvenna 2,3%. Atvinnulausir
karlar voru 3.800 eða 3,8%.
Atvinnuleysi var 3,6% á höf-
uðborgarsvæðinu en 2,2%
utan þess.
-mm
Fordæmalaus
hækkun
bílastæðagjalda
REYKJANES: Isavia sem
rekur Leifsstöð hefur ákveðið
að hækka bílastæðagjöld við
flugstöðina um allt að 117%
frá og með 1. apríl næstkom-
andi. Isavia réttlætir þessa
hækkun með fjölgun farþega.
Væntanlega er þar átt við
fjölgun erlendra ferðamanna
hingað til lands. Neytenda-
samtökin mótmæla harðlega
þessari hækkun og minna á
að þeir sem nota þessi bíla-
stæði séu ekki erlendir ferða-
menn heldur Íslendingar.
„Isavia hefur í dag einokun á
bílastæðum við Leifsstöð og
það er í krafti þeirrar einok-
unar sem Isavia treystir sér til
að hækka verðið jafn mikið
og nú er ráðgert. Neytenda-
samtökin mótmæla þessum
hækkunum harðlega og krefj-
ast þess að þær verði dregn-
ar til baka en til vara að þær
verði mun minni en gert er
ráð fyrir,“ segir í ályktun sam-
takanna. –mm
Verktakafyrirtækið B.Vigfússon
ehf. hefur nú hafist handa við að
byggja upp veg og grafa fyrir nýrri
spennistöð fyrir Landsnet í Grund-
arfirði. Verið er að færa spennistöð-
ina út fyrir byggðina og verður hún
einnig yfirbyggð. Hún verður stað-
sett fyrir ofan iðnaðarsvæðið við
Kverná. Einnig verður lagður nýr
63Kw jarðstrengur frá spennistöð-
inni til Ólafsvíkur og mun hann
leysa ofanjarðarlínur af hólmi og
tryggja rafmagnsöryggi mun bet-
ur en núverandi dreifikerfi. Einnig
verða spennar stækkaðir töluvert í
leiðinni. Áætluð verklok eru annað-
hvort haustið 2016 eða vorið 2017.
tfk
Framkvæmdir að hefjast
við nýja spennistöð
Á myndinni eru Vigfús Þráinn og Guðmundur Grétar Bjarnasynir að störfum í gröfum sínum.
Á fundi skóla- og frístundaráðs
Akraneskaupstaðar 2. febrúar síð-
astliðinn var í annað sinn úthlut-
að styrkjum úr Þróunarsjóði skóla-
og frístundasviðs. Tilgangur með
sjóðnum er að styðja við þróun-
ar- og nýsköpunarstarf á sviði
skóla- og frístunda á vegum Akra-
neskaupstaðar með það að mark-
miði að starfsemin verði í sífelldri
þróun í takt við breytingar í um-
hverfi og samfélagi. Markmiðið er
að verkefnin styðji við og stuðli að
fagmennsku starfsfólks, auknum
gæðum í skóla- og frístundastarfi,
umbótum og nýbreytni. Þrjár um-
sóknir bárust um styrki og fengu
tvö verkefni úthlutað peninga-
framlagi. Þetta eru verkefninu „Að
fanga fjölbreytileikann. Handbók
um verkfæri Byrjendalæsis, Orðs
af orði og Gagnvirks lestrar,” en
hins vegar verkefnið ,,Innleiðing
á samvinnulíkani fyrir margbreyti-
lega hópa.” Í úthlutunarnefnd eru
Sigríður Indriðadóttir formaður
skóla-og frístundaráðs, Regína Ás-
valdsdóttir bæjarstjóri og Gunnar
Gíslason ráðgjafi.
Að fanga
fjölbreytileikann
Ábyrgðamenn umsóknarinnar um
að fanga fjölbreytileikann eru þær
Ásta Egilsdóttir kennari í Grunda-
skóla og Guðrún Guðbjarnadóttir
kennari í Brekkubæjarskóla. Í um-
sögn úthlutunarnefndar segir að
verkefnið tengist beint þjóðarátaki
í læsi sem Akraneskaupstaður er
aðili að. Þetta sé samvinnuverkefni
beggja grunnskólanna og styðji við
bæði skóla- og lestrarstefnu Akra-
neskaupstaðar og efli skólasamfélag
á Akranesi í heild sinni. „Ábyrgða-
menn verkefnisins, Ásta og Guð-
rún, hafa unnið vel saman og fag-
lega að innleiðingu og þróun byrj-
endalæsis í báðum skólum og auk-
ið samvinnu skólanna með jákvæð-
um árangri. Umsóknin er fagleg
og vel rökstudd. Verkefnið hlýtur
tvær milljónir króna í styrk,“ segir
í umsögn dómnefndar.
Margbreytileiki hópa
Hitt verkefnið sem hlaut styrk
fékk 1,5 milljón króna. Það nefnist
„Innleiðing á samvinnulíkani fyr-
ir margbreytilega hópa (Þorpið)“.
Ábyrgðamaður umsóknar er Ruth
Jörgensdóttir Rauterberg deildar-
stjóri dagstarfs í Þorpinu. Í umsögn
úthlutunarnefndar segir: „Verk-
efnið er áhugavert frumkvöðla-
verkefni sem hefur hlotið viður-
kenningu fyrir nýsköpun og þró-
un í æskulýðsstarfi. Ábyrgðamað-
ur umsóknar, Ruth, hefur þróað
samvinnulíkan fyrir margbreytilega
hópa barna og unglinga til að skapa
umhverfi sem einkennist af virð-
ingu fyrir margbreytileika, félags-
lega viðurkenningu, þátttöku allra
og samvinnu. Þróunarverkefnið
felst í innleiðingu hluta þess líkans í
starfi með börnum og ungmennum
í Þorpinu. Umsóknin er fagleg og
vel rökstudd.“
mm
Akraneskaupstaður úthlutar
úr þróunarsjóði
Þær fengu að þessu sinni styrki úr Þróunarsjóði skóla- og frístundasviðs. F.v.
Guðrún, Ásta og Ruth. Ljósm. Akraneskaupstaður.