Litli Bergþór - maí 2019, Blaðsíða 30

Litli Bergþór - maí 2019, Blaðsíða 30
30 Litli-Bergþór Við brýndum stafni við festarklett hjá fjárrétt, þar sem reyfi héngu til þerris, því að Grænlendingar voru við smalamennskur og rúning um þessar mundir. Þar sáum við færilús í fyrsta sinn í þrjátíu ár. Þarna mátti sjá, að hart hafði verið beitt á víðinn og birkið, en þetta er afbragðs fjárland eins og annarsstaðar í Grænlandi. Við gengum snarbrattan veg að nokkru leyti steyptan, yfir dálítinn háls. Handan hans var stórt vatn og fagurlega grónar hlíðar allt um kring. Þarna á háum hóli undir klettaþili var mjög fallega uppbyggður bær og fjárhús tvö fyrir um 700 fjár og sunnar nýtt hús unga bóndans, Niels Lund, sem er einn stjórnarmanna í Sauðfjárræktarfélaginu. Móðir hans, kona eldri bóndans, er nú á ferð á Íslandi. Okkur var borið kaffi og meðlæti út í sólina og blíðuna við hús unga bóndans og þar voru að lokum teknar myndir bæði af gestgjöfum okkar og ferðahópnum. Alltaf hélst sama lognblíðan og glampandi sólskinið og sólskríkjan söng hástöfum við klettaþilið. Við lögðum svo af stað til baka og heimafók fylgdi okkur til strandar. Okkur var bent á forna rétt við vatnið, við enda klettaþilsins, sem fyrr er nefnt, og garð að því, svo að þar skapaðist afbragðs aðstaða til aðreksturs. Við kvöddum svo fólkið og fórum nú á tveim bátum sem leið liggur út (vestur) til Julianehaab (Qaqartoq). Við vorum á minni bátnum og fórum á undan. Við sigldum í sólarátt og sólin sindraði á haffletinum. Skyndilega rakst báturinn harkalega á lítinn ísjaka og drap á sér. Lassi hafði lagt sig á fleti niðri í lúkarnum en hrökk nú upp og sagði á góðri íslensku, „andskotans asninn". Sem betur fer hafði þetta engar alvarlegar afleiðingar og ferðinni haldið áfram án tafar. Stóri báturinn fór nú að draga á okkur, en þegar hann var kominn á hlið við okkur dró skyndilega úr ferðinni, því að önnur vél skipsins bilaði og kom sá bátur þó nokkuð seinna til hafnar. Rétt sunnan og austan við höfnina voru tveir tignarlegir borgarísjakar, sem óspart voru ljósmyndaðir. Julianehaab er mjög skemmtilegur bær, sem byggður er kringum vík á móti suðri og inn með á, sem rennur úr vatni og fram í víkina. Húsin eru byggð hátt upp í brattar hlíðar, en götur allar eru malbikaðar og vel frá gangstígum og þrepum gengið, svo að umferð gengur hratt og vel. – Við stigum á land á smábryggju, „Konungsbryggjunni“ og vorum flutt í bíl upp í ágætt gistihús uppi í brekkunni. Við fengum góðan kvöldverð á hóteli niðri í bænum, en um kvöldið, sem var Jónsmessukvöld, röltum við fyrst um bæinn og horfðum á bálin, sem tendruð voru víða um holt og hæðir, í bænum og ofan við hann. Að lokum gengum við upp á höfðann austan við bæinn. Við fórum að hátta um miðnætti, mér þótti ágætt að fá mér steypubað um kvöldið, Margrét fór í bað morguninn eftir. Miðvikudagur 24. júní Þegar við vöknuðum á miðvikudagsmorgni, var allt í einu komin rigning. Glöggir menn höfðu séð forboða þessa kvöldið áður, en mér kom þetta dálítið á óvart. Eftir morgunverðinn á Nanok var gengið í verzlanir að kaupa regnfatnað og keypti Margrét handa sér stakk, buxur og stígvél, en ég þóttist vel búinn að heiman. Um kl. 10 var svo lagt af stað á öflugum bát með tveim hreyflum og öslað inn til Uperniviarsuk, þar sem Grænlendingar hafa tilraunastöð fyrir sauðfjárrækt og jarðrækt og jafnframt skóla fyrir verðandi bændur. Í Grænlandi fær enginn leyfi til að byrja búskap, nema hann hafi fengið búfræðimenntun í skólanum og síðan starfsreynslu hjá grænlenskum bónda og loks á Íslandi hjá bónda og oft jafnframt í Bændaskóla. Í Uperniviarsuk tóku á móti okkur þeir Kai Egede skólastjóri og sauðfjárræktarráðunautur, sem áður hafði hitt okkur í Görðum, og Paul Bjerge, faðir Lassa. Kai Egede stjórnar þarna tilraunum í sauðfjárrækt og er ráðunautur Grænlendinga á því sviði, en Paul Bjerge stjórnar tilraunum í jarðrækt. Fyrst var gengið í fjárhús og skoðað fé og hús. Grænlenska féð er að mestu út af fé, sem flutt var úr Húnavatnssýslu árið 1915. Guðmundur Ingimarsson sagði mér, að það væri mjög líkt því fé, sem var í Húnavatnssýslu fyrir hálfri öld, þó öllu stærra. Það er mun afurðameira en okkar fé, enda haginn helmingi betri á Grænlandi en á Íslandi, eftir því sem Ingvi Þorsteinsson sagði okkur þarna. Ingvi er þarna 6. árið í röð við gróðurmælingar og ráðunautastörf, þ.e. 1-1½ mán. á ári. Hann hitti okkur strax í Görðum. Það er strax auðséð að þeir Grænlendingar hafa ekki átt neinn Halldór Pálsson til að breyta vaxtarlagi fjárins. Það er greinilega miklu háfættara en okkar fé og grófbyggðara. Þó að ekki sé gott að dæma fé í byrjun sumars, þegar ærnar hafa lagt af á hámjólkurskeiðinu, þá held ég að megi fullyrða að þetta fé er ekki eins vel gert (eftir okkar kröfum) og íslenska féð er yfirleitt orðið. Lærin þynnri og bakvöðvi minni, þynnra um bóga og herðar. Um bakvöðva er þó auðvitað alls Það var háfætt hjá okkur í Bláfelli. Já, og grófbyggt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.