Skessuhorn - 10.02.2016, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2016 11
ur fyrir því að ég hætti í skólanum.
Kannski þær helstar að ég veikt-
ist og missti svo gott sem hálft ár
úr skólanum og hætti í framhaldi af
því. Það var svo sem ekki með mik-
illi eftirsjá. Áhuginn var kannski
ekki mikill fyrir náminu. Ég átti erf-
itt með að sjá tilganginn í að sitja og
stefna á stúdentspróf án þess að hafa
hugmynd um hvað ég vildi læra eft-
ir það.“
Annríki við tamningar
og rúning
Hugur Arnars stóð hreinlega ekki
til náms og allra síst langskólanáms.
Hann langaði einfaldlega til að
verða bóndi. „Ég hafði líka áhuga
á hestamennskunni. Það var tam-
ingastöð í Söðulsholti í Eyjahreppi
og ég fékk vinnu þar þegar ég hætti
í skólanum á Akranesi. Ég starfaði
þar hátt í þrjú ár og átti aldrei aft-
urkvæmt í skólann. Síðan vann ég
einnig við tamningar í Landeyjum
og víðar. Svo bjó ég í Borgarnesi í
þrjá vetur, vann þar við búsetuþjón-
ustu fyrir fatlaða og samhliða því
einnig við tamningar. Síðan datt
okkur Elísabetu Ýr kærustu minni
í hug í fyrrahaust að kaupa okkur
nokkrar gimbrar sem við fengum
að hafa hjá tengdaforeldrum mín-
um sem búa á Kálfárvöllum vestur í
Staðarsveit og þar með hófst sauð-
fjárræktin.“
Arnar hefur einnig getið sér gott
orð sem rúningsmaður á Snæfells-
nesi. „Já, ég hef líka stundað rúning
bæði haust og vetur og þá til viðbótar
við tamningarnar. Ég kann mjög vel
við að taka tarnir í hlutunum. Rún-
ingurinn er þannig og mér fellur það
því vel. Þá er ég í rúman mánuð í einu
þar sem ég fer á milli bæja á Snæfells-
nesi og geri ekkert annað en að rýja
fé. Þetta er í nóvember og kannski
eitthvað fram í desember. Síðan er
annað rúningstímabil frá seinni hluta
febrúar og út mars. Það er alveg hægt
að hafa nóg að gera við rúning á með-
an hann stendur yfir.“
Semur eigin tónlist og
gefur út plötu
Í spjallinu við Arnar Ásbjörnsson
kemur upp úr kafinu að hann hef-
ur mikinn áhuga á tónlist og sem-
ur bæði sjálfur og spilar frumsam-
ið efni. Hann hlær við þegar hann
segist þykjast vera tónlistarmaður
sem sé að reyna að koma út plötu.
Brátt kemur í ljós að þarna tal-
ar hann af lítillæti því eftir hann
liggur heil plata sem nú er verið
að leggja lokahönd á. Vesturland
eignast þar með nýtt söngvaskáld.
„Það er kannski erfitt að skilgreina
tónlistina mína. Það er eitt lag eft-
ir mig, Arnar Ásbjörns, á youtube-
myndbandaveitunni sem heitir „In
Memoriam.“ Þar syng ég þetta lag
ásamt Birnu Karen Einarsdóttur.
Þetta er reyndar fyrsta frumsamda
lagið mitt. Ég samdi það þegar tíu
ár voru liðin frá því afi minn dó
en hann bjó hjá okkur í Hauka-
tungu og var mér náinn. Á youtube
má líka sjá og heyra fleiri lög en í
hrárri útgáfu þar sem ég spila einn
á kassagítar.“
Platan var tekin upp í Borgar-
nesi. Einvörðungu vestlenskir tón-
listarmenn koma að gerð henn-
ar. „Þessi plata er svona það sem
kalla má konsept-verkefni. Lögin á
henni segja samfellda sögu á tíma-
bili úr minni eigin ævi sem spann-
ar fjögur til fimm ár. Hún er hljóð-
rituð í Stúdíói Gott hljóð hjá Sissa í
Borgarnesi. Hann spilar á trommur.
Sjálfur syng ég og spila á kassagít-
ar. Halli Hólm bróðir hans Sissa er á
bassa, Einar Þór Jóhannsson frændi
minn spilar á gítar og Heimir Klem-
enzson á hljómborð.“
Arnar segir að vinnsla plötunn-
ar sé ferill sem staðið hafi yfir síð-
an sumarið 2011 þegar hann samdi
fyrsta lagið á henni. „Ég fór fyrst í
stúdíó í desember 2012. Þetta hef-
ur verið svolítil skorpuvinna eins og
margt annað hjá mér en hún kemur
út fljótlega,“ segir hann. Við eigum
því örugglega eftir að heyra meira
frá Arnari Ásbjörns í náinni fram-
tíð.
mþh
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000
www.kemi.is - kemi@kemi.is
Fyrir börn - Fyrir fullorðna - Fyrir fagmenn
Arnari Ásbjörnssyni frá Hauka-
tungu Syðri 2 í Kolbeinsstaðahreppi
er margt til lista lagt. Hann er fjár-
bóndi, rúningsmaður, tamningamað-
ur og tónlistarmaður. Nú á föstu-
dag stóð hann ásamt fleirum fyr-
ir fyrstu keppni Vesturlandsdeildar-
innar í hestaíþróttum sem haldin var
í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi.
