Skessuhorn - 10.02.2016, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 201612
Íbúar í uppsveitum Borgarfjarð-
ar boðuðu til opins íbúafundar í
Logalandi síðastliðið miðviku-
dagskvöld. Til umræðu voru m.a.
húsnæðismál leikskólans Hnoðra-
bóls, framtíðarsýn sveitarfélagsins
og íbúalýðræði. Til fundarins var
boðið að mæta forsvarsmönnum
sveitarfélagsins sem flestir mættu.
Bára Sif Sigurjónsdóttir hafði fram-
sögu fyrir hönd fundarboðenda.
Talaði hún sem foreldri en jafn-
framt áheyrnarfulltrúi í fræðslu-
nefnd Borgarbyggðar. Sagði hún
frá stöðunni eins og hún er varð-
andi leikskólann Hnoðraból. Þar
er nú 21 barn í vistun en húsnæð-
ið er engan veginn nógu stórt og
hentugt fyrir starfsemina. Skólinn
er því yfirsetinn auk þess sem von
er á þremur börnum til viðbótar
í skólann. Bára Sif hrósaði starfs-
fólki leikskólans fyrir hvernig það
hafi tekist á við þær aðstæður og
léti hlutina ganga upp. Skrifstofa
hefði meðal annars verið færð í
gámaeiningu út á hlað.
Búið er að ákveða að færa starf-
semi leikskólans Hnoðrabóls að
Kleppjárnsreykjum en nú sé rætt
um hvaða leiðir eigi að fara í hús-
næðismálum þar. Sagði Bára Sif
það mikilvægt að leikskólinn
myndi eflast við þann flutning en
ekki tapa t.d. plássi. Þá lagði hún
áherslu á að íbúar og foreldr-
ar fengju tækifæri til þess að eiga
gott samtal við kjörna fulltrúa um
framtíð leikskólans, þeir væru jú
stærstu hagsmunaaðilarnir í mál-
inu auk barnanna sjálfra. Nú væru
einkum tvær tillögur inni á borði
fræðslunefndar. Önnur væri sú að
koma leikskólanum fyrir í parhúsi
á staðnum en hins vegar hefur ver-
ið skoðað að færa starfsemi leik-
skólans inn í núverandi húsnæði
grunnskólans á Kleppjárnsreykj-
um. Bára Sif furðaði sig á því að
ekki væri talað við skólastjórnend-
ur skólans um það hvað best væri
að gera í stöðunni og einnig kvaðst
hún undrandi að ekki lægi fyrir ná-
kvæm kostnaðaráætlun fyrir heild-
arbreytingar og hvað þær feli í sér.
Fólk hefði áhyggjur að jafnvel yrði
þrengt að lögbundinni starfsemi
grunnskólans. Fyrir lægi hins veg-
ar að farið verði með leikskólann úr
gömlu húsnæði í gamalt húsnæði
og hvatti hún því fulltrúa í sveit-
arstjórn til að reikna allt sem kem-
ur að þessari breytingu sem best.
Hún væri ekki að andmæla færslu
leikskólans inn í grunnskólann, en
vildi að vel yrði að því staðið.
Taldi hægt að koma
leikskólanum fyrir í
skólahúsinu
Guðveig Anna Eyglóardótt-
ir formaður fræðslunefndar tók
næst til máls. Sagði hún frá fundi
fræðslunefndar 26. janúar sl. þar
sem fjallað var um fjölgun leik-
skólabarna og ástand húsnæðis á
Hnoðrabóli. Sagði hún frá því að
nefnt hafi verið falið að gera út-
tekt og setja fram tillögur að lausn
á húsnæðismálum leikskólans.
Skoðað hefði verið að að breyta og
bæta núverandi húsnæði á Gríms-
stöðum eða færa starfsemina. Nið-
urstaðan hefði verið sú að núver-
andi húsnæði á Hnoðrabóli væri
of lítið og þyrfti miklar breyting-
ar. Því hafi verið ákveðið að skoða
einkum þrjá valkosti sem allir mið-
uðu að flutningi skólans að Klepp-
járnsreykjum. Sagði hún frá að
lauslegt kostnaðarmat við breyt-
ingar á parhúsi á Kleppjárnreykj-
um til að rúma leikskóla hljóðaði
upp á 125 milljónir, en 138 millj-
ónir væri áætlaður kostnaður við
að breyta húsi grunnskólans þann-
ig að það rúmaði einnig leikskóla-
starf Hnoðrabóls. Þessar tölur
væru umtalsvert hærri en gert var
ráð fyrir í fjárhagsáætlun og sagði
Guðveig að hanna mætti leikskóla
inni í grunnskólabyggingunni fyr-
ir lægri fjárhæð sem næði þá nán-
ast inn á fjárhagsáætlun fyrir þetta
ár. Guðveig ítrekaði í erindi sínu
að það væri ekki fræðslunefnd-
ar að taka fjárhagslegar ákvarð-
anir, slíkt væri ákveðið á vettvangi
sveitarstjórnar. Guðveig gat þess
að breyting sem gerð hafi verið á
skólahúsnæði á Varmalandi í haust
hafi lukkast vel, en þar var starf-
semin sem fram hafði farið í gamla
Húsmæðraskólahúsinu flutt undir
eitt þak í grunnskólanum.
