Skessuhorn - 10.02.2016, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 201610
Leiklistarklúbbur Nemendafélags
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi æfir nú stíft fyrir uppsetningu
á leikritinu Fullkomnu brúðkaupi
eftir Robin Hawdon. Hallgrímur
Ólafsson leikstýrir verkinu. Að sögn
Hallgríms koma margir nemend-
ur að uppsetningu sýningar, þar á
meðal eru sex í hlutverkum en aðr-
ir í öðrum verkefnum. Hann segir
leikritið vera týpískan farsa. „Þetta
er drepfyndinn gamanleikur um
ungt fólk sem er að fara að ganga
í hjónaband. Krakkarnir liggja núna
sveitt og læra textann, ég lem þau
áfram og tek ekki á móti kvörtunum
foreldra,“ segir hann og hlær.
Þetta er í fyrsta sinn sem Full-
komið brúðkaup er sett upp á Akra-
nesi. Verkið var sett upp fyrir tíu
árum af Leikfélagi Akureyrar og
var ári síðar sýnt í Borgarleikhús-
inu. Í fyrra setti leiklistarklúbbur-
inn upp söngleikinn Grease. Hall-
grímur leikstýrði því verki einn-
ig og voru viðtökurnar afar góðar.
„Við lögðum upp með sjö sýning-
ar en enduðum í fleiri en fimmtán.
Um þrjú þúsund manns sáu Grease,
sem hlýtur að vera eitthvað met,“
segir hann. Hallgrímur segir aftur
vera stefnt á sjö sýningar í ár og svo
komi í ljós hvort þeim verði fjölgað.
Leikritið verður frumsýnt í Bíóhöll-
inni í byrjun apríl.
grþ
NFFA sýnir Fullkomið
brúðkaup í apríl
Hallgrímur ásamt hluta leikaranna á æfingu síðastliðið mánudagskvöld.
112 dagurinn verður haldinn um
allt land á morgun, fimmtudaginn
11. febrúar. Af því tilefni munu við-
bragðsaðilar í Borgarfirði koma sam-
an í Hyrnutorgi milli kl. 15 og 18 og
kynna starfsemi sína, líkt og und-
anfarin ár á þessum degi. Eru það
björgunarsveitirnar, Slökkvilið Borg-
arbyggðar, Heilbrigðisstofnun Vest-
urlands, Rauði krossinn og Lögregl-
an á Vesturlandi sem standa að kynn-
ingunni.
Dagurinn hefur einnig verið val-
inn til að afhenda Akranes- og Borg-
arfjarðardeild Rauða krossins fjölda-
hjálparkerru sem þær hafa í sam-
einingu fest kaup á. Mun kerran án
efa nýtast vel svæðinu ef til slysa eða
náttúruhamfara kemur. Kerran verð-
ur geymd í Borgarnesi og verður að-
gengileg ef á þarf að halda. Í kerr-
unni eru 30 hermannabeddar, 60
teppi, neyðarmatur, skriffæri, merk-
ingar, ljósavél og fleira sem þarf til
að opna fjöldahjálparstöð. Í Borgar-
byggð eru þrjár skilgreindar fjölda-
hjálparstöðvar; á Bifröst, Hvanneyri
og í Borgarnesi en með þessum út-
búnaði væri einnig mögulegt að setja
upp fjöldahjálparstöð víðar. Sjálf-
boðaliðar Rauða krossins hafa feng-
ið þjálfun í að setja upp og halda utan
um starfsemi fjöldahjálparstöðvar og
er styrkur í því að hafa aðgang að
innihaldi kerrunnar. Verður kerran
til sýnis við Hyrnutorg frá kl. 17 til
kl. 18. Einnig verður vakin athygli á
verkefninu „3 dagar“ sem fjallar um
að hver og einn búi sig undir að geta
verið sjálfbjarga í þrjá daga ef til nátt-
úruhamfara kæmi. Á þessu ári munu
viðbragðsaðilar í Borgarbyggð einn-
ig nota tækifærið og heimsækja alla
leikskóla sveitarfélagsins og ræða við
nemendur þeirra um starfsemi sína
og 112 númerið.
þþ
Rauði krossinn fær
fjöldahjálparkerru afhenta
Hér má sjá glitta í innihald kerrunnar.
Fjöldahjálparkerran gæti komið sér vel ef til slysa eða náttúruhamfara kæmi.
