Skessuhorn - 10.02.2016, Side 28
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 201628
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
DAGLEGIR VÖRUFLUTNINGAR
Stykkishólmur – Reykjavík
B. Sturluson ehf.
Nesvegi 13, Stykkishólmi
438 1626 / 862 1189
Vélsmiðja BA
Nýsmíði • Vélaviðgerðir
Breytingar • Viðhald
Vélsmiðja BA • Sólbakka 25 • Borgarnesi • bhk@vortex.is
Björn Kristjánsson 894 – 3336
Arnar Björnsson 849 – 9341
SMÍÐAVINNA – MÚRVERK RG ehf
Bárugötu 19, Akranesi • Sími 821 2490 • ragnar4646@gmail.com
Pennagrein
Í hverju bæjar-
félagi er atvinnu-
lífið veigamikil for-
senda búsetu og bú-
setuskilyrða. Þó svo
að margt hafi breyst
í gegnum tíðina lif-
ir þessi grundvallar
þáttur hvort held-
ur er á Akranesi eða
annars staðar á Ís-
landi. Víða um land
hefur tilfærsla afla-
heimilda ýmist vald-
ið búsifjum eða
styrkt búsetuskilyrði
og ekki hefur Akra-
nes farið varhluta af
þessari umræðu frá
því að kvótakerf-
ið var lögfest. Verulegar breyting-
ar hafa átt sér stað í útgerð og fisk-
vinnslu á Akranesi, en samhljóm-
ur hefur þó verið um að verja stöð-
una eins og kostur er og stefna bæj-
arstjórnar hefur verið að efla Akra-
neshöfn sem fiskihöfn. Það var því
ánægjulegt fyrir okkur Skagamenn
þegar Akraneskaupstaður óskaði
eftir þríhliða viðræðum við Faxa-
flóahafnir sf. og HB Granda hf. um
gerð landfyllingar utan aðalhafnar-
garðs vegna fyrirhugaðrar uppbygg-
ingar HB Granda hf. Eins og sjá má
á meðfylgjandi uppdrætti óskaði HB
Grandi hf. eftir því að byggja sem
næst höfninni nýtt frystihús, upp-
sjávarfrystihús og frystigeymslu auk
þess sem fyrirtækið stefndi á að færa
aðra skylda starfsemi á athafnasvæði
sitt við höfnina og ná þannig fram
hagræðingu í rekstri og byggja upp
öfluga starfsstöð til framtíðar. Þá er
ónefnt að áætlun HB Granda hf.
miðast við að bæta verulega úr að-
stöðu fyrir hausaþurrkun fyrirtækis-
ins, sem hefur valdið mörgum ama
allt frá árinu 1987 eða 1988. Ein-
hvern tímann hefðu þetta þótt góð
tíðindi.
Nú bregður svo við að umræða
um málið hefur einskorðast við af-
markaðan þátt málsins - þ.e. lykt frá
hausaþurrkuninni og hvort úrbætur
verði nægar til að umræðu um lykt á
Akranesi linni. Haldinn var opinn
fundur með HB Granda hf. og sam-
hliða hefur verið unnin tillaga að
breytingu á deiliskipulagi, sem ger-
ir ráð fyrir landrými til uppbygging-
ar við höfnina á Akranesi. Nú fór
það hins vegar svo að bæjarstjórn-
in klofnaði a.m.k. í tvennt þegar
kom að því að samþykkja auglýsingu
deiliskipulagsins. Verður ekki annað
sagt en að það veki spurningar um
stefnu í atvinnumálum á Akranesi
- ekki síst ef áform um uppbygg-
ingu við höfnina eru sett til hliðar.
Það er athyglisvert þegar ósátt verð-
ur um hvort auglýsa eigi deiliskipu-
lagstillögu og fá fram opinbera um-
fjöllun um skipulag, sem gerir ráð
fyrir uppbyggingu í sjávarútvegi á
Akranesi og eflingu Akraneshafn-
ar. Þessi skilaboð til bæjarbúa vekja
spurningar um stefnu í atvinnumál-
um og hvort atvinnuuppbygging
eigi fyrst og fremst að eiga sér stað
annars staðar en á Akranesi. Staðan
er a.m.k. ekki til þess fallin að hvetja
HB Granda hf. til umfangsmikillar
uppbyggingar við Akraneshöfn.