Margar raddir
komu fram
Í kjölfar framsöguerinda voru
margir sem kváðu sér hljóðs. Þóra
Geirlaug Bjartmarsdóttir kvaðst
óttast að flutningur leikskólastarf-
seminnar inn í hús grunnskólans
myndi rýra þá möguleika að hægt
væri að bjóða upp á lögbundnar
námsgreinar, svo sem í handmennt.
Ólafur Flosason nefndi að þrengja
myndi að kennsluhúsnæði fyrir
tónlistarkennslu og Geir Waage
spurði hvort haft hafi verið samráð
við stjórnendur grunnskólans um
fyrirhugaðan flutning leikskóla í
húsnæðið. Þóra Magnúsdóttir
kennari benti á að flutningur leik-
skólans í parhússíbúðir á Kleppj-
ársreykjum gengi ekki á þessu ári
þar sem báðar íbúðirnar væru í út-
leigu til vors 2017. Sigurður Guð-
mundsson íbúi á Hvanneyri spurði
sveitarstjórnarfulltrúa hvort ekki
stæði til að leggja drög að framtíð-
arsýn sveitarfélagsins til að hægt
væri að kortleggja þörf fyrir skóla-
húsnæði í héraðinu. Í sama streng
tók Bryndís Geirsdóttir sem spurði
hvort gert væri ráð fyrir mögulegri
fólksfjölgun í sveitarfélaginu sam-
hliða aukinni ferðaþjónustu, en
fjöldi ferðaþjónustufyrirtækja væri
í uppbyggingu. Þórhildur Jóhanns-
dóttir íbúi í Skorradalshreppi tal-
aði um að hún hefði oft lýst því
yfir að vilja vera hluti af Borgar-
byggð þegar fræðslumál væru ann-
ars vegar. Það skipti miklu máli að
geta mótað framtíðarsýn sveitar-
félaganna í Borgarfirði. Talaði hún
um að ráðist væri á grunnþjónustu
í þessum aðgerðum sveitarstjórn-
ar þegar kemur að skólamálum.
Lýsti hún í kjölfarið eftir allsherjar
stefnu sveitarfélagsins til að hægt
væri að stefna til framtíðar enda
slæmt að skerða grunnþjónustu án
þess að skoða málin betur en gert
hafi verið.
Endanlegar teikningar
liggja ekki fyrir
Í svörum við þessum fyrirspurn-
um benti Guðveig Eyglóardóttir á
að þær teikningar sem liggja fyr-
ir núna að breytingum á húsakosti
á Kleppjárnsreykjum væru ekkert
heilagt plagg. Það væri ekki búið að
taka ákvörðun í málinu. Ef ákveðið
verður að fara inn í skólann þá er
þar hönnunarvinna sem verður að
fara af stað í kjölfarið. Tónlistar-
skólarnir gleymist oft þegar talað
er um skóla líkt og kennsla verk-
greina. Það skipti máli að þessar
greinar fengju viðunandi aðstöðu
til þess að hægt væri að sinna þeim
vel. Þar sem ekki er búið að taka
ákvörðun eru ekki komnar fram
endanlegar teikningar. Í sambandi
við heildstæða stefnu í skólamál-
um sagði Guðveig að það hafi ver-
ið ákvörðun sveitarstjórnar að líta
til Kleppjárnsreykja sem lykil-
skólaaðstöðu. Sagði hún flutning
Hnoðrabóls vera leið til að takast
á við fjölgun í leik- og grunnskól-
um.
Lítið íbúalýðræði
Álfheiður Sverrisdóttir stjórnar-
maður í Íbúasamtökum Hvanneyr-
ar og nágrennis ávarpaði fundinn.
Sagði hún frá skýrslu sem Íbúa-
samtökin tóku nýverið saman þar
sem rakin eru rökin fyrir áfram-
haldandi grunnskóla á Hvanneyri.
Rakti hún gang mála í tengslum við
breytingar á skólahaldi á Hvann-
eyri og var ekki par sátt með hlut
sveitarstjórnar í því máli. Sagði frá
ágöllum um það sem sett var fram
af hendi sveitastjórnar, um ástæður
fyrir lokun Hvanneyrardeildar og
sagði að íbúasamtökin væru ósátt
við að ekki var tekið mark á mót-
mælum sem skilað var inn til sveit-
arfélagsins. Íbúalýðræði væri lít-
ið í sveitarfélaginu. Sagði hún að
sér og öðrum í stjórn Íbúasamtak-
anna virtist sem sá sparnaður sem
sveitarstjórn stefndi að með lok-
un grunnskólans á Hvanneyri yrði
sáralítill sem enginn þegar upp
væri staðið. Þvert á móti væri nú
þegar farið að bera á fólksflótta af
staðnum með tilheyrandi tekjutapi
fyrir sveitarsjóð. „Allir vildu get-
að núllstillt umræðuna um lokun
skólans á Hvanneyri, því þannig er
hægt að fara í raunhæfa umræðu,“
sagði Álfheiður.
