Skessuhorn - 10.02.2016, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2016 25
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfang-
ið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánu-
dögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að
fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að
tölvupósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akra-
nesi (athugið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi
á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum
lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessu-
horni.
57 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu
viku. Lausnin var: „Orðaleikur.“ Vinningshafi er: El-
ínborg Þorsteinsdóttir, Hlíðarvegi 3, 350 Grundar-
firði. mm
Op
Stúlka
Vísa
Storm-
ur
Skap
Ógæt-
inn
Fiskur
Hroki
Læti
Agi
Umbun
Flón
Slanga
Umsvif
Hjól
Ylja
Ögn
Flan
Samhlj.
Smánar
Óregla
Iktir
Niðjar
Skýli
Korn
Núna
Nóra
Þáttur
5
Mettur
Skáþak
Skæði
Örk
3 7
Ikt
Samþ.
1000
Snasa
Ílát
Barn
Ekra
Riða
Ung-
börn
Voði
Brynna
Titill
Ekki
Mar
6 Korn
Basla
Bygging
Fag
Óæfðir
Laugin
Knatt-
tré
2 Vissa
Alfara-
leið
Þrátt
fyrir
Espaði
Kæpan
Hvíld
Egndi
Þegar
9 Átt
Örn
Rölt
Gruna
Ævi
Samtök
Tvíhlj.
Veiddi
Ánægju-
hljóð
Ker
Leðja
Kvakar
Pokar
Hlaupa
Nögl
Sýl
Hryðja
Tók
Skjól
Tál
Auður
Elska
8
Kraftur
Krydd
Tölur
Hvíldi
1
Trjáteg.
Neytti
Upphr.
4 Áhald
Berg-
mál
Ras
Á fæti
Mæða
Ögn
Öslaði
Röst
500
Siga
hundi
Bardagi
Tölur
1 2 3 4 5 6 7 8 9
Tinna Rós Hall-
dórsdóttir 8 ára og
Telma Rut Birgis-
dóttir 8 ára héldu
nýverið tombólu í
Krónunni á Akra-
nesi og söfnuðu
3.641 kr. Peningina
færður þær Rauða
krossinum sem vill
þakka þeim kærlega
fyrir þeirra framlag.
-fréttatilkynning
Héldu tombólu fyrir RKÍ
Akraneskirkja var þétt setin fólki
síðdegis á sunnudaginn þegar boð-
ið var upp á óhefðbundna messu.
Þetta var í níunda skiptið sem
þeir félagar sr. Eðvarð Ingólfs-
son, Ragnar Bjarnason söngvari
og Þorgeir Ástvaldsson píanóleik-
ari buðu upp á rokkmessu. Eðvarð
kynnti lögin sem Raggi söng, sagði
vel valda brandara og gantaðist við
Ragga, en presturinn skráði ein-
mitt ævisögu dægurlagasöngvarans
góðkunna fyrir kvartöld síðan. Þor-
geir spilaði svo listavel undir í lög-
unum. Fermingarbörn voru hvött
til að mæta og voru þau stór hluti
kirkjugesta. Undir lokin kallaði
Raggi nokkur þeirra sér til aðstoðar
í söngnum og brugðust þau vel við.
Rokkmessan tókst með ágætum og
fóru allir glaðir heim.
mm
Fjölmenni í rokkmessu
á Akranesi
Flottur jakki í flutningi Ragga Bjarna og nokkurra væntanlegra fermingarbarna.
Þorgeir, Eðvarð og Ragnar.
Síðastliðinn laugardag var í Reyk-
holti stofnað kvæðamannafélag-
ið Snorri á Vesturlandi. Gengu 23
í félagið á stofnfundi. Félagar úr
kvæðamannafélaginu Árgala á Sel-
fossi komu og lögðu sitt af mörk-
um til stofnunarinnar. Hófst fund-
urinn í kirkjunni þar sem séra
Geir Waage sagði frá Reykholts-
stað en að því loknu talaði Bjarni
Guðráðsson og sagði frá kirkjunni
og byggingu hennar. Æfðar voru
þrjár stemmur við lagboða eftir
Jónas Jónasson frá Torfmýri, Gísla
Ólafsson og Sigurð Breiðfjörð.
Sigurður Guðjónsson frá Árgölum
ávarpaði samkomuna og las kvæði
eftir Björn Björnsson frá Hvamms-
tanga. Síðan var gengið til Snorra-
stofu og tekið til við hinn formlega
stofnfund. Bjarni Guðráðsson var
skipaður fundarritari en Hjörtur
Þórarinsson fundarstjóri.
Var minnst þeirra Jakobs á Varma-
læk og Sveinbjarnar Beinteinssonar
og kveðnar örfáar vísur eftir hvorn
þeirra. Einnig kváðu þau Þórður
Brynjarsson og Kolfinna Sjöfn Óm-
arsdóttir sem fulltrúar ungu kyn-
slóðarinnar. Kosningar fóru svo
þannig undir röggsamlegri stjórn
fundarstjóra að Anna Lísa Hilmars-
dóttir var kjörin formaður, Margrét
Eggertsdóttir gjaldkeri og Helgi
Björnsson ritari. Þórður Brynjars-
son var kjörinn stemmuhirðir og
Þórdís Sigurbjörnsdóttir vísnahir-
ðir. Í varastjórn eru Brandur Fróði
Einarsson, Óskar Halldórsson og
Guðmundur B. Gíslason.
Að lokum tók Þórdís Sigur-
björnsdóttir til máls um ,,fundar-
stjórn forseta“ eins og nú er í tísku
og sagði:
Sá hefur góðar gætur
gegnlýsir aðstæður.
Svo félagið komist á fætur
forðast skal umræður.
dd/ Ljósm. DE
Hjörtur Þórarinsson
fundarstjóri,
Bjarni Guðráðsson
fundarritari og Sig-
urður Sigurðarson
formaður Árgala á
Selfossi.
Kvæðamannafélagið Snorri formlega stofnað
Hluti fyrstu stjórnar og varastjórnar Kvæðamannafélagsins Snorra. F.v. Anna Lísa, Helgi, Brandur Fróði, Guðmundur og
Óskar.