Skessuhorn - 10.02.2016, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 201622
úr því sem við höfum. Það fara svona
1.200 til 1.400 tonn af slægðum fiski
hér inn í húsið árlega. Okkur hefur
gengið mjög vel að selja og höfum
á okkur gott orðspor fyrir fiskinn.
Á sínum tíma voru við meðal fyrstu
fyrirtækja hér á landi sem sendu fersk
flök úr landi. Mest af okkar fram-
leiðslu fer til Evrópulanda, það er til
fastra kaupenda í Lúxemborg, Belgíu
og Bretlandi. Við seljum ekkert á
Ameríkumarkað.“
Nýr bátur og
beitningarvélar
Sjávariðjan einbeitir sér að því að
vinna fisk af bátum Kristins J. Frið-
þjófssonar. Þeir stunda línuveiðar.
„Við vinnum þorskinn af bátunum
sjálf en hitt fer á markað. Nú upp á
síðkastið höfum við líka sent allra
stærsta þorskinn frá okkur á mark-
að. Hann hentar ekki í þá vinnslu
sem við erum með hér. Í ár erum
við hins vegar komin það langt
með að vinna kvótann af bátunum
að sennilega munum við kaupa hrá-
efni á mörkuðum í sumar. Það hef-
ur gengið mjög vel hjá okkur. Við
erum með gott starfsfólk og áhafn-
irnar á bátunum hafa fiskað vel,“
segir Alexander.
Hann upplýsir að í dag starfi um
30 manns hjá Sjávariðjunni. Síðan
vinna 14 manns við útgerðarfyrir-
tækið sem ber nafn föður Alexand-
ers. „Nú eru tveir bátar í rekstri hjá
útgerðinni og báðir róa með beitn-
ingarvélar um borð. Stærri báturinn
Hamar SH er yfirleitt úti í þrjá sól-
arhringa og leggur línuna og dregur
þá tvisvar sinnum. Þeir slægja aflann
sem kemur á fyrri lögnina en koma
með aflann af seinni lögninni ós-
lægðan að landi. Minni báturinn er
Stakkhamar SH sem keyptur var nýr
til útgerðarinnar í fyrra. Hann leggur
og dregur yfirleitt einu sinni og kem-
ur svo og landar. Þannig höldum við
þessu gangandi.“
Flotinn stokkaður upp
Halldór Kristinsson eldri bróðir
Alexanders var um árabil skipstjóri
á bátum útgerðar foreldra þeirra
bræðra. Síðast var hann með þann
Stakkhamar sem var á undan þeim
sem keyptur var nýr í fyrra. Hall-
dór er nú kominn í land og sinnir
útgerðinni sem aðalstarfi en gríp-
ur þó líka í fiskvinnsluna ef þörf
krefur. „Útgerðin er með Hamar
SH sem er stóri báturinn ef svo má
segja. Síðan voru við með tvo smá-
báta í rekstri á línuveiðunum, það
er Stakkhamar SH og Sæhamar
SH. Til viðbótar er svo Litli Hamar
sem við gerðum seinast út á makríl-
veiðar. Við seldum svo Stakkhamar
í fyrra þegar við keyptum nýsmíði
sem fékk sama nafn. Eftir það erum
við svo búin að leggja Sæhamri
en eigum enn bæði hann og Litla
Hamar,“ segir Halldór.
Hann rekur áfram breyting-
arnar sem gerðar hafa verið á út-
gerðinni: „Í fyrra hættum við al-
farið með handbeitningu. Það var
sett beitningavél í Hamar SH. Nýr
Stakkhamar var keyptur og líka sett
beitningarvél í hann. Með honum
hagræddum við í smábátarekstr-
inum. Okkur vatnaði pláss í bæði
gamla Stakkhamar og Sæhamar.
Þeir tóku ekki nógu mörg kör. Nýi
Stakkhamar gerir það hins vegar. Sá
bátur er það rúmgóður að við ráð-
um við toppana sem koma í afla-
brögðum og höfum páss fyrir allan
afla í körum um borð. Þetta tryggir
góða meðferð á aflanum. Þessi bát-
ur er að koma mjög vel út í öllum
rekstri.“
Breiðafjörðurinn
fullur af fiski
Halldór segir að útgerðin hafi
keypt lítilsháttar af kvóta í fyrra-
sumar. „Annars hugsum við lítið
um það hvort þorskkvótinn verði
aukinn í framtíðinni. Það er miklu
farsælla að einbeita sér frekar að því
sem maður hefur á hverjum tíma og
hvernig sé hægt að spila sem best úr
því. Ég hef ekki trú á því að aukning
í þorskkvóta muni kalla sem neinu
nemi á fjölgun starfa í fiskvinnslu
hér á landi. Afkastagetan með nú-
verandi mannafla er einfaldlega það
mikil að hún ræður við aukninguna.
