Litli Bergþór - maj 2019, Qupperneq 26

Litli Bergþór - maj 2019, Qupperneq 26
að gerast í málefnum þessa hóps sem vert er að sinna, þar nefnir hún meðal annars það sem lengi hefur verið til umræðu hér í uppsveitunum, sem er bygging hjúkrunar- eða dvalarheimilis. Þá telur hún einnig fjármál eldri borgara vera eitthvað sem vert sé að vera vakandi yfir. „Eldri borgarar eru skilgreindir þeir sem eru 60 ára og eldri, við þurfum að virkja „yngri“ eldri borgara til að taka þátt í þessu starfi. Annars er það mest um vert að þessi aldurshópur nái að hittast og hafa gaman saman, því maður er manns gaman“ segir Elín. Þess má til gamans geta, að Elín og systkinin frá Hveratúni eru systkinabörn. Matthías Jens Ár- mann er kominn í topp 10 úrslit í Verk - smiðjunni sem er ný - sköp unarkeppni grunn - skólanna fyrir börn í 8.-10. bekk. Í lok desember var hrað hleðslustöð fyrir rafbíla tekin í gagnið við Geysi. Eyk ur hún til muna mögu leika notendur rafbíla til ferðast um sveitina. Á myndinni má sjá þau Ástu Stefáns dóttur sveitarstjóra og Helga Kjartansson oddvita Bláskógabyggðar hlaða bíl. Allt er svalt sem vel er kalt Í mars var stóri kælirinn í Bjarnabúð tekinn í gegn. Skipt var um plötur í loftinu, veggir málaðir og hillur lagaðar. Um leið voru sett ný ljós og kælibúnaður yfirfarinn. Leitin að gjörðabókum læknishéraðsins. Um nokkurt skeið hefur staðið yfir leit að fundargerðabókum oddvitanefndar Grímsnes- og síðar Laugaráslæknishéraðs milli áranna 1920 og 1979. Leitin hefur nú loksins borið árangur að hluta, en nú hafa fundist gjörðabækur frá 1935 til 1979. Þá vantar aðeins 15 ára tímabil af þessari sögu. Myndin er úr fundargerð oddvitanefndar árið 1935. Aukin flokkun úrgangs. Í byrjun mars var brúntunnu fyrir lífrænan úrgang bætt við flokkun á pappír, plasti og almennu sorpi í sveitarfélaginu. Er þetta tilkomið af auknum tilkostnaði við urðun sorps. Tungnamenn í flutningum? Undanfarið hefur borið á því að gamalgrónir Tungnamenn hafa fundist skráðir á nýjum stöðum - þótt búi enn í sínum gömlu húsum. Þannig hafa Elsa og Gunnar í Asparlundi lent á Kirkjuholtsvegi 1, Oddur Bjarni Bjarnason allt í einu birst á Brautarhóli 2, Svava Theódórsdóttir býr ekki lengur í lögbýlinu Höfða heldur á lóðinni Höfða, Sveinn og Áslaug á Espiflöt eru nú lent á Sólbraut 3, Íþróttamiðstöðin í Reykholti er nú við Bergholtsveg og svona mætti lengi áfram telja. Svo má líka geta þess að skv. hinum alvitra hr. Google þá eru upptök Ölfusár í Sandvatni! Afurðamet. Eiríkur Jóns son í Gýgjarhólskoti var enn og aftur með af urða hæsta fjárbú lands ins árið 2018. Hann var með 287 ær á fóðrum og skilaði hver ær að meðaltali 44,3 kílóum. Bý ég þá á Blá- fellslóð á Ölfus- árbökkum? Nei, hættu nú! 26 Litli-Bergþór Matthías Jens Ármann. Er ekki tími til kominn að tengja? Ásta Stefáns dóttir sveitarstjóri og Helgi Kjartansson oddviti stinga í samband. Úr fundargerð oddvitanefndar árið 1935.

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.