Heimsmynd - 01.12.1990, Page 31
risafyrirtækjum með áður óheyrðri
skuldsetningu. Ofan á þetta bætist fall
dollarans, sem nú hefur í fyrsta sinn frá
styrjaldarlokum glatað hlutverki sínu
sem öruggt aðdráttarafl til fjárfestinga á
krepputímum. Breska hagkerfið með
innbyggðri, rótgróinni verðbólgu, sem
komin er í tveggja stafa tölu, háum vöxt-
um og silalegum hagvexti er heldur ekki
aðlaðandi um þessar mundir. Og nú hafa
fyrstu aðvörunarmerkin birst varðandi
japanska efnahagsundrið. Hlutabréfa-
markaðurinn í Tokýó féll um 25 prósent
á fyrsta ársfjórðungi. A þessum áratug
urðu Japanir við kröfum Bandaríkjanna
og létu jenið fljóta og slökuðu á skilyrð-
um fyrir lánveitingum. Þetta er aftur tal-
ið hafa valdið þeirri gífurlegu sprengingu
sem orðið hefur á verði lands í Japan og
fjármálablöð tala um sem sprengju í
hjarta heimsviðskiptanna. Ef þeirri
sprengju yrði leyft að springa og verð á
japönsku landi snarfélli, spryngi jap-
anska bankakerfið samtímis, um leið og
tryggingar fyrir lánum þess yrðu verð-
lausar. Þetta gæti komið af stað heims-
kreppu. Skuldbindingar þýska Seðla-
bankans vegna sameiningar Þýskalands
mundu á sama tíma draga mjög úr svig-
rúmi hans til aðgerða og áhrifa á við-
skiptakerfi heimsins.
Styrjöld við Irak gæti orðið dropinn
sem fyllti mælinn og hrundið heims-
kreppunni af stað.
Yfirborð atburða ársins 1990, þegar
heimsveldi og kenningakerfi um 1000 ára
ríki hafa hrunið og fallið og lýðræði og
markaðskerfi næstum fyrirhafnarlaust
unnið stóra sigra og hlotið almenna við-
urkenningu, hefur vakið mönnum bjart-
sýni og endurnýjaða trú á næstu framtíð.
En sé nánar skoðað stendur efnahags-
kerfi alls heimsins völtum fótum.
Ákveðin rás atburða gæti hrundið af stað
keðjuverkunum, sem leiða mundi til
efnahagshruns í frjálsa markaðskerfinu á
borð við það sem við höfum á þessu ári
séð í hinu miðstýrða efnahagskerfi Aust-
ur-Evrópu. Og sennilega höfum við
aldrei verið jafnilla búin undir slíka at-
burði síðan í Heimskreppunni 1930.
Ferskir vindar blésu ekki síður um
Afríku en annars staðar í veröldinni.
Nelson Mandela var látinn laus eftir
meira en þriggja áratuga prísund, de
Klerk forseti Suður-Afríku virtist reiðu-
búinn til að beita sér fyrir afnámi hinnar
illræmdu apartheidstefnu fyrirrennara
sinna. Gangur samninga hefur hins veg-
ar reynst skrykkjóttur og blökkumenn
hafa átt í blóðugum illdeilum innbyrðis,
sem Mandela sakar öryggislögregluna
um að kynda undir. Enn er þeirri spurn-
ingu ósvarað hvort kynþáttavandamál
Suður-Afríku verða leyst með friðsam-
legum hætti eða ríkið leysist upp í blóð-
ugri borgarastyrjöld. Annars staðar í
Afríku virtist eins flokks kerfi svo-
nefndra sósíalista- og marxistaflokka í
upplausn og vaxandi skilningur á því að
ekki eru öll vandamál Afríku utanað-
komandi öflum að kenna. Álfan öll er í
CIRKEL
KAFFI
3 TEG. SANT0S ■ KÓL0MBÍA • KÓLOMBÍA/KENÝA
VERSLUNARDEILD
SAMBANDSINS