Hins vegar mun kvótaaukning
örugglega leiða til þess að tæki-
færum og störfum fjölgar í ýms-
um hliðargreinum sjávarútvegsins
svo sem í tæknigeiranum. Tækni-
væðingin bæði í veiðum og vinnslu
mun halda áfram.“
Bæði fyrirtækin hafa að sögn
Halldórs staðið í fjárfestingum fyr-
ir hundruði milljóna bæði í bátun-
um og svo í búnaði til fiskvinnslunn-
ar. Megnið af þessu er keypt á Ís-
landi. „Nýi Stakkhamar er hannaður
og smíðaður af Seiglu hér á Íslandi.
Vatnsskurðarvélin frá íslenska fyrir-
tækinu Völku er sömuleiðis byggð
á íslensku hugviti og framleidd hér
á landi. Þetta er fyrsta vatnsskurð-
arvélin sem tekin er í notkun í fisk-
vinnslu hér á Snæfellsnesi og önnur
vélin á Vesturlandi. Áður en við feng-
um þessa vél þá var búið að setja eina
svona upp hjá HB Granda á Akranesi.
Við byrjuðum að nota hana í byrj-
un ágúst og hún hefur reynst mjög
vel enda eins gott. Það var mjög góð
veiði í haust. Fiskvinnslan var rekin á
fullu en allt gekk eins og í sögu.“
Halldór Kristinsson hefur sjálf-
ur áralanga reynslu af fiskveiðum og
hann er í góðum tengslum við sjó-
mennina sem róa í dag. „Það er lítill
vafi að Breiðafjörðurinn er núna full-
ur af þorski. Netabátarnir mokveiða.
Hins vegar er það svo að stóri þorsk-
urinn virðist hafa nægt æti í síldinni.
Hann veiðist ekki á krókana hjá línu-
bátunum í sama mæli og netabátarn-
ir eru að fá hann. Línubátarnir verða
hins vegar meira varir við minni
þorskinn sem er enn of lítill til að ná
síldinni.“ mþh
Skagamennirnir
Aron Fannar Ben-
teinsson og Jó-
hanna Ósk Guð-
jónsdóttir eru á
leið til Qatar með
U20 landsliðinu
í keilu mánudag-
inn 15. febrúar
næstkomandi. Þar
munu þau keppa
á árlegu boðsmóti
sem haldið er þar
í landi. „Þetta er í
fyrsta sinn sem ís-
lenska landslið-
inu er boðið að
taka þátt en þarna
verða lið frá mörg-
um löndum, með-
al annars af Norð-
u r l ö n d u n u m , “
segir Aron Fann-
ar í samtali við
Skessuhorn. Auk
Arons Fannars og
Jóhönnu fara sex
aðrir keiluspilar-
ar með. Þjálfari
liðsins er Theó-
dóra Ólafsdóttir og er Skagamað-
urinn Guðmundur Sigurðsson að-
stoðarþjálfari. Þetta er í fyrsta sinn
sem Aron Fannar leikur með U-20
landsliðinu en hann hefur þrisvar
keppt með U-18 liðinu. Jóhanna
Ósk hefur keppt tvisvar með U-18
landsliðinu og keppir með því liði í
þriðja sinn þegar Evrópumót ung-
linga verður haldið hér á landi í Eg-
ilshöll um páskana.
