Skessuhorn - 10.02.2016, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 201618
við. Daði segist kunna mjög vel við
sig. „Þetta er búið að vera mjög yndis-
legt. Vissulega er mikil vinna að stýra
Hótel Búðum en hún er bæði fjöl-
breytt og skemmtileg. Maður tekur
þátt í öllum þáttum rekstrarins, gefur
sig allan í þetta og það heldur manni
kannski gangandi. Ég bý hér á staðn-
um. Ég er mjög nægjusamur þar sem
ég bý einn og er ekki með fjölskyldu
og þarf ekki að elta einhverjar lúxus-
hallir. Svo er ég með íbúð í Reykja-
vík þar sem ég bý og fer þangað þeg-
ar ég á frí en oftar en ekki verður það
nú svo að dagarnir fyrir sunnan fara í
ýmsar útréttingar fyrir hótelið. Þessi
vinna er bara þannig að maður stopp-
ar aldrei. Þetta hentar mér vel, ég er
ekki manneskja sem bara vill vera að
frá átta til fjögur,“ segir Daði. Hann
ber það með sér að vera önnum kaf-
inn enda á hlaupum milli húsa úlpu-
klæddur með húfu í snjókomunni
þegar við náum tali af honum. Daði
segir án hiks að hann njóti sín í hótel-
geiranum og ferðaþjónustunni. „Það
þýðir ekki að vera með neitt væl, ég
valdi mér sjálfur þennan starfsvett-
vang,“ segir hann.
Tónlistarbransinn
kveikti áhugann
Þessi síðustu orð Daða kveikja for-
vitni um að fá að vita meira um það
hver hann er þessi tiltölulega nýi hót-
elstjóri á Búðum? Daði segist fæddur
og uppalinn í Reykjavík en móðurætt-
in er af Vesturlandi. „Já, ég er reyndar
ættaður úr Borgarfirði. Móðir mín,
Gróa Finnsdóttir upplýsingafulltrúi á
Þjóðminjasafni Íslands, er frá Gufuá
rétt ofan við Borgarnes. Þar bjuggu
afi minn og amma fram undir 1980
og fjölskyldan á þar sumarbústað og
hefur verið þar mikið,“ segir hann.
Fósturfaðir Daða er hins vegar
Ólafur Ingi Jónsson forvörður Lista-
safns Íslands. „Hann þekkti ýmsa
sem voru framarlega í tónlistarlíf-
inu. Ég dróst inn í þetta og varð við-
loðandi sölu á tónlist og tónleikahald
frá því ég var krakki. Þetta var mikið
í tengslum við útgáfu- og plötusölu-
fyrirtækið Gramm sem var víðfrægt,
gróskumikið og nýskapandi á sínum
tíma, hjá Kidda í versluninni Hljóma-
lind og áfram má telja. Þetta vatt upp
á sig og mér var mér falin ábyrgð á
ýmiss konar skemmtanahaldi og við-
burðum. Svo byrjaði ég sem plötu-
snúður 13 ára gamall. Þarna fékk ég
smjörþefinn af því sem kalla mætti
veitinga- og skemmtanabransann. Í
framhaldinu var ég viðloðandi veit-
ingastaðinn Sólon Íslandus við
Laugaveg og gerði hann að skemmti-
stað á sínum tíma. Ég var líka á Prik-
inu og fleiri stöðum. Síðan vann ég
líka við sölumennsku samhliða námi
á félagsfræðibraut við Kvennaskól-
ann í Reykjavík,“ segir Daði léttur í
bragði.
Frá Kaupmannahöfn
í Reykholt
Þar kom þó að því að Daði vildi
mennta sig frekar. Jörgen faðir hans
var danskur og því ekki úr vegi að
leita hófanna um slíkt í Danmörku.
„Mér fannst ég kunna lítið í mörgu.
Árið 2005 ákvað ég því að taka skýr-
ari stefnu í lífinu og læra tannsmíði
í Kaupmannahöfn. Eftir eitt ár sá ég
að þetta var ekki fyrir mig. Á sama
tíma var ég búinn að finna nám sem
mér þótti afar spennandi. Það var í
hinum fornfræga Hótel- og veit-
ingaskóla í Kaupmannhöfn. Ég
skellti mér í þetta nám og fór svo í
framhaldsnám við Copenhagen Bus-
iness Academy og lauk þaðan námi
í Hótel-, rekstrar- og þjónustufræði
vorið 2009.“
Daði ílengdist aðeins í Dan-
mörku eftir að námi lauk. „Ég var
ekkert endilega á því að flytja aft-
ur heim til Íslands en mamma taldi
mig á að sækja um starf hjá Íslands-
hótelum sem reka mjörg af stærstu
hótelum landins. Innan þeirra eru
Fosshótel sem eru úti á landi. Þarna
fór ég í viðtal og mér var svo boð-
in vinna. Fyrstu þrjár vikurnar var ég
með Hótel Barón í Reykjavík en svo
fékk ég tilboð um hótelstjórastöðu á
Fosshótelinu í Reykholti í Borgar-
firði. Þar byrjaði ég í júní 2011 og
flutti þar með endanlega heim til Ís-
lands aftur.“
Hvetjandi
starfsumhverfi
Tíminn í Reykholti markaði upphaf
starfsferils Daða í stjórnun hótela á
Íslandi. „Þarna var í um það bil eitt
ár og það var mjög gaman og lær-
dómsríkt. Ég bjó að því að þekkja vel
til í Borgarfirði allt frá æskuárum,
fannst ég á vissan hátt kominn heim
til upprunans og fann mig því vel í
Reykholti.“
Daði var eitt ár í Reykholti en
starfaði síðan við hótel bæði á Suð-
urlandi og í Reykjavík. Í upphafi
sumars í fyrra hóf hann svo störf
sem hótelstjóri á Búðum. „Ég vil
miklu frekar vera á svona hóteli úti
á landi heldur en í Reykjavík. Mér
finnst líka betra að vera hjá litlu fyr-
irtæki eins og Hótel Búðum sem er
bara með eitt hótel, heldur en stórri
hótelkeðju. Allar boðleiðir eru miklu
styttri. Það er hlustað á hugmynd-
ir og annað sem maður hefur fram
að færa. Þetta er hvetjandi og ger-
ir það að verkum að maður er frjór
í hugsun og alltaf á tánum. Vonandi
tekst mér bara að halda mér spræk-
um svo ég staðni ekki í starfi. Ég
hef með mér góðan kjarna af mjög
hæfu starfsfólki og persónulega þá er
reynslan hér mjög jákvæð fyrir mig,“
segir hann. mþh
Hávertíð íslenskra bakara náði
hámarki sínu á bolludaginn.
