Skessuhorn - 23.05.2018, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 201822 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR X-2018
Sveitarstjórn Hvalfjarðar-
sveitar er skipuð sjö fulltrú-
um sem voru í kosningunum
2014 kjörnir í óhlutbundinni
kosningu. Nú bjóða þrír list-
ar fram í Hvalfjarðarsveit:
Á-listi Áfram í Hvalfjarðar-
sveit, H-listi Hvalfjarðarlist-
inn og Í-listi Íbúalistinn.
Áfram í
Hvalfjarðarsveit
Á-listinn Áfram í
Hvalfjarðarsveit
Daníel er oddviti listans. Hver er
maðurinn?
Ég heiti Daníel A. Ottesen, er 38
ára búfræðingur frá Hvanneyri og
stunda kúabúskap að Ytra-Hólmi.
Eiginkona mín er Brynhildur Stef-
ánsdóttir snyrtifræðingur og eigum
við þrjú börn. Ég hef setið í sveit-
arstjórn þetta kjörtímabil sem nú
er að líða og jafnframt setið bæði
í skipulags- og umhverfisnefnd og
fræðslu- og skólanefnd, þar sem ég
hef gegnt formennsku.
Hver eru helstu áhersluatriði
þíns framboðs fyrir komandi
kosningar?
Að Hvalfjarðarsveit sé eftirsóknar-
verður valkostur til búsetu með til-
liti til húsnæðis, skóla, atvinnu, frí-
stunda og menningar.
Að áfram sé gætt að stöðugleika og
festu í meðferð fjármuna, en jafn-
framt hugað að því að sveitarfélagið
sé tilbúið til framtíðar og þeirra
möguleika sem þar er að finna.
Hverja metur þú a) helstu kosti
þíns sveitarfélags og b) hvað þarf
helst að bæta?
a) Hvalfjarðarsveit er einstaklega
vel staðsett sveitarfélag og hér hef-
ur átt sér stað mikið uppbygging-
arstarf undanfarin ár. Sveitarfé-
lagið hefur öll tækifæri til að veita
góða þjónustu með hóflegri skatt-
heimtu.
b) Að jafna búsetuskilyrði íbúa í
sveitarfélaginu og hlusta eftir rödd-
um þeirra, m.a. um aukið gagnsæi í
stjórnsýslunni.
Hvernig spáir þú að úrslitin verði
í þínu sveitarfélagi?
Við erum bjartsýn, finnum fyr-
ir meðbyr og stuðningi við okkar
áherslur og teljum því að við eigum
góða möguleika á fjórum fulltrú-
um.
Hvalfjarðarlistinn
Hvalfjarðarlistinn hefur
listabókstafinn H.
Brynja er oddviti listans. Hver
er konan?
Ég heiti Brynja Þorbjörnsdótt-
ir og hef búið að Kalastöðum
með manninum mínum, Þorvaldi
Magnússyni, síðan 1980. Við eig-
um þrjú uppkomin börn og fimm
barnabörn. Ég er sveitarstjórnar-
fulltrúi og viðskiptafræðingur með
mastersgráðu í alþjóðaviðskipt-
um og löggiltur verðbréfamiðl-
ari. Ég hef víðtæka starfsreynslu úr
fjármálageiranum og af atvinnu-
málum sem ég tel að muni nýtast
í störfum fyrir sveitarfélagið. Ég
hef sem fjármálaráðgjafi m.a. unn-
ið verkefni fyrir sveitarfélög og var
atvinnufulltrúi hjá Akraneskaup-
stað. Áhugamál mín eru ferðalög,
handavinna og garðyrkja.
Hver eru helstu áhersluatriði
þíns framboðs fyrir komandi
kosningar?
Hvalfjarðarlistinn leggur áherslu á
að grunnstoðir sveitarfélagsins séu
í lagi og vill jafna stöðu íbúa með
því að tryggja það að allir búi við
gott neysluvatn og heitt vatn.
Hvalfjarðarlistinn leggur áhers-
lu á ábyrga fjármálastjórnun og að
útsvar verði lágt.
Skólamálin eru okkur hugleikin
því þar er lagður grundvöllur að
framtíð barnanna okkar. Við erum
stolt af grænfánaskólunum okkar,
Skýjaborg og Heiðarskóla og við
viljum að vel sé að þeim búið og að
það sé eftirsóknavert að vera með
barn í leik- og grunnskóla Hval-
fjarðarsveitar. Ráðist verður í fram-
kvæmdir við leikskóla, hvort held-
ur er Skýjaborg eða nýjan leikskóla
í Krosslandi þegar þörf krefur.
Hvalfjarðarlistinn leggur mikla
áherslu á umhverfismálin og við
viljum láta skoða stöðu þeirra í
Hvalfjarðarsveit í upphafi næsta
kjörtímabils.
Hvalfjarðarlistinn vill að í starf-
semi á Grundartanga verði gætt
ýtrustu umhverfissjónarmiða.
