Skessuhorn - 23.05.2018, Síða 41
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018 41
Nýfæddir Vestlendingar
Grundarfjörður -
miðvikudagur 23. maí
Opinn framboðsfundur í
Samkomuhúsinu kl. 20:00.
Tveir til þrír frambjóðendur
af hvorum lista verða með
framsögur. Fundarstjóri er Björg
Ágústsdóttir.
Akranes -
fimmtudagur 24. maí
Félagsfundur
Hestamannafélagsins Dreyra í
Oddanum kl. 20:00. Á dagskrá
er kynning á samningi við
Akraneskaupstað um byggingu
reiðskemmu á Æðarodda,
formleg ákvörðun um byggingu
reiðskemmu og endanleg
ákvörðun um staðsetningu
hennar.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 24. maí
Opið hús hjá Skotfélagi
Vesturlands í inniaðstöðunni
í Brákarey kl. 20:00 til 22:00.
Skotstjóri á staðnum, sem veitir
aðgang og leiðbeinir hverju
sinni. Allir velkomnir og heitt á
könnunni. Einnig er opið hús
mánudaginn 28. maí á sama
tíma.
Grundarfjörður -
föstudagur 25. maí
Útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í hátíðarsal skólans
í Grundarfirði. Hátíðin hefst
kl. 15:00 og að henni lokinni
verða kaffiveitingar í boði
skólans. Allir velunnarar skólans
velkomnir.
Akranes -
föstudagur 25. maí
ÍA tekur á móti Njarðvík í 1.
deild karla í knattspyrnu.
Leikurinn hefst kl. 19:15 á
Akranesvelli.
Vesturland -
laugardagur 26. maí
Sveitarstjórnarkosningar
2018. Vestlendingar ganga til
kosninga eins og landsmenn
allir. Listakosning er í sex
sveitarfélögum á Vesturlandi.
Annars staðar er persónukjör.
Kjörfundir hefjast að morgni
dags um allan landshlutann.
Borgarbyggð -
laugardagur 26. maí
Kosningakaffi í Þinghamri.
Kvenfélag Stafholtstungna
býður upp á kaffihlaðborð
í Þinghamri frá kl.
14:00 til 17:00 vegna
sveitarstjórnarkosninganna.
Borgarbyggð -
mánudagur 28. maí
Hreinsunarátak í dreifbýli hefst
í Borgarbyggð og stendur til 5.
júní. Gámar fyrir grófan úrgang,
timbur- og málmúrgang
verða á á þessu tímabili við
Lingbrekku, Lindartungu,
á Eyrinni við Bjarnardalsá í
Norðurárdal og Högnastaði.
Mikilvægt er að rétt sé flokkað
í gámana og úrgangi vel raðað
svo plássið nýtist sem best. Hafa
má samband við Gunnar hjá
Íslenska gámafélaginu í síma
840-5847 þegar gámarnir eru
við það að fyllast.
Borgarbyggð -
þriðjudagur 29. maí
Gítarleikarinn Reynir
Hauksson heldur tónleika í
Reykholtskirkju kl. 20:30. Reynir
býr í Granada á Spáni og starfar
þar sem Flamencogítarleikari.
Það heyrir til tíðinda að
flamencotónlist sé flutt á Íslandi
og ætlar Reynir að bæta úr því
með tónleikaröð sinni. Mun
hann flytja þekkt flamencoverk
frá Andalúsíuhéraði í bland við
eigin tónsmíðar. Miðasala á
miði.is og við hurð. Miðaverð
er kr. 2.000 og húsið opnar
hálftíma fyrir tónleika.
Grundarfjörður -
miðvikudagur 30. maí
Gítarleikarinn Reynir
Hauksson heldur tónleika
í Grundarfjarðarkirkju kl.
20:30. Reynir býr í Granada
á Spáni og starfar þar sem
Flamencogítarleikari. Það heyrir
til tíðinda að flamencotónlist
sé flutt á Íslandi og ætlar
Reynir að bæta úr því með
tónleikaröð sinni. Mun hann
flytja þekkt flamencoverk frá
Andalúsíuhéraði í bland við
eigin tónsmíðar. Miðasala á
miði.is og við hurð. Miðaverð
er kr. 2.000 og húsið opnar
hálftíma fyrir tónleika.
Á döfinni
Íbúð í Borgarnesi
37 ára karlmaður óskar eftir húsnæði
í Borgarnesi eða sveitinni í kring. Er
reglusamur og reyklaus með fastar
tekjur. Hef meðmæli. Upplysingar í
síma 659-0879 eða á jobbi80@gmail.
com.
Íbúð á Akranesi
Reglusöm fjölskylda óskar eftir
fjögurra til fimm herbergja íbúð til
leigu á Akranesi sem fyrst. Meðmæli
ef óskað er. Vinsamlegast hafið
samband við Albert, frkvstj. Ísfisks hf.,
með tölvupósti á albert@isfiskur.is.
Markaðstorg
Vesturlands Bolir
í mörgum litum
Við hönnum, prentum og
merkjum fyrir þig og þína
LEIGUMARKAÐUR
21. maí. Stúlka. Þyngd: 3.965 gr.
Lengd: 51 cm. Foreldrar: Harpa
Dröfn Skúladóttir og Hlynur
Aðalsteinn Gíslason, Borgarnesi.
Ljósmóðir: Lóa Kristinsdóttir.
Sími: 666 5110
smaprent@smaprent.is
www.smaprent.is Smáprent
Getir þú
barn þá
birtist það
hér, þ.e.a.s.
barnið!
www.skessuhorn.is