Skessuhorn - 10.02.2016, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 201626
Háskólinn á Bifröst hefur nú feng-
ið gæði skólans staðfest af hálfu
Gæðaráðs íslenskra háskóla. Traust
er borið til gæða prófgráða í bráð
og lengd og námsumhverfis nem-
enda skólans. Með þessari niður-
stöðu lýkur úttekt Gæðaráðs á Há-
skólanum á Bifröst sem hófst með
skýrslu frá skólanum og heimsókn
úttektarnefndar Gæðaráðs í mars á
síðastliðnu ári. Í úttektarnefndinni
sátu fjórir erlendir sérfræðingar og
einn nemendafulltrúi.
„Í september síðastliðnum sendi
Gæðaráðið frá sér skýrslu um gæði
Háskólans á Bifröst og lýsti þar
trausti á námsumhverfi nemenda
og á gæðum prófgráða til lengri
tíma litið. Bent var á fimm atriði
sem bæta þótti og lúta að stöðu
skólans til að tryggja prófgráða í
bráð. Háskólinn á Bifröst hefur
tekið á öllum þeim atriðum. Söfn-
un tölulegra gagna og úrvinnsla
þeirra til að nýta við stjórnun og
stefnumótun hefur verið stóraukin,
skýr stefna til næstu ára hefur ver-
ið sett fram, úttekt á stjórnskipu-
lagi og hlutverkaskiptingu í skólan-
um var hleypt af stokkunum, nýj-
ar reglur hafa verið settar um fast-
ráðningu akademískra starfsmanna
og fjárhagsleg staða skólans verið
bætt,“ segir í tilkynningu frá Há-
skólanum á Bifröst.
Vilhjálmur Egilsson rektor seg-
ir að úttektarferli Gæðaráðs hef-
ur reynst bæði gagnlegt og lær-
dómsríkt fyrir Háskólann á Bif-
röst og styrkt stöðu hans. „Skólinn
leggur mikinn metnað í að tryggja
gæði náms og prófgráða og all-
ar þær breytingar sem orðið hafa á
starfsháttum skólans í ferlinu munu
styrkja hann enn frekar,“ segir Vil-
hjálmur. Í Gæðaráði íslenskra há-
skóla sitja fimm erlendir sérfræð-
ingar skipaðir af mennta- og menn-
ingarmálaráðherra á grundvelli laga
um háskóla. mm
Staðfesta gæði
háskólanáms á Bifröst
Á föstudagskvöldið síðasta frum-
sýndi leikfélagið Sv1 í Menntaskóla
Borgarfjarðar leikrit Ólafs Gunnars
Guðlaugssonar um Benedikt bú-
álf. Félagið hefur frá upphafi verið
mjög virkt, líklega er þetta áttunda
verkið sem það setur á svið, leikrit
sem gerist í tveimur víddum, ann-
ars vegar í mannheimum og hins
vegar meðal álfa. Víddirnar skarast
og verkið kallast á við gömlu þjóð-
trúna um álfa og huldufólk þar sem
aðstoð manna gat oft skipt sköpum
þegar vandi steðjaði að í álfheim-
um. Hér takast góðu öflin á við hin
illu eins og í ekta ævintýrum.
Það sem vekur athygli við upp-
færslu Sv1 er hversu vel er að öllu
staðið. Hér hefur mannskapur-
inn svo sannarlega unnið heima-
vinnuna sína. Leikmyndin er hlý-
leg og falleg, hana smíðuðu þau sjálf
og aðal hráefnið var hænsnanet og
dagblöð. Leikskrá er vönduð. Leik-
gervi og búningahönnun prýða sýn-
inguna og tæknina nýtir hópurinn
sér vel til að ná fram breytingum á
sviði. Við þetta bætist léttleiki leik-
ritsins og tónlist Þorvaldar Bjarna
Þorvaldssonar sem gefur því fegurð.
Sviðssetningin er skemmtileg, svið-
ið vel nýtt og hópurinn fagmann-
legur undir leikstjórn Stefáns Bene-
dikts Vilhelmssonar.
Leikfélagið Sv1 hefur greini-
lega metnað og það er það sem til
þarf. Hér má ekki gleyma að minn-
ast á hina mikilvægu hliðarlínu. Það
eru margir sem koma að uppsetn-
ingu leikverka og þeir standa ekki
allir á sviðinu. Hvað frammistöðu
einstaka leikara varðar er erfitt um
vik að nefna nöfn, en áberandi var
hversu vel var valið í hlutverkin og
hversu sterkan svip einstaklingarn-
ir náðu að setja á persónur sínar og
gera þær skemmtilegar. Túlkunin
var sterk og texti var skýrt fram bor-
inn svo allir heyrðu. Gervi var sann-
færandi og marglitt og hæfði verk-
inu vel. Í salnum var hugað sérstak-
lega að heiðurgestum sýningarinnar,
þ.e. börnunum, sem fengu að liggja
á dýnum og púðum fyrir framan
sætaraðirnar þar sem þau sáu vel allt
sem fram fór. Í lokin var krökkum
leyft að nálgast leikarana og láta taka
myndir af sér með þeim. Svona eiga
leikuppfærslur að vera, settar fram af
andagift og áhuga. Ef maður leggur
sig fram verður árangurinn góður,
svoleiðis er það í ævintýrunum og
þannig eru töfrar lífsins. Þess vegna
er hann Benedikt búálfur Mennta-
skóla Borgarfjarðar til sóma.
Guðrún Jónsdóttir.
Benedikt búálfur er býsna skemmtilegur
Í leikskólanum Teigaseli var á föstudaginn haldinn Ömmu- og
afadagur í tilefni af Degi leikskólans sem er 6. febrúar. Börnin
buðu ömmum sínum og öfum upp á kaffi og döðlubrauð auk
þess sem þau skoðuðu saman leikskólann og léku sér saman.
Meðfylgjandi myndir eru þaðan.
mm
Héldu ömmu- og
afadag á Teigaseli