Hann er rúningsmaður á Snæfellsnesi
og fyrstu kindurnar þar eru bókaðar
hjá honum til afgeiðslu 21. febrúar.
Síðan leggur hann lokahönd á fyrstu
hljómplötu sína sem ætlunin er að
komi út nú á vordögum. Ofan í þetta
eru Arnar og Elísabet Ýr Bjarnadótt-
ir unnusta hans svo foreldrar eins og
hálfs árs gamals drengsnáða. Elísabet
Ýr er í þroskaþjálfanámi og starfar
með námi í leikskólaselinu á Lýsuhól.
Litla fjölskyldan býr á Kálfárvöllum í
Staðarsveit á Snæfellsnesi.
Skipuleggja keppni í
hestaíþróttum
Þegar við hittum Arnar er hann stadd-
ur í Faxaborg þar sem keppni Vestur-
landsdeildarinnar í hestaíþróttum átti
að hefjast innan fárra stunda. Hús-
ið er tómt en síðdegis þennan sama
föstudag í liðinni viku átti það eftir
að fyllast af fólki sem er samakomið
til að eiga góða stund við að iðka og
njóta hestaíþróttarinnar. Það er engin
tilviljun að Arnar er þarna. Hann er
einn þeirra sem staðið hafa á bak við
skipulagningu þessarar keppni sem
nú fer fram fyrsta sinni.
Arnar byrjar á að segja frá hvað
standi til. „Eftir að Faxaborg var reist
og tekin í notkun fyrir einum átta
árum síðan fór fólk að velta fyrir sér
að það væri gaman að koma saman til
keppni í hestaíþróttum milli þeirra
bestu á Vesturlandi. Við ákváðum svo
í haust að láta slag standa og halda
svona keppni. Það var sett á fót fjög-
urra manna undirbúningsnefnd sem
ég átti sæti í og síðar framkvæmda-
nefnd. Hinir þrír sem voru með mér
í undirbúningsefndinni voru allir að
fara að keppa þannig að þeir drógu
sig í hlé en ég hélt einn yfir í fram-
kvæmdanefndina þar sem tveir aðr-
ir nýir tóku sæti og nú er komið að
þessu.“
Keppninni verður skipt niður á
fjögur keppniskvöld sem haldin verða
í febrúar og mars. Öllu á að vera lok-
ið fyrir páska „Hérna eru bara 18 sem
keppa og hvert mót er búið á þrem-
ur tímum. Við viljum ekki hafa þetta
þung mót sem taka kannski allan dag-
inn heldur búa til létta og áhorfenda-
væna föstudagsskemmtun sem klárast
á einu kvöldi. Fólk á að geta komið
og séð bestu hesta og knapa Vestur-
lands. Nú í vetur verða þetta fjögur
kvöld. Það er nú í dag, föstudaginn 5.
febrúar. Síðan er það 15. febrúar, 11.
mars og síðasta skiptið er miðviku-
dagskvöldið fyrir páska sem er 23.
mars. Það verður keppt í einni grein
á hverju kvöldi nema síðasta skiptið
að þær verða tvær. Við byrjum á fjór-
gangi, svo er fimmgangur 19. febrú-
ar, tölt 11. mars og síðan gæðinga-
fimi og skeið í gegnum höllina þann
23. þess mánaðar,“ segir Arnar.
Koma sér upp bústofni
En hver er Arnar Ásbjörnsson?
Við fáum hann til að segja aðeins
frá sjálfum sér. „Ég er bændason-
ur frá Haukatungu Syðri 2 í Kol-
beinsstaðahrepp. Þar ólst ég upp á
blönduðu búi í miðju þriggja systk-
ina. Foreldrar mínir Helga Jó-
hannsdóttir og Ásbjörn Pálsson búa
þar enn með um 450 fjár og nokkur
hross. Pabbi er frá Haukatungu og
reyndar fjórði ættliðurinn sem situr
jörðina. Langafi minni keypti hana
um aldamótin 1900. Sjálfur er ég
fæddur 1990, stefni á að verða bóndi
og er skráður sem slíkur í síma-
skránni,“ segir Arnar og brosir við
því mjór er mikils vísir. „Við Elísa-
bet Ýr unnusta mín eigum í dag 80
kindur og stefnum á að koma okkur
upp fjárstofni. Við byrjuðum mjög
smátt og höfum verið að fjölga. Það
báru 27 ær í fyrravor og nú er stofn-
inn okkar orðinn 80 talsins. Hugur-
inn stendur til að stækka hann meir.
Þannig myndi þessi búskapur passa
ágætlega með annarri vinnu. Við
stefnum á að búa þarna á utanverðu
Snæfellsnesi, sunnan megin. Þar er
gott að vera,“ segir Arnar.
Þegar Arnar er spurður að því
hvort hann hafi þá farið í búfræði-
nám fyrst hann vilji verða bóndi
kveður hann nei við því. „Ég var
mjög fljótur í skóla,“ hlær hann
við. „Ég fór tvo vetur í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi og þar
við sat. Eftir það fór ég að vinna við
tamningar. Það voru margar ástæð-
Arnar Ásbjörnsson tónlistarmaður og bóndi:
Stundar tamningar, rúning, fjárbúskap
og gefur út sína fyrstu plötu
Arnar Ásbjörnsson við Faxaborg í Borgarnesi í liðinni viku.
Eftir Arnar liggur heil plata sem nú er
verið að leggja lokahönd á. Vesturland
eignast þar með nýtt söngvaskáld.
Arnar hefur um árabil unnið við tamningar og þjálfun.