Litli Bergþór - May 2019, Page 29
Litli-Bergþór 29
minjagripi (skeið og hálsmen) og krökkunum
nokkrar krónur, en Stína færði Margréti að gjöf
heimaunnin hálsmen og dúk. En nú var ekki
lengur til setu boðið. Fólkið hitt var komið í
bátinn og ekki um annað að gera en að skunda
þangað. Og samstundis voru landfestar leystar
og stímað suður yfir fjörðinn. Heimskautsmáninn
stakk stefni að festarkletti handan fjarðar þar sem
slakki er í fjallgarðinn bak við Garða (Igaliko).
Farangur okkar var settur á traktorsvagn en sjálf
gengum við Konungsveginn yfir hálsinn, nema
nokkrir af elztu mönnunum sátu í Landróverbíl.
Þegar við komum í land, tók ég mynd, en lagði
svo myndavélina frá mér, meðan ég var að spyrða
úlpu og ráptuðru við stóru töskuna okkar. Einhver
sá myndavélina þarna í reiðileysi og bjargaði
henni í bílinn. Mér þótti leitt að hafa hana ekki þar
sem við gengum Konungsveginn í þessu skínandi
fagra og kyrra veðri. En úr því enn reyndist drjúgur
tími eftir til kvölds, þegar komið var í Garða, brá
ég mér í létta skó og gekk aftur upp á hálsana fyrir
ofan Garða til að taka myndir af allri þeirri dýrð,
sem þar blasir við, og ekki spillti fyrir að komast
í færi við nokkrar sauðkindur, úr því ég hafði ekki
getað tekið myndir af þeim í Brattahlíðarrétt. Um
kvöldið var okkur gerð ágæt veisla í „Blásal“ og
var það Sauðfjárræktarfélag Grænlendinga, þ.e.
Búnaðarfélag þeirra, sem veitti. Þar var meirihluti
stjórnarmanna félagsins saman kominn og konur
þeirra með. Eftir ánægjulega veislu, ræðuhöld og
söng, var haldið heim til gistingar í tveim húsum.
Það var hlýtt og þægilegt hús sem við gistum í,
fyrir utan það að það marraði mikið í rúmunum.
Þorleifur gamli frá Sólheimum og Lassi o.fl. sátu
áfram og ræddu saman og þrættu yfir vínlögg og
gamli maðurinn tók miklar söngrokur á milli.
Þessu fór fram þar til kl. var um 3.30 Þá tókst
Hreini Pálssyni loks að koma Þorleifi og félögum
í bólið og þurfti til þess mikla fortölulist. Um 4
leytið festi ég loks blund.
Þriðjudagur 23. júní
Veður var enn skínandi fagurt þegar við vöknuðum
morguninn eftir. Við fengum morgunverð í Blásal
og gengum síðan að hinum stórkostlegu kirkju-
og bæjarrústum í Görðum. Ég hafði komið þar
við kvöldið áður, en á þennan stað væri hægt að
koma mörgum sinnum til að láta hugann reika
aftur í aldir. Við litum við í fjárhúsi skammt frá, en
smáspöl neðar voru tveir ungir menn að undirbúa
byggingu nýs fjárhúss fyrir 400 fjár. Sá sem var
að byrja þessar framkvæmdir hafði verið á Hesti
í Borgarfirði.
Undir húsvegg skammt frá sat gamall Græn-
lendingur og sýndi listir sínar við að bora í bein,
setja upp gildru, spila á harmónikku o.fl. Hann
sýndi þessar sömu listir kvöldið áður, þegar við
komum úr veislunni. Og reyndar gerði sá gamli
tilraun til að skemmta með harmonikkuleik meðan
veislan stóð, en það var ekki þegið. Ásgeir Einars-
son sveiflaði sér þá í sólódansi og ein grænlenska
konan kom þá aðvífandi í fangið á honum.
Næst var farið í einokunarverslunina (KGH)
í Görðum sem stendur á klöppunum niður við
bryggju og þar keyptum við filmur og póstkort.
Enn var tími til að skoða hina stórkostlegu
birgðaskemmu Garðabiskupa þarna rétt fyrir
ofan. Jón Sigurgeirsson var þar með myndavél
sína og mælitæki við að rannsaka Grettistökin í
skemmu veggjunum.
Klukkan að ganga 12 leystum við landfestar og
tókum stefnu suður til Kanisartut í Vatnahverfi.
Narssaq, séð inn Eiríksfjörð t.h.