Litli Bergþór - maj 2019, Qupperneq 11

Litli Bergþór - maj 2019, Qupperneq 11
Litli-Bergþór 11 Gleðin skein úr hverju andliti og vinnusemin var mikil. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá tengslin styrkjast milli aldurshópa og unglingarnir okkar fá hrós fyrir þolinmæði og hjálpsemi gagnvart þeim yngstu. Svona uppstokkun á skólastarfi er mikilvægur þáttur starfsins. Smiðjuhelgar eru orðnar partur af starfinu okkar með unglingunum. Sjötta smiðjuhelgin var haldin þann 5. og 6. apríl síðastliðinn. Smiðju- helgar hófust sem samstarfverkefni 4 skóla: Blá- skóga skóla Laugarvatni, Bláskógaskóla Reyk- holti, Flóaskóla og Kerhólsskóla. Flóaskóli dró sig út úr verkefninu eftir 4. helgina, en eftir standa hinir skólarnir þrír. Skólarnir skiptast á að halda smiðjurnar og skipuleggja eftir óskum og væntingum nemenda. Smiðjuhelgar veita smærri skólum kost á að bjóða upp á fjölbreyttar valgreinar og einnig er þetta góð leið til að efla félagslega færni nemenda í fámennum skólum. Við, stjórnendur skólanna, hittumst reglulega varðandi þróun þessarar vinnu, því þetta er þró- unar starf í sífelldri endurskoðun. Við göngum því full bjartsýni inn í vorið og hlökkum til komandi tíma í skólanum okkar. Lára Bergljót Jónsdóttir, aðstoðarskólastjóri Bláskógaskóla Reykholti. Samstarfsverkefni allra í skólanum unnið á þemadögum; „vinátta“. Skálholtskirkja.Þemadagar: Húsin í þorpinu. Draugar, álfar og tröll, unnin á þemadögum.

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.