Því þarf að svara hvort fyrirhuguð
áform HB Granda hf. séu almennt
ekki áhugaverð, hvort breyting hafi
orðið á afstöðu um að efla Akranes-
höfn sem fiskihöfn, hvort ekki sé
lengur nauðsyn á sem flestum störf-
um við fiskvinnslu og útgerð á Akra-
nesi, eða hvort eng-
in trú sé til stað-
ar um hugmyndir
HB Granda hf. eða
sómasamlega starf-
semi fyrirtækisins.
Vandi Akranes-
hafnar hefur krist-
allast í eftirfarandi:
Bakland til upp-
byggingar er af
skornum skammti.
Ókyrrð í höfn-
inni í ákveðnum
vindáttum veld-
ur stærri skipum
vandræðum.
Minni lönd-
un á bolfiski hefur
dregið úr umsvif-
um þó svo að á Akranesi séu skráð
á yfirstandandi fiskveiðiári 4,9% alls
úthlutaðs kvóta á Íslandi eða um
19.000 þorskígildistonn.
Megin afli sem kemur til löndun-
ar í Akraneshöfn er uppsjávarfiskur
og á árinu 2014 var landað á Akra-
nesi liðlega 20.000 þúsund tonn-
um af uppsjávarfiski, en í heild að-
eins 1.300 tonnum af bolfiski. Árið
2015 var landað um 27.000 tonnum
af uppsjávarfiski en um 1.200 tonn-
um af bolfiski.
Lítill bolfiskafli hefur þýtt að
rekstur fiskmarkaðar á Akranesi er
mjög erfiður, en án hans yrði staða
hafnarinnar mjög erfið til lengri
framtíðar.
Staða þróunarhugmynda og til-
lagna um nýtt deiliskipulag á at-
hafnasvæði HB Granda, sem eru
til þess fallnar að efla Akraneshöfn
og atvinnulíf við höfnina, hljóta að
kalla á skýra og afdráttarlausa af-
stöðu bæjarstjórnar þar sem tæki-
færi á öflugu og fjölbreyttu atvinnu-
lífi verði höfð að leiðarljósi. Mik-
ilvægt er að þær ákvarðanir koðni
ekki niður í ótta um vonda lykt.
Óskar Rafn Þorsteinsson
Þórður Þ Þórðarson
Kristján Baldvinsson
Steinar B Sævarsson
Rúdolf B Jósefsson
Á útgerð og fiskvinnsla framtíð á Akranes?
Dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Jaðri í Ólafsvík barst góð gjöf á
dögunum þegar Anton Gísli Ing-
ólfsson kom færandi hendi. Færði
hann heimilinu æfingatæki sem
hann hafði sjálfur hannað og smíð-
að. Sagði Anton að hann hefði
ákveðið að smíða svona tæki eftir
spjall við Ingu Jóhönnu forstöðu-
konu en þau voru sammála um að
svona tæki myndi nýtast vel á Jaðri.
Einnig færði hann dvalarheimilinu
frístandandi stóran kross, en hon-
um fanst ómögulegt að svoleiðis
væri ekki til þegar á þyrfti að halda.
Munu þessir hlutir koma að góðum
notum og ekki amalegt að eiga fólk
eins og Anton að. þa
Færði Jaðri góðar gjafir
Anton Gísli ásamt Hinriki Pálssyni og heldur hann á krossinum.
Rós vikunnar í liðinni viku í Vetr-
arkærleik Blómasetursins – Kaffi
kyrrðar hlýtur Veronika G. Sig-
urvinsdóttir. Í tilnefningunni seg-
ir: „Hún er ávalt hjálpsöm, jákvæð
og búin að vera „mamma“ ungling-
anna í Menntaskóla Borgarfjarð-
ar og passað vel upp á þau frá upp-
hafi.“
mm
Veronika er rósahafi vikunnar