Skessuhorn - 23.05.2018, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018 37
Pennagrein
Núna eru fjögur ár liðin frá síð-
ustu sveitarstjórnarkosningum og
þar af leiðandi fjögur ár frá því ég
bauð mig fram í fyrsta skipti. Tím-
inn hefur verið skemmtilegur og
áhugaverður, verkefnin fjölbreytt
og nóg af þeim. Þetta er stutt lýsing
á þeim verkefnum sem í boði eru.
Það að starfa í bæjarstjórn er nefni-
lega ekki bara að mæta á nokkra
fundi og drekka smá kaffi. Þetta er
aðeins meira en það. Það er meðal
annars að passa upp á og vinna að
hagsmunum allra íbúa í heilu bæj-
arfélagi. Gera sem mest, fyrir sem
minnst og fyrir sem flesta.
Að ógleymdu því að hafa alla
ánægða. Þetta gerir enginn einn.
Þetta er bara gert með samstillt-
um hópi fólks sem vinnur vel sam-
an að hag alls samfélagsins. Það er
nefnilega ekki bara nóg að malbika
götur og steypa gangstéttir. Það
þarf að passa upp á að sjálfsögð-
ustu hlutir séu ekki teknir af okk-
ur. Að þurfa ekki að keyra í önnur
bæjarfélög eftir einfaldri en nauð-
synlegri þjónustu er ekki boðlegt.
Það er nefnilega margir þjónustu-
aðilar (aðallega opinberir) sem
halda að það sé styttra frá Grund-
arfirði en til Grundarfjarðar. Þetta
er barátta sem er ekki að fara að
klárast á næstunni, ekki ef við vilj-
um að bærinn okkar hafi upp á allt
að bjóða sem við viljum. Hverjum
við treystum svo best til að sinna
þessu er svo undir hverjum og ein-
um komið. Það að velja sem breið-
astan hóp af fólki til þessara verk-
efna er líklegast til árangurs. Fólk
sem er tilbúið að vinna af áhuga og
dugnaði fyrir bæjarfélagið og bæj-
arbúa alla. Fólki sem er tilbúið að
tala máli bæjarfélagsins við alla þá
aðila sem við þarf að tala. Vinna
að þeim málum sem þarf og klára
þau mál. Stuðla að þeirri uppbygg-
ingu og tækifærum sem þarf. Þetta
er lýsingin á þeim aðilum sem skipa
D - listann. Fólki sem er tilbúið að
vinna af dugnaði fyrir bæjarfélagið
og alla íbúa.
Jósef Kjartansson
Höf. skipar 1. sæti D-listans í
Grundarfirði
Gerum góðan
bæ betri
Pennagrein
Einn félagi minn á Facebook var að
tala um samfélagsmál og byrjaði á
að minnast á að nú væru allir hætt-
ir að nenna að tala um kvótakerfið.
Þess vegna talaði hann um ferðaþjón-
ustuna. Honum fannst tilvalið að tak-
marka aðgang túrista að landinu. Mér
fannst tilvalið að lýsa fyrir honum
hvernig hægt væri að gera þetta:
Kvótakerfi í ferðaþjónustu
Fyrst er skoðað hverjir eru þjón-
ustuaðilar í ferðaþjónustu núna (þeir
sem reka hótel og bjóða afþreyingu
af ýmsu tagi). Það er farið þrjú ár
aftur í tímann og aðeins þau fyrir-
tæki sem hafa verið starfandi þenn-
an tíma, fá leyfi til reksturs. Þau
mega ekki bæta við sig gistirýmum
og ekki fjölga ferðum. Ef nýir aðli-
ar vilja koma inn á markaðinn verða
þeir að kaupa kvóta af þessum að-
ilum.
Það er hætt við að þessi leyfi verði
dýr, því framboð verður minna en eft-
irspurn. Ríkið mun hinsvegar helst
ekki taka neitt fyrir kvótann sem það
útdeilir. Þannig geta kvótaeigend-
ur grætt vel á því að þiggja kvótann
ókeypis hjá Ríkinu og selja hann svo
dýrt til þeirra sem ekki eiga kvótann.
Þetta mun ekki veita meiri pening-
um inn í verkefni tengdum uppbygg-
inu á ferðamannastöðum, en þeir að-
ilar sem fá kvótann frá Ríkinu munu
gleðjast og eins víst að þeir styðji þá
stjórnmálaflokka sem vilja viðhalda
kerfinu. Greiði myndarlega í kosn-
ingasjóði.
Viðbrögðin hans
Þetta fannst félaga mínum hinn
versti kommúnismi og brást reiður
við. En ég þurfti þá að minna hann
á að akkúrat svona er kvótakerfið í
sjávarútvegi. (Félaginn er Sjálfstæð-
ismaður). Nú veit ég ekki hvort
hann fattaði ekki líkingamálið, eða
brást svona reiður við vegna þess að
ég þurfti að minna hann á kvótakerf-
ið, sem hann sjálf-
ur var að reyna að
gleyma.
Flokkurinn og kvótinn
Það er ekki erfitt að sjá, þegar skoð-
aðar eru atkvæðagreiðslur og ræður
í þinginu og aðgerðir ríkisstjórna,
hverjir það eru sem halda afnota-
gjaldinu fyrir kvótann í lágmarki.