Lauslegir útreikningar sýna að Ís-
lendingar sporðrenni að minnsta
kosti milljón rjómabollum í til-
efni dagsins. Þó má gera ráð fyr-
ir því að sú tala sé vanmetin í ljósi
þess að bollusala hefst víða löngu
fyrir bolludag í bakaríum og stór-
mörkuðum. Þá eru auk þess fjöl-
margir sem baka einfaldlega boll-
ur heima hjá sér enda er það mun
ódýrara. Meðfylgjandi mynd var
tekin í bakaríinu Brauðvali á Akra-
nesi að morgni bolludags. Þar var
stöðugur straumur af viðskiptavin-
um og voru þeir að kaupa þetta frá
einni og upp í 20 bollur hver. Ingi-
mar Garðarsson bakari í Brauðvali
segir að bolluvertíðin hafi byrjað
fyrr á þessu ári. Hann hafi byrjað
að selja bollur fram í búð á mið-
vikudaginn í síðustu viku og það
hafi komið sér verulega á óvart
hversu vel salan tók við sér. „Það
þýðir ekkert að kvarta þegar við-
skiptin eru svona fjörug,“ sagði
Ingimar sem nýverið enduropnaði
bakaríið sitt við Skólabraut á Akra-
nesi. mm
Reiknað er með að milljón
bollur hafi verið snæddar
„Það er búið að auglýsa deiliskipulag
fyrir stækkun. Það verður svo haldið
áfram í framhaldi af því. Framkvæmd-
ir hefjast þó alls ekki næsta sumar. Það
er ekki hægt að standa í slíku yfir há-
annatímann á hótelinu. Hugsanlega
yrði farið af stað næsta haust. Stækk-
unin felur í sér að reist verður bygg-
ing sem rúmar einvörðungu svoköll-
uð lúxusherbergi sem verða 18 til 20
talsins. Í dag eru 28 herbergi á hót-
elinu,“ segir Daði Jörgensson hótel-
stjóri í Hótel Búðum á Snæfellsnesi.
„Síðasta ár gekk mjög vel hjá okkur.
Hótel Búðir hefur aldrei gengið betur
rekstrarlega séð en í fyrra.“ Daði lýsir
stækkuninni á þann veg að í dag megi
segja að Hótel Búðir samanstandi af
tveimur megin byggingum. Nú verði
reist ein til viðbótar, álíka stór og hin-
ar og með sama útlit. Þetta nýja hús
kemur þvert á suðurhlið hótelsins.
Öll herbergi endurnýjuð
í vetur
Auk þessa standa nú í vetur yfir end-
urbætur á öllum herbergjum Hót-
el Búða. „Trésmiðir frá Stykkishólmi
og málarar frá Reykjavík vinna baki
brotni við að taka öll herbergi hót-
elsins í gegn. Það verður skipt um
gerefti kringum glugga, sólbekki og
áfellur. Gluggarnir sjálfir eru yfir-
farnir og lagaðir ef þarf, það er hug-
að að endurbótum á húsgögnum og
hurðum og síðan verður hvert einasta
herbergi málað,“ segir Daði.
Hótelstjórinn þarf að halda vel á
spöðunum með sínu starfsfólki við
þessar endurbætur því hótelið er
opið og í fullum rekstri í allan vetur.
„Ferðamannatímabilið hefur lengst
og er nú frá maí og út september. Það
er ekkert vor eða haust lengur í þess-
ari atvinnugrein, allavega ekki hvað
okkur varðar. Í fyrra vorum við nán-
ast fullbókuð út október. Heildarbók-
un þessa árs lítur síðan mjög vel út þó
janúar sé vart liðinn. Við erum hærri
núna prósentulega séð heldur betur
bókuð út árið en á sama tíma í fyrra.
Hótelið hefur verið mjög vinsælt til
brúðkaupa og það má segja að búið
sé að bóka slíka viðburði hér nánast
hverja einustu helgi í sumar. Það er
og verður nóg að gera.“
Erilsamur rekstur
Sjálfur er Daði Jörgensson til þess að
gera nýtekinn við sem hótelstjóri á
þessu sögufræga hóteli sem brann til
grunna 1999 en var endurreist og tók
til starfa í nýju húsi 2002. „Ég byrj-
aði hér 14. maí í fyrra. Ég er alger ný-
græðingur hér,“ segir hann og hlær
Daði Jörgensson hótelstjóri:
„Það gengur vel á Hótel Búðum og nú er hugað að stækkun“
Daði Jörgensson hótelstjóri á Búðum.
Það var vetrarlegt um að litast á Búðum þegar blaðamaður
leit þar við í síðustu viku en gestir létu það þó ekki aftra sér.
Hótelið er opið í allan vetur.
Einn af málurunum sem nú vinna ásamt smiðum að því að
endurnýja öll herbergi á Hótel Búðum.