Litli Bergþór - mai 2019, Síða 38

Litli Bergþór - mai 2019, Síða 38
38 Litli-Bergþór Þó að ég hafi ekki mjög gaman að því að hring sóla kringum sjálfan mig er sjálfsagt mál að gera grein fyrir ævi minni í Litla Bergþóri fyrst eftir því er leitað. Allir eru einhvers staðar frá og það er mátulegt á nýjan mann í sveit- inni að segja deili á sér þótt fólk hafi sjálfsagt meira gaman af að vita hvort ég sé hestamaður eða spili golf. Sem stendur er ég einmitt hestlaus hestamaður og golfari með háa forgjöf ef hún er þá skráð. Það urðu miklar breytingar í lífi mínu, og fjöl- skyldunnar, að vígjast 22. júlí á síðasta ári til biskups í Skálholti, en það er mikill heiður. Fram að því var ég sóknarprestur frá prestsvígslu minni á Hólum í Hjaltadal 9. júlí 1989. Fyrst þjónaði ég Breiðabólsstaðarprestakalli í Vestur Húnavatnssýslu, síðan Vestmannaeyjaprestakalli og loks Eyrarbakkaprestakalli. Með þjónustu prestsins hef ég verið formaður Prestafélags Ís- lands, formaður Prestafélags hins forna Hóla- stiftis og formaður samstarfsnefndar Norr ænu prestafélaganna, ritstjóri Kirkjuritsins, full trúi á Kirkju þingi og í Kirkjuráði, en auk þess var ég í stjórn Skálholts, í fulltrúaráði Hjálpar- starfs kirkjunnar og í ýmsum nefndum og ráðum kirkjunnar. Ég hef verið varaformaður Stofn- unar dr. Sigurbjörns Einarssonar í tæpan ára- tug og vinn þannig að ýmsum ráðstefnum og alþjóðlegum málþingum á sviði trúarbragða og sáttargjörðar. Þá hef ég sótt heimsþing Lútherska heimssambandsins, fundi Norrænna prestafélaga og fundi upplýsingafulltrúa Norðurlanda, og þjónað nokkuð víða, m.a. sem sjúkrahúsprestur í Bandaríkjunum meðan ég var í starfsnámi í klínískri sálgæslu í Tampa General Hospital á Flórída. Ég lauk embættisprófi í guðfræði við Háskóla Íslands 1987, var blaðamaður um tíma eftir það og bifreiðastjóri í Reykjavík, en með náminu var ég lögregluþjónn í Reykjavík, starfsmaður Þjóðgarðsins á Þingvöllum í tíð sr. Heimis Steinssonar, sendibílstjóri, byggingaverkamaður og gæslumaður á Kleppsspítala. Litli Bergþór fór þess á leit við nýjan vígslubiskup, að hann léti blaðinu í té til birtingar, ágrip af ævi- og starfsferli sínum. Hann brást við af ljúfmennsku. Margar góðar fyrirmyndir Sr. Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti Tómstundirnar mínar voru í æsku að vasast í hestum í Kópavogi og starfa í skátunum, en seinna í Hjálparsveit skáta í Kópavogi, Flugbjörgunarsveit V-Hún og Björgunarfélagi Vestmannaeyja. Þá starf aði ég um tíma í Kiwanisklúbbnum Helgafelli í Eyjum og hef verið lengi í Frímúrarareglunni á Íslandi. Hesta hef ég haft af og til en mest var það í Kópavoginum og líka í Sviss en síðast hélt ég hesta á Hvammstanga. Við Svartafoss í Skaftafelli.

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.