Litli Bergþór - maj 2019, Qupperneq 33

Litli Bergþór - maj 2019, Qupperneq 33
Litli-Bergþór 33 hátt um hamrastalla, en á löngum kafla er hátt standberg með fjölskrúðugum litbrigðum og myndum. Á einum stað er all myndarlegur foss og skútar og geilar í bergið. Við léttum ekki ferð okkar fyrr en komið var inn undir botn Eiríksfjarðar þar sem erindið var að skoða skógræktarreit. Þar gróðursetti Paul Bjerge Síberíulerki, stafafuru frá Alaska og smávegis af sitkagreni fyrir nálægt 25- 30 árum. Allmikið af lerkinu hefur drepist þarna, en þó eru þar sæmilega vöxtulegar lerkihríslur. Stafafuran stendur sig líklega öllu betur. Lasse hélt að þarna hefðu verið gróðursettar um 2000 plöntur, en um 20.000 í Ketilsfirði heima hjá honum. Eftir skamma stund var skógarlundurinn kvaddur og stefna tekin aftur út til Narssarssuaq. Ég tók myndir af flestum bændabýlunum sem við sigldum hjá um daginn, enda þokkalegasta veður, en nú var tekið að draga bliku á loft. Þegar við höfðum komið okkur fyrir á hótelinu á Narsarssuaq var tekið að dropa. Samt drifum við okkur í fjallgöngu ásamt þeim Páli Jónssyni og Þórveigu og gengum á hæðina austan við hótelskálana. Þar á hnúknum hefur verið víghreiður, fjarskiptatæki og sennilega loftvarnabyssa á stríðsárunum og víða lá eftir skran frá þeim tíma. Skammt frá okkur hljóp mórauð tæfa með grátt skott, en önnur kallaði í hlíðinni fyrir sunnan. Þarna er mjög falleg útsýn til skriðjökulsins inni á dalnum og yfir lítið vatn í gróðursælli klettakví. Í hlíðinni s.a. af hnúknum eru hvítfyssandi lækir og fossar og klappir vafðar birki, víði, lyngi og grasi. Við fengum ágætan kvöldverð á „Arctic Hotel“ og höfðum sér matsal (ásamt Ástralíubúunum). Þegar við sátum undir borðum kvaddi Ragnhildur frá Gautlöndum sér hljóðs og þakkaði þeim Jónasi og Lassa góða fararstjórn. Jónasi færði hún selskinn sem ferðafélagarnir höfðu samtök um að kaupa hjá „Eskimopels“ í Narsarsuaq, en Lassa færði hún hálsklút úr ull. Þegar við höfðum matast var H.Cr. Motzfeldt og Stína komin frá Brattahlíð. Þau færðu okkur kerti og snældusnúð frá fornum tíma, sem fannst innarlega í Brattahlíðarbyggð og Lars gamli sendi Hjálmi grænlenzka söngvabók. Þau Kristján og Stína sátu og röbbuðu við okkur fram til kl. 11, en þá fóru þau á ball í „Klúbbnum“ eins og þau nefna samkomustaðinn hér. Nú var tekið að rigna annað slagið. Sunnudagur 28. júní Ég vaknaði við rigningarhljóð og þegar ég leit út sá ég að þoka grúfði yfir fjöllum. Okkur var sagt að óvíst væri um flug heim. Hvort tveggja væri að ólendandi væri í Narsarssuaq og svo væru flugumferðarstjórar í yfirvinnubanni, vegna þess að þeir krefjast sömu kjara og starfsbræður þeirra í Evrópu. Á hótelinu var þýzk kona, Erica Pétursson, sem búin var að bíða í fjóra daga eftir flugferð til Godthaab (Nuuk) og var orðin mjög einmana og niðurdregin. Hún var harla fegin að hitta Margréti og geta létt af hjarta sínu. Þetta reyndist vera fyrri kona Hjálmtýs Péturssonar og sagði hún Margréti margt af hjúskapar- og skilnaðarraunum sínum. Nú starfar hún sem nuddkona (svæðameðferð) og er Bahái-trúar. Hún ætlaði til vinkonu sinnar í Godthaab, sem er sömu trúar og ætlaði að stunda þar vinnu sína í tvo mánuði. Þegar leið á dag varð það ljóst að ekkert yrði flogið og Jónas varð að semja um fæði og húsnæði fyrir hópinn og greiðslu eftirá að heiman. Annað slagið rigndi talsvert og Ingvi Þorsteinsson, sem þarna var kominn með bátnum sem sótti Lassa, sagði að þetta væri orðið mesta rigningartímabil sem hann hefði reynt á Grænlandi, en þó að veður væri stillt alla þessa daga og væri yfirleitt kyrrara en heima, gæti þó komið stórviðri annað slagið, einkum þegar „Föhn“-vindarnir blása suðaustan yfir jökulinn. Við sátum lengi síðdegis og röbbuðum við Ericu, en um kvöldið gengum við með Sauðafellshjónum, Páli, Þórveigu og Hreini, suður fyrir höfnina. Ekki má gleyma að geta þess að Lassi vinur vor varð að kveðja um miðjan dag, en hann hafði ætlað að doka við þangað til við kæmumst á loft. Nú var orðið ljóst að ég kæmist ekki á aðalfund Búnaðarsambands Suðurlands í Vík. Ég ákvað þó að sleppa öllum hringingum heim, enda vorum við orðin peningalaus. En sumir voru farnir að hringja og gera aðvart um töfina. Mánudagur 29. júní Enn fjötraði þokan okkur inni í Narsarsuaq. Erica var harla glöð þegar hún frétti að flugvélin væri komin á loft í Godthaab og við fórum að reikna út tíma sem það tæki hana að koma þaðan, fljúga aftur þangað og enn til baka til okkar og loks með okkur heim. En þessir útreikningar reyndust gagnslausir, því að það reyndist fals eitt að flugvélin væri komin af stað. Ég var svo óvarkár um morguninn að strengja þess heit að skera hvorki hár né skegg fyrr en heim væri komið. Svo fór ég að halda að ég yrði síðskeggjaður þegar þar að kæmi. – Sem betur fer reyndist það þó of mikil svartsýni. Nokkru eftir hádegi fréttum við að flugvélin væri á leiðinni frá Godthaab og svo var tilkynnt um afgreiðslu á farangri og rýmingu á hótelherbergjum. Hins vegar var tilkynnt um frestun flugsins til Nuuk enn um einn dag. Erica var gráti nær og Margrét fór með henni upp í herbergi

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.