Litli Bergþór - mai 2019, Síða 15
Litli-Bergþór 15
Saga af tölvu
Þegar undirrituð kom inn í ritnefnd Litla-Bergþórs árið 1990 voru þau Arnór Karlsson í Arnarholti og Drífa Kristjánsdóttir á
Torfastöðum fyrir í ritnefndinni, ásamt fleirum
og árið eftir kom Pétur Skarphéðinsson læknir
inn. Við fjögur áttum svo eftir að vera þaulsætin
í ritnefndinni, aðrir komu og fóru. Við fluttum
fundar aðstöðu úr barnaskólanum að Torfa-
stöðum og áttum þar í ein 10 ár athvarf
hjá gjaldkeranum henni Drífu. Það
var rúmt um ritnefndina í kennslu-
stofunum á Torfastöðum, með tvær
Macintosh tölvur sem við fengum
afnot af og hollar veitingar húsbænda
þar. Drífa setti blaðið upp á þessar
eðal tölvur, sá um umbrot, prentun,
pökkun og dreifingu. Einfalt og þægilegt -
fyrir okkur hin. Einu vandræðin að við þurftum
stundum að endurskrifa texta úr PC tölvum vegna
samskiptaörðugleika við Macintoshinn.
En svo var það árið 2002 að Drífa ákvað að hætta
í ritnefndinni eftir 14 ára farsælt og óeigingjarnt
starf. Já, það var nú verra.
Ritnefndin allt í einu orðin húsnæðislaus og
ekki nóg með það, þurfti sjálf að læra að setja upp
blaðið og sjá um allt þetta praktíska!
Það var kosinn nýr ritnefndarmaður, Margrét
Annie Guðbergsdóttir og ritnefndin flutti fyrst
heim til hennar, þar sem hún átti rúmt húsnæði.
Síðar, þegar hún hætti, fluttum
við heim til ritstjórans, Arnórs
Karlssonar, sem þá var fluttur í
Reykholt.
Ritstjórn samdi við Axel Árna-
son prest í Gnúpverjahreppi um
kaup á nýrri, fínni og rándýrri
Appletölvu, með tilstyrk
Ungmennafélagsins, en hún
átti að nýtast til að setja upp
blaðið. En þangað til hún kæmi
í hús var ekki annað að gera en
safna efni blaðsins inn á tölvu
ritstjórans og senda það í umbrot
í Prentsmiðjuna á Selfossi.
Nýja tölvan kom og ritstjórn-
ar meðlimir fóru að prófa sig
áfram með hana. En þetta
var enginn gamall og góður
Macintosh, þar sem allt lá ljóst fyrir með hvernig
gera ætti hlutina. Ó, nei, ekkert nema táknmyndir
og undarlegheit, sem við bárum
ekkert skynbragð á. Og aldrei
varð af námskeiðinu, sem
við ætluðum að fá hjá Axel.
Þegar til kom sögðust
þeir í Prentsmiðjunni
líka frekar vilja fá blaðið
óuppsett, svo það var svo
sem ágætt úr því
sem komið var.
Nýju tölv unni var
parkerað út í horn
hjá rit stjóranum,
og þar var hún, þar
til hún flutti upp á loft
í Áhalda húsinu árið 2009.
Eftir 10 ár á hillu þar, var
hún tekin niður um daginn
með viðhöfn og er nú í
aðlögun að tónlistarvinnslu.
Verður fróð legt að vita hvort þessi 17 ára gamla
tölva sé enn til einhvers nýt?
En að hún skyldi ekki vera seld strax og ljóst
var að hún nýttist ekki, það er önnur spurning.
Geirþrúður Sighvatsdóttir.
Gott hjá
ritnefndunum að leyfa
þessari græju að úreldast
uppi í hillu. Þetta er stórlega
ofmetið fyrirbæri, tölvur.