Þriðjudaginn 2. febrúar var kátt á
hjalla í fyrrum húsakynnum Spari-
sjóðs Ólafsvíkur mitt í hjarta bæj-
arins, rétt ofan við höfnina. Þá var
Smiðjan opnuð með pompi og
prakt í nýju húsnæði að viðstöddu
fjölmenni. Smiðjan er rekin á veg-
um Snæfellsbæjar og er henni ætl-
að að sinna dagþjónusta og vera
vinnustofa fólks með skerta starfs-
orku. Auk þessa fær fólk hjálp í
tengslum við störf á almennum
vinnumarkaði hluta úr degi eða
hluta úr viku með eða án aðstoð-
ar. Starfsmenn Smiðjunnar eru
himinlifandi með nýja húsnæðið
sem er bæði rúmgott, snyrtilegt og
miðsvæðis í bænum með frábært
aðgengi á jarðhæð. Í opnunarhóf-
inu kynntu starfsemi Smiðjunnar
þeir Sveinn Þór Elinbergsson for-
stöðumaður Félags- og skólaþjón-
ustu Snæfellinga og Gunnsteinn
Sigurðsson forstöðumaður Smiðj-
unnar. Kristinn Jónasson bæjar-
stóri í Snæfellsbæ og Sturla Böðv-
arsson bæjarstjóri í Stykkishólmi
héldu ávörp og Elva Ármanns-
dóttir og Nanna Þórðardóttir frá
Kvenfélagi Ólafsvíkur voru meðal
þeirra sem færðu Smiðjunni gjafir.
Finna fyrir
miklum velvilja
Smiðjan var fyrst með sína starf-
semi í húsakynnum Dvalarheimil-
isins Jaðars en flutti seinna á efri
hæðina í húsi þar sem nú er Átt-
hagastofa Snæfellsbæjar. Það hús-
næði hentaði ekki nógu vel, bæði
vegna plássleysis og að tími var
kominn á ýmislegt viðhald þar.
„Þetta húsnæði sem við höf-
um flutt í nú er mjög huggulegt
og gott. Það mun marka þáttaskil
í sögu Smiðjunnar að vera komin
hingað. Hér var húsfyllir á opnun-
inni. Það komu margir góðir gest-
ir bæði héðan úr Snæfellsbæ en
líka úr nágrannasveitarfélögunum,
ekki síst frá Ásbyrgi sem er vernd-
aði vinnustaðurinn í Stykkishólmi
og frá starfsbraut Fjölbrautaskóla
Snæfellinga. Það voru flutt ávörp
og við fengum ýmsar gjafir. Við
finnum mikinn velvilja í okkar garð
bæði hér í nærsamfélaginu og víð-
ar. Fólk lítur við í heimsókn og er
mjög dulegt að koma með til okkar
kertaafganga og annað sem nýtist
við störfin hér. Við höfum fengið
gefins húsgögn,“ segir Gunnsteinn
Sigurðsson grunnskólakennari og
þroskaþjálfi sem stýrir daglegum
rekstri Smiðjunnar.
Fluttu inn í
gamla sparisjóðinn
Smiðjan er í fyrrum bankahúsnæði
sem staðið hefur autt um nokkurra
missera skeið eftir að Sparisjóður
Ólafsvíkur rann inn í Landsbanka
Íslands í kjölfar efnahagshrunsins
2008. „Menn voru búnir að horfa
svolítið á þetta húsnæði því það
hentaði svo vel fyrir svona starf-
semi eins og Smiðjan rekur. Hér er
gott pláss, það er bjart með stórum
gluggum sem snúa út á aðalgötu
bæjarins. Húsið er líka miðsvæð-
is. Allt gerir þetta Smiðjuna mjög
sýnilega í bæjarfélaginu sem er
afar jákvætt. Þá er starfsemin sýni-
leg og betur gengur fyrir það fólk
sem hér starfar að vera þátttakend-
ur í samfélaginu. Aðgengi er mjög
gott. Við erum hér á jarðhæð með
stórar inngöngudyr inn í það sem
var gamli afgreiðslusalurinn þar
sem við ætlum nú að hafa vinnu-
aðstöðuna. Síðan er hér rúmgott
fundaherbergi, lítið eldhús með
mataraðstöðu og áfram má telja,“
segir Gunnsteinn.
