Litli Bergþór - maj 2019, Side 24

Litli Bergþór - maj 2019, Side 24
24 Litli-Bergþór Þessi þáttur í blaðinu hefur verið misstór gegnum tíðina. Að þessu sinni er hann umfangs- minni en oft áður, annaðhvort vegna þess að Tungnamenn hafa haldið sig á mottunni, eða þá vegna þess að það er logn í Tungunum. Veðurannáll frá því í desember og fram í maí 2019. Segja má að í heildina hafi veturinn verið mildur og átakalítill. Færð yfirleitt góð. Snjór hlífði oft jörð frá janúar og fram í apríl og var jarðklaki því með minnsta móti. Óvanalega mikil hlýindi gerði í apríl, þar sem hiti komst upp í 17°C í lok mánaðarins. Annállinn hljóðar annars svo: Í desember var hiti flesta daga yfir frostmarki, skýjað og oft skúrir. Jólin voru rauð og hlý, en um áramótin frysti á auða jörð í fallegu veðri. Janúar var mildur framanaf, en um miðjan janúar frysti loks fyrir alvöru og fór að snjóa. Færð var þó oftast góð á þjóðvegum en misgóð í heimreiðum. Seinnipartinn í febrúar gerði hvasst skúraveður í nokkra daga svo tók upp mest allan snjó, en um miðjan mars snjóaði aftur. Sá snjór þiðnaði svo í mildu vorveðri fyrstu vikuna í apríl. Þann 11. apríl hafði nær allan snjó tekið upp og við tók þrastakliður og gróandinn með hlýju veðri út apríl. Í desember 2018 hlaut Hallgrímur Davíð Egilsson frá Skálholti, ásamt samstarfsfélögum sínum í Svarma ehf, Copernicus Masters Challenge verðlaunin 2018, sem evrópska geim- vísinda stofnunin, ESA (European Space Agency) veitir árlega. Svarmi sérhæfir sig í drónatækni og hlaut verðlaunin fyrir sjálfvirknivæðingu þeirra, sem getur m.a. nýst við að mynda landsvæði. Breytingar hjá Bláskógabyggð. Á fundi í janúar samþykkti sveitar stjórn samhljóða breytingar á sam þykktum um stjórn og funda sköp Blá - skógabyggðar. Veigamestu breyting- arnar fela í sér að byggðaráð er fellt niður og fækk að um eina nefnd, samgöngunefnd. Þá er öldunga ráði bætti við. Samhliða þessari samþykkt ákvað sveitarstjórn að fastir fundir sveitarstjórnar verði 1. og 3. fimmtu dag í hverjum mánuði, kl. 15.15. Þóknanir vegna setu í sveitarstjórn og í nefndum. Greiðsla til aðalmanna í sveitarstjórn er kr 56.421 á mánuði. Fyrir setu í nefndum eru greiddar kr. 14.105 á mánuði, en formenn nefnda fá tvöfalda þá upphæð. Nýja Spóastaðafjósið. Í janúar var nýtt og glæsilegt fjós tekið í notkun á Spóastöðum. Í tilefni af því bauð Spóastaðafólk eldri borgurum í Biskupstungum í heimsókn til að skoða og fræðast um starfsemina sem þar fer fram. Í lok apríl var síðan opið hús á Spóastöðum. Kýrnar voru þá búnar að aðlagast nýjum aðstæðum og líf og starf í fjósinu komið í fastar skorður. Um Hvað segirðu til? Öldungaráð?! Á hvaða leið erum við eiginlega? Hallgrímur Davíð er lengst til hægri á myndinni. Nýja Spóastaðafjósið.

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.