Litli Bergþór - maj 2019, Qupperneq 27

Litli Bergþór - maj 2019, Qupperneq 27
Litli-Bergþór 27 Í gamalli dagbók frá Slátur- félagi Suðurlands rakst ég fyrir tveim árum á dagbókarslitrur föður míns, Sighvatar Arnórssonar á Miðhúsum, frá bændaferð, sem hann og móðir mín, Margrét Grünhagen fóru í til Grænlands í júní 1981. Fyrir mig, sem ekki hef komið á þessar slóðir á Grænlandi, var þetta fróðlegt og mér fannst gaman að lesa þessar minningar. Ég vona að les- endur Litla-Bergþórs hafi nokkurt gaman af líka, þó ekki hafi verið margir Tungna menn með í för. En auk foreldra minna voru það Guðmundur Ingimarsson, þá heimilisfastur í Vegatungu og Grímur Ögmundsson á Syðri-Reykjum. Foreldrar mínir lögðu af stað í ferðina 21. júní 1981 eftir erilsama daga heima á Miðhúsum við að ljúka vorverkum og undirbúningi. Við gefum Sighvati orðið þegar þeir ferðafélagarnir eru mættir upp í Bændahöllina við Hagatorg: Jónas Jónsson var í óða önn að afgreiða gjaldeyrinn danska uppi á skrifstofu og seinustu þátttakendur var að drífa að. Kl. rúmlega 15.30 var lagt af stað í hópferðabíl suður á Keflavíkurflugvöll og eftir nokkra verzlun í Fríhöfninni var flogið af stað kl. rúml. 17. Við seinkuðum klukkunni um 2 klst. til samræmis við grænlenskan tíma og komum til Narsarsuaq* kl. rúml. 19 eftir tæpl. 4 klst. flug. Flogið var yfir skýjabreiður og grisjaði í sjóinn á stöku stað. Við sáum fjöll og jökla þegar flogið var inn yfir suðurodda Grænlands, en síðan var allt hulið skýjabreiðu, þar til flugið var lækkað vestarlega og snúið við inn Eiríksfjörð í lítilli hæð. Í Narsarsuaq var lágskýjað og þokusuddi þegar þar var lent, en þó mátti greina nokkuð af svipmóti landsins. Grýtt land og jarðvegslítið, en klætt grænu kjarri hátt upp í hlíðar. Talsvert var keypt af vínföngum í fríhöfninni og varð þó enginn ófær nema Grímur á Reykjum. Kvöldverð og gistingu fengum við á flug vallar- hótelinu í Narsarsuaq. Þar kom til móts við okkur Lasse Bjerge, sem hefur verið 4 ár á Íslandi á Lækjarmóti, Hólum og víðar. Þátttakendur í ferðinni voru 28: Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri Jón Sigurgeirsson, Akureyri (frá Helluv.) Ragnhildur Jónsdóttir, Akureyri (frá Gautl.) Páll Jónsson, Akureyri Þórveig Hallgrímsdóttir, Akureyri (frá Pálsgerði) Hreinn Pálsson, Akureyri Hörður Haraldsson, Sauðafelli Dölum Kristín Ágústsdóttir, Sauðafelli Dölum Guðmundur Þorsteinss., Efri Hrepp Borgarf. Gyða Bergþórsdóttir, Efri Hrepp Borgarf. Guðmundur Jósafatsson, Blönduósi Þorleifur Ingvarsson, Sólheimum, Svínav.hr Eggert Láruss., Hjarðartúni, Vatnsd. Hjördís Líndal, Hjarðartúni, Vatnsd. Jón J. Guðmundsson, Munaðarnesi Strandas. Pálína Guðjónsdóttir, Munaðarnesi Strandas. Magnús Óskarsson, Hvanneyri Guðm. Óskarsson, Kópavogi Ásgeir Einarsson, Reykjavík Ari Ívarsson, Patreksfirði Bændaferð til Grænlands 1981 Geirþrúður Sighvatsdóttir: Kirkjurústirnar í Hvalsey.

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.