Litli Bergþór - May 2019, Page 17

Litli Bergþór - May 2019, Page 17
Litli-Bergþór 17 svið um; tómata ræktun, hesta sýningum og ferða- þjónustu með veitingum. Við viljum alltaf leggja áherslu á gæði, hvort sem það er í ræktun tómata, eða í ferða þjónustu, og því vöndum við til verka í gæðamálum, og á Rakel stóran þátt í því að halda utan um gæðamálin og Vakann. Á skrifstofunni hitti ég líka fyrir Jón kokk, og það er alltaf gaman að spjalla við hann og hlæja yfir hinu og þessu sem gengur á hjá okkur. Það er aldrei leiðinlegt með kokknum :). Ég skrapp heim í stutta matarpásu, en síðan tók við vökvun í uppeldishúsinu, en ég sáði fyrir nýjum tómatplöntum fyrir helgi og þær þarf að vökva daglega. Í uppeldishúsinu hjá okkur er annars fullt af plöntum af ýmsum toga, mest basilikuplöntur, sem við notum á veitingastaðnum okkar, en á hverju borði er pottur með basiliku sem er hægt að klippa út á matinn, en eins og alþjóð veit eru tómatar og basilika pottþétt par. Ég klippti slatta af basilikunni til að færa kokknum í eldhúsinu, en við búum líka til okkar eigið pestó. Það er þannig að ég næ sjaldnast að klára í einum rykk það sem ég fæst við í gróðurhúsunum, þar sem oft og iðulega kemur ýmislegt upp á sem þarf að sinna, t.d. í dag kom lampasölumaður sem vildi kynna sig og gróðurhúsalampa, og ferðamaður sem var með sérstakar spurningar til mín um ræktun tómata. Við erum með lifandi gróðurhús, þar sem mjög margir heimsækja okkur með ýmsar spurningar og reynum við alltaf að svara eftir bestu getu, og oft biður fólk um mynd af sér með okkur. Gaman að því, en í dag var fullt hús af gestum sem endranær og líflegt í gróðurhúsinu. Í lok dags fórum við Ewa, sem er verkstjóri í tómatræktuninni, yfir áætlun um lífrænar varnir, en nú er sá árstími sem hvítfluga fer að gerast ágengari í gróðurhúsunum. Við erum með pottþétt plan til varnar! Í hnotskurn var þessi dagur góður, verkefni dagsins voru fjölbreytt, ég hitti skemmtilegt fólk OG fékk smá mold undir neglurnar! Getur ekki verið betra. Dagur í lífi grunnskólanema Sigurður Sævar Ásberg Sigurjónsson, Reykholti Ég heiti Sigurður Sævar Ásberg Sigurjónsson, oftast kallaður Ási. Ég bý í Reykholti og er nemandi í 10. bekk. Kennarinn minn bað mig um að skrifa dagbók um einn dag í lífi mínu til birtingar í Litla Bergþór og hér kemur það. Föstudaginn 29. mars 2019, vaknaði ég um átta til að græja mig fyrir skólann. Þessa vikuna var ekki hefðbundin kennsla heldur var þemavika hjá okkur í Bláskógaskóla Reykholti og þennan dag byrjuðum við á elsta stiginu með Pálínuboði. Ég lagði mikið á mig (eða þannig) og mætti með einn kexpakka í boðið. Meðan við snæddum þessar dýrindis veitingar las kennarinn okkar, hún Aðalheiður, hamfarasögu um mannskaða á Mosfellsheiði. Eftir frímínúturnar fórum við að spila félagsvist og ég var einn af mörgum sem enduðu í þriðja sæti. Mér þótti svekkjandi að lenda á palli í fyrsta sinn í félagsvist og fá engin verðlaun.

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.