Litli Bergþór - maj 2019, Side 23

Litli Bergþór - maj 2019, Side 23
Litli-Bergþór 23 Gæludýrið mitt Tröllin Ég á hest sem heitir Kóngur. Hann er fæddur 11. júlí, 2007. Þegar hann fæddist var hann næstum því svartur á litinn. En nú er hann grár. Þegar hann eldist verður hann nánast hvítur. Hann er mjög skemmtilegur og eltir mig eins og hundur. Hann þarf að fá að borða tvisvar til þrisvar á dag og alltaf nóg að drekka. Stundum fær hann hestanammi þegar hann er duglegur. Við förum oft í reiðtúr og á reiðnámskeið. Í síðasta tíma lærðum við hindrunarstökk. Ég hef gaman af Kóngi, því við leikum okkur saman, hann er skemmtilegur og góður og mér líður eins og hann skilji mig. Kristín María Kristjánsdóttir, 4. bekk. Ég á heima í Klettaborg. Klettaborg er stór og falleg. Ég á heima í stórum helli. Ég er stór og ljót og heiti Glússa. Í dag hitti ég vin minn sem býr í Snjóborg. Við fórum á sleða og renndum okkur nokkrar ferðir. Sleðinn var rauður á litinn og röndóttur. Svo fór ég heim í Klettaborg. Á leiðinni hitti ég bæjarstjórann í Klettaborg. Hann er stór og feitur með úfið hár, í bláum jakkafötum, með yfirvaraskegg. Hann sagði að hann ætlaði að bjóða öllum í Snjóborg á leikrit í Klettaborg. Það verður sýnt í stóra leikhúsinu við grænu trén sem við erum að rækta. Ég hlakka til að fara í leikhús. Ásdís Erla Helgadóttir, 3. bekk. Blaðið þakkar Heklu Hrönn Pálsdóttur, kennara við grunnskólann, fyrir aðstoðina. Raflagnir - Viðgerðir Jens Pétur Jóhannsson LÖGGILTUR RAFVERKTAKI Tökum að okkur nýlagnir, hönnun raflagna og alla almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum. Efnissala og varahlutaþjónusta. Fljót og góð vinna. Sumarbústaðaeigendur athugið að við sækjum um öll leyfi fyrir heimtaug að sumarhúsum og lagningu raflagna. Heimasími 486 8845 Verkstæði 486 8984 GSM 893 7101

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.