Stefna á úrslit í
deildarkeppni
Aron Fannar og Jóhanna Ósk hafa
bæði æft frá unga aldri og náð góð-
um árangri í íþróttinni. Þau sigr-
uðu til að mynda í opnum flokki
á Íslandsmóti unglinga í fyrra. Þá
varð Jóhanna Ósk tvöfaldur Ís-
landsmeistari en Aron Fannar náði
þreföldum Íslandsmeistaratitli. „Ég
vann fyrsta flokk unglinga, opinn
flokk og sigraði á Íslandsmóti með
forgjöf. Svo deildi ég fyrsta sætinu
með einum öðrum í meistarakeppni
ungmenna og varð í fyrsta sæti í
deildarbikarnum. Það má segja að
síðasta tímabil hafi verið langbesta
tímabilið mitt hingað til,“ seg-
ir Aron Fannar. Bæði kepptu þau
á Íslandsmóti einstaklinga um síð-
ustu helgi. Aron Fannar komst ekki
áfram upp úr forkeppni en Jóhanna
Ósk komst upp í milliriðil. Fram-
undan eru áframhaldandi leikar í
deildarkeppninni þar sem þau leika
bæði með ÍA. Aron Fannar leikur í
1. deild karla en Jóhanna Ósk í 2.
deild kvenna. „Ég býst við að við
reynum að komast í úrslitakeppn-
ina. Topp fjögur liðin fara áfram og
okkur gengur vel, við stefnum á að
fara þangað. Við erum nú í þriðja
sæti deildarinnar en stelpurnar í
öðru sæti í sinni deild,“ segir Aron
Fannar að endingu.
grþ
Á leið til Qatar með
landsliðinu í keilu
Aron Fannar Benteinsson og Jóhanna Ósk Guðjónsdóttir
úr ÍA eru bæði á leið til Qatar þar sem þau keppa fyrir hönd
Íslands í keilu í sínum aldursflokki.
Fiskvinnslufyrirtækið Sjávariðjan og
útgerðarfyrirtækið Kristinn J. Frið-
þjófsson í Rifi eru í eigu einnar og
sömu fjöskyldu. Kristinn J. Frið-
þjófsson stofnaði útgerðina 1974
ásamt Þorbjörgu Alexandersdótt-
ur eiginkonu sinni þegar þau keyptu
bátinn Hamar SH. Þau hjón eiga og
reka útgerðina enn í dag. Bátar út-
gerðarinnar eru Hamar SH, sem er
búinn að vera í þjónustu hennar frá
upphafi, og síðan Stakkhamar SH.
Árið 1994 stofnuðu þau svo fisk-
vinnslufyrirtækið Sjávariðjuna Rifi
hf. ásamt fimm börnum sínum. Sjáv-
ariðjan vinnur fisk úr afla Hamars og
Stakkhamars. Bæði útgerð og vinnsl-
an réðust í breytingar og fjárfesting-
ar á síðasta ári sem nú eru farnar að
skila tilætluðum árangri í rekstri fyr-
irtækjanna.
Ný og fullkomin
vatnsskurðarvél
Breytingarnar hafa miðast að auk-
inni hagræðingu og bættum gæð-
um. „Það er búið að vinna mikið í
að bæta blæðingu og kælingu á fiski
með krapa um borð í bátum útgerð-
arinnar til að hámarka hráefnisgæð-
in. Hér í húsi Sjávariðjunnar í Rifi er
svotil búið að endurnýja allan búnað
vinnslunnar frá flökunarvél og aftur
úr. Það er komin ný hraðsnyrtilína
fyrir fiskinn og við höfum fest kaup á
nýrri og afar fullkominni vatnsskurð-
arvél frá Völku. Hún er tölvustýrð.
Vélin greinir formið á fiskflökunum
og notar síðan vatnsgeisla til að skera
flökin niður í hnakka, sporð og kvið-
bita. Hjá okkur fer þorskhnakkinn í
ferksfisksútflutning en við frystum
megnið af hinu í lausfrysti. Bitarnir
fara svo í flokkun og pökkun,“ segir
Alexander Kristinsson framkvæmda-
stjóri Sjávariðjunnar.
Alexander segir að markmiðið með
þessu öllu sé skýrt. „Við erum að leit-
ast við að komast inn á bestu mark-
aðina. Hér hjá Sjávariðjunni reyn-
um við ekki endilega að keppast við
magn heldur reyna að gera sem best
Miklar breytingar að baki hjá fiskvinnslu og útgerð í Rifi
Bræðurnir Halldór og Alexander Kristinssynir.
Nýsmíðin Stakkhamar SH var keypt til útgerðarinnar árið
2015 og hefur reynst afar vel.
Hamar SH við bryggju í Rifi. Beitningarvél var sett í bátinn á
síðasta ári.
Vatnsskurðarvélin frá Völku.
Ferskum hnakkastykkjum af þorski pakkað í flug til Evrópu.