Skessuhorn - 10.02.2016, Side 30
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 201630
„Hvernig bollur finnst
þér bestar?“
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Hjalta Júlíusdóttir:
„Vatnsdeigsbollur.“
Elísa Berthelsen:
„Vatnsdeigsbollur, það þarf ekki
að spyrja að því. Með rjóma og
kannski smá rommdropum.“
Jónína Finnsdóttir:
„Þessar hefðbundnu vatnsdeigs-
bollur.“
Guðmundur Ingi Gunnarsson:
„Berlínarbollur.“
Geir Guðjónsson:
„Vatnsdeigsbollur með súkkul-
aði, jarðarberjasultu og rjóma.“
Golfklúbbur Borgarness
hefur ráðið til sín Krist-
vin Bjarnason, mennt-
aðan PGA kennara, til að
halda utan um uppbygg-
ingu á barna- og ung-
lingastarfi golfklúbbs-
ins. „Þetta kemur til með
að verða mikil lyftistöng
fyrir okkar annars ágæta
starf. GB er mikið í mun
að fjölga iðkendum á
aldrinum 8-18 ára,“ segir Jóhannes Ármannsson
framkvæmdastjóri. „Nauðsynlegt er að virkja og
kenna þeim yngri tæknina snemma og það hug-
arfar sem þarf þegar þau eru móttækilegust á
unga aldri. Við erum með frábæra inniaðstöðu í
Brákarey sem og frábæra aðstöðu að Hamri. Okk-
ar markmið er að efla unglingastarfið og halda
áfram að „búa“ til kylfinga í fremstu röð á lands-
vísu,“ segir Jóhannes. Þessa dagana leitar klúbb-
urinn eftir stuðningi fyrirtækja og velunnara við
þetta metnaðarfulla verkefni. mm
GB styrkir barna- og
unglingastarfið
Kristvin
Bjarnason PGA
kennari.
Körfuknattleikssamband Íslands fagnaði nýverið
55 ára afmæli sambandsins og opnaði af því til-
efni nýjan vef á slóðinni www.kki.is. Vefurinn var
unninn í nánu samstarfi við veflausnasvið Adv-
ania og markar opnun hans ákveðin tímamót,
því nú eru liðin rúm tíu ár frá því fyrri vefur sam-
bandsins var tekinn í notkun. Fyrir utan allsherjar
tiltekt á efni og innihaldi og einföldun á aðgengi
má nefna meðal nýjunga að vefurinn er orðinn
samhæfður símum og spjaldtölvum, hægt er að
skrá sig á póstlista KKÍ og fá fréttir öðru hverju
um helstu viðburði og allt viðhald er orðið þægi-
legra. Vefur KKÍ er mikið sóttur og fær vikulega
um 25.000 innlit. Á honum er að finna ítarlegar
upplýsingar um úrslit allra leikja í öllum flokkum,
sem og upplýsingar um starf sambandsins og ít-
arlega tölfræðigreiningu sem uppfærist í raun-
tíma þegar leikir fara fram. mm
KKÍ opnar nýjan vef
Það voru Hannes S. Jónsson formaður
KKÍ og Ægir Már Þórisson forstjóri
Advania sem opnuðu vefinn og vígðu
formlega.
Fjölmargir leikmenn Íþrótta-
bandalags Akraness í badminton
hafa verið boðaðir á landsliðsæf-
ingar hjá Badmintonsambandi Ís-
lands í vetur. Leikmennirnir eru
fjórtán talsins, allt frá átta ára aldri
upp í 25 ára. Flestir æfa með U15,
eða fimm talsins. Þá eiga Skaga-
menn tvo fulltrúa í U-11, tvo í
U-13 og þrír æfa með U-17. Auk
þess er einn liðsmaður ÍA sem æfir
með U-19 og einn með A-lands-
liðinu. Birgitta Rán Ásgeirsdóttir
formaður Badmintonfélags Akra-
ness segir hópinn vera frekar stór-
an í ár. „Þetta er flottur hópur og
við erum stolt af því hversu mörg
þau eru,“ segir Birgitta í samtali
við Skessuhorn. Hún segir að að-
allega sé um að ræða æfingar og
tækifæri fyrir unga badmintonspil-
ara til að spila í hóp. „Svo er val-
ið úr og einhverjir af þeim eldri
fá að keppa. Fyrir þá yngri eru
þetta æfingabúðir sem krakkarn-
ir fá að prófa. Flestar landsliðsæf-
ingarnar eru fyrir eldri hópana en
yngri krakkarnir fá að fara nokkuð
reglulega á æfingar líka.“ Úlfheið-
ur Embla Ásgeirsdóttir leikmaður
ÍA hefur verið valin til að keppa
með U-17 landsliðinu á stórmóti
í vetur. „Hún fer á EM í Póllandi
um páskana. Það er hópa- og ein-
staklingskeppni og þetta er í fyrsta
sinn sem hún er valin á stórmót
sem þetta,“ segir Birgitta.