Hann útskýrir að Landsbanki
Íslands eigi þetta húsnæði í dag.
„Bankinn hefur verið okkur mjög
velviljaður. Hann leyfir okkur að
vera hér og við fáum lánuð hús-
gögn á borð við skrifborð frá hon-
um,“ segir Gunnsteinn. Þegar
gengið er um þetta gamla húsnæði
sparisjóðsins og skoðað er ljóst að
þarna mun fara vel um starfsfólk
Smiðjunnar. Þar verður nú unnið
að því að endurnýta ýmsilegt svo
sem kertaafganga og pappír. Auk
þess verða saumaðir innkaupapok-
ar og fleira. Hlutir verða til sölu og
tekjurnar af sölunni notaðar til að
bæta lífsskilyrði þeirra sem starfa
við Smiðjuna eins og t.d að sækja
námskeið hjá Símenntunarmið-
stöð Vesturlands.
Hressir starfsmenn
Eins og er vinna þarna tveir ung-
ir menn með skerta starfsgetu.
Það eru þeir Hilmar Atli Þorvarð-
arson sem býr á Hellissandi og
Bjargmundur Hermann Sigurð-
arson frá Ólafsvík. Þegar blaða-
mann Skessuhorns bar að garði
voru þeir önnum kafnir. Fyrr um
daginn höfðu þeir sinnt útburði á
pósti í Ólafsvík. Þeir Hilmar Atli
og Bjargmundur Hermann vinna
daglega frá klukkan 8 til 16. Í há-
deginu borða þeir á Dvalarheim-
ilinu Jaðri. „Við erum reyndar að
leita að fleiri verkefnum úti í sam-
félaginu því það skiptir miklu máli
að fólkið sem hér starfar sé sýni-
legir þátttakendur í því. Við hér
í Smiðjunni ætlum að halda okk-
ar striki og sinna því að vera góð-
ir þjóðfélagsþegnar,“ segir Gunn-
steinn.
Hilmar og Bjargmundur eru
báðir duglegir og kappsamir
starfsmenn. „Ég kem hingað með
rútunni á morgnana og fer aftur
heim með henni á kvöldin,“ seg-
ir Hilmar sem er sem fyrr grein-
ir frá Sandi. Bjargmundur sem er
borinn og barnfæddur Ólsari jánk-
ar því að það sé bara fínt að vinna
með Hilmari.
Reiknað með fjölgun
Tveir starfsmenn eru í Smiðj-
unni að sinna aðstoð við þá sem
þar starfa. Gunnsteinn Sigurðs-
son stýrir sem fyrr sagði dagleg-
um rekstri og einnig starfar þar
Ólafur Fannar Guðbjörnsson. „Ég
er sjálfur menntaður þroskaþjálfi
og grunnskólakennari sem flutti
2003 hingað til Ólafvíkur og fór að
kenna í grunnskólanum. Ég byrjaði
svo að vinna hjá Félags- og skóla-
þjónustu Snæfellinga síðasta haust
en hún stendur fyrir rekstri Smiðj-
unnar. Þarna hafði ég kennt í tólf
ár en ákvað að taka eitt ár í leyfi og
fara að starfa aftur við þroskaþjálf-
un hér í tengslum við Smiðjuna.
Svo er ég líka ráðgjafi við leik-
og grunnskólana varðandi fötluð
börn á norðanverðu Snæfellsnesi,“
segir Gunnsteinn. Hann segir að
þeir Hilmar, Bjargmundur, Ólaf-
ur og Gunnsteinn verði fyrst um
sinn starfsmenn Smiðjunnar. „Við
eigum þó von á að það fjölgi hér
á næstu misserum,“ segir Gunn-
steinn Sigurðsson að endingu.
mþh
Smiðjan flutt í nýtt
húsnæði í Ólafsvík
Smiðjan er í þessu húsi við Ólafsbraut í Ólafsvík. Hún er í fyrrum húsakynnum
Sparisjóðs Ólafsvíkur á jarðhæð í horni hússins næst á myndinni.
Starfsmenn smiðjunnar. Frá vinstri: Hilmar Atli Þorvarðarson, Ólafur Fannar
Guðbjartsson þroskaþjálfanemi og Gunnsteinn Sigurðsson forstöðumaður. Fyrir
framan þá situr svo Bjargmundur Hermann Sigurðarson.