Skessuhorn - 10.02.2016, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 201624
Skessuhorn fékk sendar tvær skemmti-
legar myndir. Þær voru teknar með
réttu 20 ára millibili. Á fyrri mynd-
inni var 60 ára afmælisdagur lang-
ömmunnar en 80 ára afmæli hennar á
seinni myndinni, er þá var hún einn-
ig orðin langalangamma. Hér eru því
fimm konur í beinan kvennlegg.
Fimm ættliðir fyrr og nú
Fimm ættliðir í beinan kvennlegg 1. janúar 2016. Linda Björk Pálsdóttir, Inga
Hanna Ingólfsdóttir og Inga Lóa Karvelsdóttir. Sitjandi Ólöf S. Magnúsdóttir og
Tinna Maria Arnardóttir.
Fimm ættliðir í beinan kvennlegg 1. janúar 1996. Efri röð: Linda Björk Pálsdóttir
og Inga Hanna Ingólfsdóttir. Neðri röð: Ólöf S. Magnúsdóttir, Inga Lóa Karvels-
dóttir og Fanney Tómasdóttir.
Illugi Gunnarsson menntamála-
ráðherra heimsótti Grunnskólann
í Borgarnesi síðastliðinn mánu-
dag af því tilefni að Gleðileikarn-
ir fengu foreldraverðlaun Heimil-
is og skóla í maí síðastliðnum. Með
honum í för voru Guðni Olgeirs-
son frá menntamálaráðuneytinu og
tveir fulltrúar Heimilis og skóla. Að
sögn Júlíu Guðjónsdóttur skóla-
stjóra grunnskólans var heimsókn-
in afar ánægjuleg.
„Hann gaf sér góðan tíma í heim-
sóknina. Eva Hlín Alfreðsdótt-
ir kynnti Gleðileikana og svo gekk
hann um og heimsótti alla bekki
skólans. Fjórði bekkur var með
söngatriði og svo kynntu nemendur
í tíunda bekk fyrir honum Erasmus
verkefnið Water around us. Að lok-
um vorum við með bollur í tilefni
bolludagsins. Þetta var skemmti-
leg heimsókn og ánægjuleg,“ sagði
Júlía. grþ
Fengu menntamála-
ráðherra í heimsókn
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra ásamt nemendum úr 10. bekk sem
kynntu Erasmus verkefnið Water around us. Með á myndinni er Inga Margrét
Skúladóttir umsjónarkennari 10. bekkjar og fyrrum skólasystir ráðherrans.
Sigríður Hjördís Indriðadóttir frá
Kjaransstöðum í Hvalfjarðarsveit
var einn af sigurvegurum í ein-
leikarakeppni Sinfóníuhljómsveit-
ar og Listaháskóla Íslands sem fram
fór nýverið. Fyrir vikið var hún
einn af fjórum nemendum skólans
sem spilaði einleik með Sinfóníu-
hljómsveitinni fyrir fullum Eld-
borgarsal í Hörpu nú um miðjan
janúarmánuð. „Ég var ein af þess-
um heppnu fjórum sem voru valdir
til að spila. Ég spilaði flautukonsert
eftir Carl Nilsen. Þetta var ótrú-
leg upplifun,“ segir Sigríður í sam-
tali við Skessuhorn. Hún segist ekki
áður hafa spilað með svona stórri
hljómsveit. „Ég hef spilað einleik
með strengjasveit en aldrei fullri
sinfóníuhljómsveit. Þetta var engu
líkt,“ segir hún.
Sigríður Hjördís ákvað ung að
aldri að verða flautuleikari og hefur
leikið á þverflautu frá tíu ára aldri.
„Þegar ég var lítil sá ég hana Ás-
hildi Haraldsdóttur sem er í sin-
fóníunni spila í sjónvarpinu. Mér
fannst þetta svo fallegt að ég ákvað
að verða flautuleikari,“ segir Sig-
ríður. Hún lauk hefðbundnu tón-
listarskólanámi frá Tónlistarskóla
Reykjavíkur og þaðan fór hún í
listaháskóla í Belgíu 2014-2015.
Hún er nú á öðru ári í BS námi sem
hljóðfæraleikari í Listaháskóla Ís-
lands. „Eins og staðan er núna ætla
ég að reyna að klára gráðuna og svo
hef ég aðeins verið að hugsa um
að fara aftur út að læra. Danmörk
er mér efst í huga
og það er aldrei
að vita nema ég
fari í mastersnám
þangað á næsta
eða þarnæsta ári.“
Hún segist af og
til fá tækifæri til
að spila opinber-
lega, þó það sé
ekkert í líkingu
við tónleikana í
Hörpu. „Ég fæ
alltaf hringingar
annað slagið. Svo
tekur maður þátt
í tónleikum sem
tengjast skólum
og hljómsveitum
sem maður hefur
verið í.“
Sigríður seg-
ir það vera stærsta
drauminn að fá
stöðu hjá sinfón-
íuhljómsveitinni.