Stórafmæli á árinu
Badmintonfélag Akraness fagn-
ar fjörtíu ára afmæli á þessu ári og
að sögn Birgittu fer starfið vel af
stað. Alls eru nú um 60 iðkendur
hjá félaginu en stefnt er að því að
þeim fjölgi jafnt og þétt. „Við buð-
um öllum krökkum sem eru fædd-
ir 2006 að æfa frítt með félaginu í
vetur og allir nýir iðkendur fá gef-
ins spaða. Nú þegar hafa nokkrir
nýir krakkar bæst í hópinn og byrj-
að að æfa badminton sem er gott
fyrir félagið. Svo erum við með
trimmið, sem er ætlað fyrir alla
enda góð hreyfing sem allir geta
tileinkað sér. Það kostar ekkert
að vera í trimminu en spilararnir
þurfa sjálfir að koma með kúlur,“
segir Birgitta. Þá er einnig boðið
upp á miniton námskeið sem ætlað
er yngstu kynslóðinni og foreldr-
um þeirra. „Við vorum alltaf næst
stærsta félagið en höfum dregist
aðeins aftur úr. Ég er að vona að
félagið stækki og við verðum aft-
ur næst stærst, það væri mjög gam-
an.“
Íslandsmót unglinga
framundan
Ýmislegt er framundan hjá Bad-
mintonfélagi Akraness á afmælis-
árinu. Næst á dagskrá er hið árlega
Landsbankamót, þar sem ung-
lingar etja kappi. Í marsmánuði
verður Íslandsmót unglinga hald-
ið í íþróttahúsinu við Vesturgötu.
„Það er mjög stórt þriggja daga
mót og við eigum von á um 200
krökkum til okkar. Húsið á Vest-
urgötu hentar mjög vel fyrir slíkt
mót enda er skólinn þar við hliðina
á, þar sem krakkarnir geta gist. Við
erum heppin með að hafa svona
góða aðstöðu, enda sækir Badmin-
tonsamband Íslands eftir því að
halda landsliðsæfingabúðir hér á
sumrin,“ segir Birgitta. Hún segir
slíkar æfingabúðir næst verða í lok
júlímánaðar. „Í fyrra komu Norð-
urlöndin til okkar en í sumar verða
Færeyjar, Grænland og Ísland með
æfingabúðir hér. Þá koma hingað
um þrjátíu krakkar,“ segir Birgitta
að endingu.
grþ
Margir Akurnesingar æfa með landsliðinu
Úlfheiður Embla Ásgeirsdóttir hefur verið valin til að keppa með U-17 landsliðinu
á EM um páskana.
Um síðustu helgi dvöldu þrjár
sundkonur frá Sundfélagi Akraness
í æfingabúðum með framtíðarhópi
Sundsambands Íslands en hópurinn
nefnist Tokyo 2020. Hann skipa
efnilegustu sundiðkendur landsins
og er markmið hópsins að virkja
sem flesta sundmenn til að glíma
við lágmörk fyrir Ólympíuleikana
sem haldnir verða í Tokyo í Japan
árið 2020. Til þess að vera gjald-
gengur í hópinn þurfa sundmenn
að ná ákveðnum lágmörkum í sín-
um greinum. Til æfinganna mættu
um 60 einstaklingar víðs vegar af
landinu. Tekið var hraustlega á því
en bæði var um að ræða sund- og
þrekæfingar. Auk þess hlýddi sund-
fólkið á fyrirlestur sem fjallaði um
markmiðssetningu og sjálfstraust
en slíkt er nauðsynlegt hverjum
þeim sem hyggst ná árangri í sinni
íþróttagrein. „Þáttakendurnir frá
SA stóðu sig mjög vel á æfingunum
en þeir voru: Ásgerður Jing Lauf-
eyjardóttir, Brynhildur Trausta-
dóttir og Eyrún Sigþórsdóttir. Þær
lærðu mikið í æfingabúðunum og
komu þreyttar en ánægðar heim að
þeim loknum,“ segir í tilkynningu
frá Sundfélagi Akraness.
mm
Þrjár stúlkur frá
Akranesi í framtíðarhópi
Sundsambands Íslands
Frá æfingabúðunum. ÍA stúlkur sitja þarna fyrir miðri mynd.
Skallagrímur tók
á móti Fjölni í 1.
deild kvenna í körfu-
knattleik síðastlið-
inn sunnudag. Jafnt
var á með liðunum í
upphafi leiks og þau
skiptust á að leiða.
Undir lok fyrsta leik-
hluta hófst hins vegar
góður sprettur Skalla-
gríms sem skilaði
þeim afgerandi for-
skoti í hálfleik, 50-26.
Það sama var uppi á
teningnum eftir leik-
hléið. Skallagríms-
konur höfðu leik-
inn í heljargreipum
og leikmenn Fjölnis
máttu sín lítils. Borg-
nesingar mættu lítilli
mótspyrnu og juku
forskot sitt í 33 stig
í þriðja fjórðungi. Sá
munur hélst að kalla
óbreyttur til leiksloka
og sigurinn aldrei í
hættu. Lokatölur í Borgarnesi urðu
86-53, Skallagrími í vil.
Erikka Banks var atkvæðamest í
liði Skallagríms með 23 stig og tíu
fráköst. Næst henni kom Sólrún Sæ-
mundsdóttir með 19 stig. Ka-Deidre
J. Simmons skoraði 13 stig, gaf níu
stoðsendingar og stal boltanum sjö
sinnum og Þóra Kristín Jónsdóttir
gerði ellefu stig og tók sjö fráköst.
Skallagrímur er eftir sem áður
langefst á toppi deildarinnar með 28
stig eftir 15 leiki. kgk
Skallagrímur vann
öruggan sigur á Fjölni
Sólrún Sæmundsdóttir skoraði 19 stig í öruggum sigri
Skallagríms á Fjölni. Ljósm. Skallagrímur.