Litli Bergþór - May 2019, Page 36
36 Litli-Bergþór
Ég heiti Sigrún Þórisdóttir, fædd 1966 og er frá Geysi í Haukadal, dóttir Þóris Sigurðs-sonar og Þóreyjar Jónasdóttur.
Þórir, pabbi minn, er sonur Sigurðar Greipssonar
og Sigrúnar Bjarnadóttur á Geysi. Pabbi var lengi
leikfimikennari og skólabílstjóri í Reykholtsskóla
og þar áður fimleika- og glímukappi, sem og afi
á Geysi.
Mamma er frá Kjóastöðum og sá meðal annars
um gróðurhúsin. Hún hefur einnig verið mjög
virk í alls konar samfélagsstörfum og nefndum
i sveit inni. Systkini mín eru Jónas Þórisson og
Ágústa Þórisdóttir.
Ég lauk tískuteiknun í IDEP í Barcelona á Spáni.
Vann sem fatahönnuður 1996-1999 og síðan
1999-2005 sem yfirmaður og aðaltískuteiknari
fylgihlutadeildarinnar fyrir MANGO, sem gaf
mér tækifæri til að ferðast um allan heim.
Ég ákvað að eldast ekki í tískubransanum. Hef
alltaf verið hrifin af innanhússarkitektúr. Þá flutti
ég til Brasilíu, þar sem ég byggði og seldi nokkur
hús (4) og stofnsetti 500 m² húsbúnaðar- og
fornmuna búð með fyrrverandi eiginmanni mín-
um. Ég vann líka innanhússkreytingar fyrir inn-
lenda sem og erlenda viðskiptavini.
Eftir 7 ár í Pipa í Brasilíu, flutti ég til Pedasi í
Panama og hef búið þar síðustu 5 ár. Endurbyggði,
byggði og seldi nokkur hús (3) og hef unnið sem
innanhússarkitekt hjá fyrirtæki mínu, Alma hus,
auk þess að stofna búðina Pedasi Love.
Núna árið 2019 er ég að flytja til Málaga á suður
Spáni þar sem ég stefni á að opna búð og jafnvel
vinna sem innanhússarkitekt.
Ég er fráskilin og barnlaus en á yndislega upp-
eldis dóttur í Brasilíu og 2 frábæra hunda.
Hvar sem ég fer um heiminn er ég stolt af því
að vera íslensk, uppruna mínum og að hafa verið
uppalin af fjölskyldunni minni. Kær kveðja heim. Sigrún ásamt Þóreyju Jónasdóttur, móður sinni.
Sigrún í Reykholtsskóla 1980.
Sjaldséðir sveitungar frh.
Kvenfélag Biskupstungna sendir félögum
sínum og Sunnlendingum öllum óskir
um gott og gjöfult sumar.