Hvalfjarðarlistinn vill búa vel
að öldruðum í sveitarfélaginu og
að stuðningur við félagsstarf aldr-
aða verið áfram með sama sniði og
verið hefur.
Hvalfjarðarlistinn leggur áherslu
á opna stjórnsýslu, fagleg vinnu-
brögð, sanngjarna og skilvirka
málsmeðferð í allri stjórnun sveit-
arfélagsins.
Hverja metur þú a) helstu kosti
þíns sveitarfélags og b) hvað
þarf helst að bæta?
a) Fjárhagur sveitarfélagsins er
traustur og því er hægt að byggja
gott samfélag þar sem vel er hugs-
að um íbúa. Við eigum góða
grunn- og leikskóla sem báðir eru
grænfánaskólar. Leikskóli er gjald-
frjáls að hluta og fæði barna nið-
urgreitt.
b) Íbúar búa ekki við sömu búsetu-
skilyrði m.a. hvað varðar neyslu-
vatn og hitaveitu og því viljum við
breyta. Skilvirkni í stjórnsýslu er
ekki nægjanlega góð og það vantar
mikið upp á að upplýsingastreymi
til íbúa sé nægjanlegt. Meiri
áherslu þarf að leggja á umhverfis-
mál og marka stefnu í þeim mála-
flokki. Samgöngumál eru heldur
ekki í nægjanlega góðum farvegi.
Þar er helst að nefna að það skort-
ir öruggari tengingar við þjóðveg
1 og gatnamót við Grundartanga
þarf að bæta verulega.
Hvernig spáir þú að úrslitin
verði í þínu sveitarfélagi?
Það er erfitt að spá úrslitum þar
sem þrír listar eru í kjöri. Við von-
um þó að áherslumál okkar varð-
andi það að allir íbúar standi jafn-
fætis, þ.e. búi við nægjanlegt og
gott neysluvatn og hafi aðgang að
heitu vatni og að ekki verið ráðist í
framkvæmdir sem skili sér í hærra
útsvari, vegi þyngra í hugum kjós-
enda en bygging fjölnota íþrótta-
húss sem er á stefnuskrá beggja
hinna listanna.
Íbúalistinn
Íbúalistinn hefur
listabókstafinn Í.
Ragna er oddviti listans. Hver
er konan?
Ég heiti Ragna Ívarsdóttir og skipa
1. sæti á Íbúalistanum í Hvalfjarð-
arsveit fyrir komandi sveitarstjórn-
arkosningar. Ég hef búið og starfað
í Hvalfjarðarsveit síðan árið 2009.
Ég er gift Sigurði Aðalsteinssyni
og saman eigum við fimm börn og
þrjú barnabörn.
Ég hef lengi haft brennandi
áhuga fyrir samfélags- og lýð-
ræðismálum, allt síðan ég var ung
kona. Þar sem ég hef alið mann-
inn hverju sinni hef ég tekið virkan
þátt í að móta mitt samfélag.
Hver eru helstu áhersluatriði
þíns framboðs fyrir komandi
kosningar?
Íbúalistinn vill virkt íbúalýðræði og
opna stjórnsýslu sem og að tryggja
nemendum jafnan rétt til að stunda
nám. Hafin verði stækkun á leik-
skólanum Skýjaborg. Tryggt verði
nægt heitt vatn til reksturs Heiðar-
skóla og Heiðarborgar.
Heildarstefnu Íbúalistans má sjá
á: facebook.com/ibualistinnihval-
fjardarsveit/.
Hverja metur þú a) helstu kosti
þíns sveitarfélags og b) hvað
þarf helst að bæta?
a) Hvalfjarðarsveit er ungt sveitar-
félag, aðeins 12 ára gamalt og má
því segja að sveitarfélagið sé enn
að mótast.
Tækifærin eru mikil hvað varðar
búsetu og atvinnu, ekki síst vegna
nálægðar við höfuðborgarsvæð-
ið. Góðir möguleikar eru til að
auka tekjustofna sveitarfélagsins á
komandi árum og mun það styrkja
Hvalfjarðarsveit til góðra verka.
b) Að viðhaft sé íbúalýðræði og
skoðanir íbúa séu virtar. Afar brýnt
er að opna stjórnsýsluna til að fá
trúverðugleika og aukið aðhald.
Tryggja þarf vandaða stjórnun
þar sem lýðræðið er virkt og íbú-
ar hafa greiðan aðgang að upplýs-
ingum um ákvarðanatöku kjörinna
fulltrúa samfélagsins, rekstur þess
og starfsemi.
Hvernig spáir þú að úrslitin
verði í þínu sveitarfélagi?
Úrslitin verða aukið lýðræði, virkt
aðhald og sterkt bakland.
Þrír listar bjóða fram í Hvalfjarðarsveit
Ragna Ívarsdóttir skipar fyrsta sæti á
Í-lista Íbúalistanum.
Daníel A Ottesen skipar fyrsta sæti á
Á-lista Áfram í Hvalfjarðarsveit.
Brynja Þorbjörnsdóttir skiptar fyrsta
sæti á H-lista Hvalfjarðarlistans.