„Ég hef verið í
Sinfóníuhl jóm-
sveit unga fólksins
og Ungsveit sin-
fóníunnar, sem er
samstarf milli sin-
fóníuhljómsveit-
arinnar og ungra
krakka. Það væri
algjör draumur að
komast í sinfóníuhljómsveitina
en það eru fáir flautuleikarar sem
komast að. Það eru haldin prufu-
spil ef það losnar staða en það ger-
ist ekki oft,“ segir hún að endingu.
grþ
Sigríður Hjördís Indriðadóttir flautuleikari.
Spilaði einleik með
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Listmálarinn Bjarni Skúli Ketils-
son, betur þekktur sem Baski, ætl-
ar að opna sýningu á verkum sínum
í Vitakaffi á Akranesi næstkomandi
laugardag kl. 16. Þar mun hann
sýna olíumálverk sem hann hef-
ur málað af Akranesi og Hvalfirði.
Um er að ræða ný verk sem klár-
uð voru í lok síðasta árs. „Þetta er
bara lítil sýning sem mun vera uppi
í viku. Ég kom hingað til Íslands til
að halda námskeið en ákvað á síð-
ustu stundu að taka verkin með
og setja upp þessa sýningu,“ segir
Baski í samtali við Skessuhorn.
Námskeiðin sem um ræðir
eru tvenns konar og verða hald-
in í Stúkuhúsinu á Safnasvæðinu
í Görðum. „Ég verð með kvöld-
námskeið sem er fullskráð í og
datt í hug að halda opið morgun-
námskeið líka. Það er þá fyrir þá
árrisulu sem hafa tíma á morgn-
ana, frá klukkan 10 til 13,“ útskýr-
ir Baski. „Hægt er að mæta í eitt
eða fleiri skipti í morguntímana.
Þarna mun ég kenna ýmislegt sem
tilheyrir myndlist; bæði olíu, ak-
ríl og vatnslitatækni og teikningu.
Ef fólk vill kynnast einhverri tækni
eða bæta aðeins við sig get ég leitt
það áfram,“ bætir hann við. Morg-
unnámskeiðið hófst í gær og stend-
ur til 19. febrúar. Kennt verður frá
þriðjudegi til föstudags og er nám-
skeiðið öllum opið. Skiptið kostar
3.500 krónur og kaffi er innifalið í
verðinu. grþ
Baski með nýja sýningu og námskeið
Ein af myndum Baska sem verður á
sýningu hans á Vitakaffi.
Nú fer að styttast í Júlíönu – hátíð
sögu og bóka, sem haldin verður í
fjórða sinn 25. – 28. febrúar næst-
komandi í Stykkishólmi. Viðfangs-
efni hátíðarinnar að þessu sinni
er: „En hvað það er skrítið.“ Þar
kennir ýmissa grasa. Dagskráin
verður fjölbreytt að vanda og hefst
hún formlega með opnun í Vatna-
safninu á fimmtudeginum.
Á föstudeginum verður dag-
skrá víðs vegar um bæinn. Nem-
endur í Grunnskóla Stykkishólms
eru að vinna að sýningu sem teng-
ist persónum í bókinni Mamma
klikk. Höfundur hennar er Gunn-
ar Helgason og verður hann einn
af gestum hátíðarinnar. Sýningin
verður i Amtsbókasafninu og verð-
ur opnuð klukkan 15. Upplestur
verður í Bókaverzlun Breiðafjarðar,
boðið verður á sögustund í tveimur
heimahúsum um kvöldið. Dagskrá
föstudagsins endar svo með sögu-
gerð á Hótel Egilsen.
Hópur fólks í tengslum við há-
tíðina les nú af kappi bók Ein-
ars Más Guðmundssonar Hunda-
daga undir stjórn Ólafs K. Ólafs-
sonar. Eftir hádegi á laugardeg-
inum munu rithöfundarnir Sig-
mundur Ernir Rúnarsson og Einar
Már Guðmundsson fjalla um verk
sín í gömlu kirkjunni. Hrafnhild-
ur Schram mun fjalla um bók sína
um Nínu Sæmundsson í Vatna-
safninu. Verk þeirra allra byggja á
frásögnum um fólk sem ekki hef-
ur bundið bagga sína sömu hnút-
um og aðrir. Á laugardagskvöldið
verður svo leiklestur í Norska hús-
inu. Ekki er hér allt upptalið. „Það
er því ljóst að mikið verður um að
vera í Hólminum þessa helgi. Dag-
skrána má nálgast þegar nær dregur
á Facebook: Júlíana hátíð sögu og
bóka,“ segir í fréttatilkynningu frá
undirbúningsnefnd.
mm
Líður að bókahátíðinni Júlíönu í Stykkishólmi