Vill byggja við
grunnskólahúsið
Unnar Bjartmarsson er húsasmið-
ur og starfandi húsvörður á Klepp-
járnsreykjum. Hann kvaðst velta
því fyrir sér af hverju ekki væri tal-
að um þann möguleika að byggja
við grunnskólahúsið á Kleppjárns-
reykjum. Taldi hann að það væri
hægt með litlu raski og á hag-
kvæman hátt að koma leikskóla-
húsi fyrir í viðbyggingu og nýta
kosti þess að samnýta mötuneyti
og fleiri þætti í húsinu án þess að
skerða það sem grunnskóla. „Það
mætti kaupa einingar frá Loft-
orku og gera þetta á skynsamleg-
an hátt á stað þar sem fljótlega þarf
að fara í viðhald á húsinu hvort eð
er.“ Hvatti hann til að leið fjög-
ur, eins og hann kallaði það, yrði
skoðuð. Guðjón Guðmundsson og
séra Geir Waage tóku báðir undir
þessa hugmynd Unnars.
Framtíðarsýn rauður
þráður í umræðunni
Margir fundarmenn voru á því að
sveitarstjórn skorti framtíðarsýn í
skólamálum. Meðal annars sagði
séra Geir Waage: „Heildar stefnu-
mótum hefur ekki farið fram. Það
er ekkert gert með hugmyndir sem
fólk varpar fram. Það liggur ekki
fyrir heildaráætlun um skólamál
til framtíðar. Það verður að klára
þessa stefnumótum áður en fólk
fer að vinna eftir stefnumótun
sem ekki er tilbúin. Óafturkræft
er að hlaupa til og framkvæma án
ákvarðana um þau markmið sem
stefnt er að,“ sagði Geir.
Fimmtíu heilsársstörf
Kristrún Snorradóttir á Lax-
eyri benti á að gert væri ráð fyr-
ir að hundrað störf yrðu við ferða-
þjónustu á Húsafelli og Langjökli
næsta sumar. Þar er lagt upp með
að skapast muni a.m.k. 50 heils-
ársstörf á næstunni. Auk þess væri
uppbygging í ferðaþjónustu á
Kirkjubóli, við Deildartunghver, í
Reykholti, Brúarási og víðar í upp-
sveitunum. „Er það ekki grund-
völlur fyrir því að við vöndum okk-
ur við framkvæmdir í tengslum við
skólamál,“ spurði Kristrún. „Auð-
vitað vonumst við eftir að eitthvað
af þessu fólki setjist hér að og þá
þurfum við að sjálfsögðu stærri
skóla því börnunum mun fjölga.“
Hvar verðum
við eftir tíu ár?
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir setti
í erindi sem hún flutti spurning-
armerki við það ferli sem ítrekað
virðist vera farið af hálfu sveitar-
stjórnar. Sjálf er hún fulltrúi VG í
fræðslunefnd. Hvatti hún sveitar-
stjórn til að hlusta á raddir fólks-
ins. Ef það væri ekki gert væri hún
að rýra eigið traust. „Fólkið í upp-
sveitunum vill ná til eyrna kjörinna
fulltrúa áður en ákvarðanir eru
teknar. Hlustið á fólkið. Hlustið
á fagfólkið,“ sagði Halldóra Lóa.
Óskaði hún eftir að að hreinskilni
ríkti í umfjöllun um hvernig ætti
að fjármagna framkvæmdir. Hall-
dóra Lóa talaði einnig um upp-
byggingu þá sem á sér stað í upp-
sveitunum hjá hinum ýmsu fyrir-
tækjum. „Viljið þið hafa rútuflutn-
inga á starfsfólki eða viljið þið fá
fólkið til að búa í sveitarfélaginu,“
spurði hún. Líkt og margir aðrir
fundarmenn kallaði Halldóra Lóa
eftir framtíðarsýn sveitarstjórn-
ar um skólamál í héraðinu. „Hafa
aðrir aðilar að skólamálum feng-
ið að eiga þessar samræður, t.d.
Borgnesingar? Hvar ætlum við að
vera eftir tíu ár,“ var meðal þeirra
spurninga sem hún varpaði fram
til sveitarstjórnar.
Faglega staðið
að málum
Lilja Björg Ágústsdóttir (D) er
varaformaður fræðslunefndar.
Sagði hún að sér virtist sem fund-
Skýr krafa um framtíðarsýn í skólamálum héraðsins
Frásögn af íbúafundi þar sem rætt var m.a. um flutning leikskóla og íbúalýðræði
Svipmynd frá fundinum sem fram fór í Logalandi miðvikudaginn 3. febrúar.