Litli Bergþór - May 2019, Page 16

Litli Bergþór - May 2019, Page 16
16 Litli-Bergþór Það ætti ekki að vera flókið að segja frá því hvernig dæmigerður dagur í vinnunni minni lítur út. Hins vegar flækist það fyrir mér, þar sem allir dagar við vinnu mína hér á Friðheimum eru nokkuð ólíkir. Þegar ég útskrifaðist úr Garðyrkju skól anum af ylræktarbraut og við Knútur festum kaup á garðyrkjustöð sá ég fyrir mér garðyrkjuvinnu eins og ég þekkti hana úr verknáminu mínu á Syðri Reykjum og Sólveigarstöðum. Uppskerustörf, og vinna við að hlúa að plöntum til að viðhalda uppskeru, líkamleg vinna með mold undir nöglunum og þar fram eftir götunum. Pælingar og samtöl við mér vitrara fólk til að garðyrkjan gangi sem best og uppskeran haldist í hámarki. Fyrstu árin voru svona, en nú þegar við erum ferðaþjónustubændur líka, hafa allskonar fleiri atriði fléttast inn í vinnuna mína, og fleiri starfsmenn bæst í hópinn til að hjálpa okkur við að rækta tómata og taka á móti ferðamönnum. Allir dagar hefjast hins vegar þannig að ég byrja á því að fara inn í gróðurhús eins og ég kalla það, en þá kíki ég í tölvuna til að athuga hvort loftslag og vökvun sé eðlileg, og allt tölvustýrt gangi sinn vanagang. Eftir að börnin voru farin í skólann rölti ég út í gróðurhús. Tómatatínsla og pökkun voru í fullum gangi hjá starfsfólkinu, sem og undirbúningur fyrir opnun veitingastaðarins. Þennan daginn átti ég von á ráðunautum, en þeir góðu menn koma við og við með fróðleik og reynslu, sem þeir deila með mér. Núna erum við t.d. að leita að tómatyrki sem gefur bragðgóða tómata á við gamla sort sem við höfum ræktað mjög lengi og er að úrkynjast, og þá er gott að fá ráðunaut í heimsókn með ræktunarráð og pælingar. Við höfum löngum horft til Finna í þessum efnum, og Sune, sem kom í dag, er einmitt þaðan. Hann gaf góð ráð líkt og vant er. Þegar þeir kvöddu beið mín stuttur fundur með Rakel, markaðs- og gæðastjóranum okkar í Friðheimum, en það er komið að úttekt hjá okkur í Vakanum, sem er gæða- og umhverfiskerfi ferða- þjónustunnar. Það er býsna mikil vinna að innleiða gæðaeftirlit og byggja upp innviði í fyrirtækinu okkar, þar sem við vinnum á svo fjölþættum Dagur í lífi garðyrkju- / ferðaþjónustubónda Helena Hermundardóttir, Friðheimum Blaðið hleypir nú af stokkunum nýjum lið, sem ber heitið Dagur í lífi. Þessum þætti er ætlað að veita örlitla innsýn í einn dag í lífi fólks í sveitinni, tvo til þrjá einstaklinga í hverju blaði og fá þannig sýn á líf og störf fólks úr sem flestum atvinnugreinum, en það er margt sem býr í hversdeginum. Til að ríða á vaðið fengum við liðsinni þeirra Helenu á Friðheimum og Ása í Reykholti. Mynd með greininni er af undirritaðri og Jóni kokki, hún sýnir mig ekki við hefðbundin garðyrkjustörf, heldur gefur smá innsýn i fjölbreytnina í mínu starfi, en hér erum við að skála í tómatbjór sem við létum brugga fyrir okkur til að hafa í veitingastaðnum okkar. Hyvä tomatti kuin sinä.

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.