Það má líka auðveldlega sjá af fram-
lögum útgerðarfyrirtækjanna í kosn-
ingasjóði Sjálfstæðisflokksins, hverj-
um þau treysta til að viðhalda þessu
óréttláta kerfi. Hér í Skessuhorni
var fyirr stuttu grein eftir Har-
ald Benediktsson þingmann Sjálf-
stæðisflokksins, þar sem hann spáir
„Hamförum“ ef verið á kvótanum
verði ekki lækkað enn meira *).
Viðbrögðin okkar 26. maí
Það er svosem ekki á vettvangi sveit-
arstjórnarmála sem umhverfi sjávar-
útvegsins er ákveðið, og það verður
að segjast að þeir Sjálfstæðismenn
sem stýra Akranesbæ hafa borið
gæfu til að taka ekki nýfrjálshyggj-
una alla leið (selja skólana eins og í
Keflavík, eða mælana hjá Orkuveit-
unni í Reykjavík **) og leigja þessa
hluti til baka dýrum dómum). En
þeir hafa ekki staðið sig neitt bet-
ur en vinstri meirihlutinn, og þeir
eru partur af þessum flokki sem við-
heldur þessu gall gapandi geðveika
fyrirkomulagi í sjávarútvegi.
Kveðja, Reynir Eyvindsson,
Akranesi
*) Sjá „Hamfarir af mannavöldum“ í
Skessuhorni 21. mars 2018 og „Ham-
farir í orðavali“ í Skessuhorni 25. apríl
2018.
**) Þetta var reyndar verk Alfreðs Þor-
steinssonar Framsóknarmanns, en Fram-
sókn og Sjálfstæðisflokkur hafa verið
systurflokkar í hagsmunagæslunni und-
anfarin ár.
Gall gapandi
geðveiki
Skólakór Snæfellsbæjar hélt vor-
tónleika sína í safnaðarheim-
ili Ingjaldshólskirkju síðastliðinn
fimmtudag. Vel var mætt á tón-
leikana þar sem kórinn flutti 12
lög. Fékk kórinn góðar viðtökur
gesta. Stjórnandi kórsins er Vero-
nica Osterhammer og undirleik-
ari er Nanna Aðalheiður Þórðar-
dóttir. Skólakórinn er nú kominn í
sumarfrí að mestu. Hann hélt upp-
skeruhátíð sína fyrir nokkru þeg-
ar kórinn ásamt stjórnanda, und-
irleikara og nokkrum foreldrum
fóru í óvissuferð. Farið var í Borg-
arnes þar sem kórinn söng nokkur
lög í Borgarneskirkju ásamt Barna-
kór kirkjunnar sem var heimsótt-
ur. Síðan var farið í sund í Borgar-
nesi, að því loknu var Latabæjar-
safnið skoðað. Áður en haldið var
heim var svo borðað í LaColina.
Heppnaðist ferðin hin besta og
bíða krakkarnir í Skólakór Snæ-
fellsbæjar spennt eftir að hefja æf-
ingar aftur í haust.
þa
Um 130 ungmenni af elsta stigi
grunnskólanna í Borgarbyggð
komu í síðustu viku saman til
fundar í Logalandi, að frumkvæði
Ungmennasambands Borgarfjarð-
ar. Tvö umræðuefni voru tekin
fyrir. Annars vegar hvaða breyt-
ingar vilja ungmenni sjá á íþrótta-
starfi í sveitarfélaginu og hins veg-
ar hvernig fræðslu um forvarnir
óska ungmennin eftir og hvern-
ig er heppilegast að koma skila-
boðum og upplýsingum til þeirra.
Anna Lilja Björnsdóttir frá KVAN
flutti erindi um að vera besta út-
gáfan að sjálfum sér. Umræðu-
stjórn og fundarritun var í hönd-
um ungmenna úr hópnum, en
fundarstjóri var Sigurður Guð-
mundsson framkvæmdastjóri
UMSB. „Nemendurnir voru dug-
legir og komu með flottar ábend-
ingar og hugmyndir sem verða
teknar áfram og unnið áfram með
innan ungmennafélagshreyfingar-
innar,“ sagði Sigurður.
Á vef UMFÍ er greint frá fund-
inum. Þar segir að það hafi vakið
athygli í umræðunum að oft kom
upp ósk um upphitaðan gervi-
grasvöll og stærra íþróttahús í
sveitarfélaginu. Jafnframt komu
fram óskir um val á fleiri íþrótta-
greinum eins og handbolta, dansi,
skotfimi, bogfimi, motocrossi og
hestamennsku. Einnig komu fram
óskir um markvissari kynningu
á því sem er nú þegar er í boði.
Ungmenni voru ánægð með frí-
stundaaksturinn en væru til í að
hafa hann í boði á fleiri dögum
og einnig heimakstur eftir æf-
ingar. Í seinna umræðuefninu,
þar sem fjallað var um forvarnir
og fræðslu, komu fram óskir um
fræðslu um ofþjálfun, meiðsli í
hnjám, kvíða, félagslega einangr-
un, svefn og vímuefna- og áfeng-
isneyslu. Ungmennin voru á því
að heppilegast væri að nálgast þau
með því að koma í skólann með
fræðslu og best væri ef viðkom-
andi talaði af reynslu um hlutina.
Einnig kom fram að stutt mynd-
bönd næðu helst til þeirra.
mm
Ungmenni ræddu saman um
íþróttir og forvarnir
Skólakór hélt tónleika og
fór í óvissuferð
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is