Litli Bergþór - May 2019, Page 42

Litli Bergþór - May 2019, Page 42
42 Litli-Bergþór Það hefur verið mikið að gera hjá okkur í Lambadal eftir áramótin. Janúar einkenndist af þorranum og síbreytilegu veðri. Ásamt því vor um við að læra um líkamann. Við sungum, lásum, skoðuðum myndir og spáðum í hvernig líkaminn er og hvað hann getur gert. Þann 1. febrúar tók Erla Jóhanns dóttir við sem deildar stjóri af Siggu Ósk, sem hafði verið að brúa bil ið milli þess sem Eyrún fór í fæð ingar- orlof og þangað til Erla kom til vinnu. Þema febrúar mánaðar var vinir. Við prófuðum alls konar vina leiki, lásum bækur um vináttu, spil- uðum spil þar sem við lærðum að skiptast á, bíða eftir að röðin kæmi að manni og að maður getur ekki alltaf unnið og þótt maður tapi, þá þýðir ekkert að fara í fýlu, heldur er betra að óska þeim sem vann til hamingju. Við unnum sameiginleg listaverk og margt fleira spennandi. Við vorum einnig með dótadag, en þá fá börnin að koma með dót að heiman í leikskólann til að leika með. Dagur leikskólans var haldinn hátíðlegur og Foreldrafélagið í Álfaborg sá um að halda kaffi sem var um leið fjáröflun fyrir félagið. Það var ákaflega ánægjulegt að sjá hversu margir foreldrar komu og tóku þátt í þessum degi með okkur. Starfsmenn Álfaborgar tóku þátt í Lífshlaupinu sem var í gangi allan febrúar. Í mars var þemað hjá okkur Ljós og skuggar. Þá var einnig vísindavika, en hún er búin að breiða aðeins úr sér og má segja að mars sé einnig vísindamánuður. Í byrjun marsmánaðar var bolludagur sem einkenndist að sjálfsögðu af bolluáti hvort sem það voru kjötbollur í hádeginu eða rjómabollur í kaffinu. Sprengidagurinn var svo á sínum stað og öskudagur þar á eftir en þá mættu alls konar kynjaverur í leikskólann. Báðar deildir sameinuðust á Lambadal og höfðu elstu börnin í Bergholti búið til tunnu og skreytt en kötturinn var svo sleginn úr tunnunni og haldið öskudagsball á eftir með pompi og prakt. Foreldrar voru velkomnir á öskudagsballið og það var gaman að sjá þá foreldra sem sáu sér fært að koma og dansa með okkur í smástund. Þann 8. mars skund uðu svo starfs - menn Álfa borgar á Árs hátíð Blá - skógabyggðar, sem var glæsi leg í alla staði og gaman að Í ágúst tók nýr leik skóla - stjóri við í Álfa borg. Hún heitir Liese lot Simoen og var áður leik skólakennari á Sel fossi. Einnig voru br eyt- ing ar á deild unum og tók Erla Jóhanns dóttir við sem deildar stjóri á Lamba dal. Þetta var þriðja árið sem leikskólinn hóf skóla árið í grunnskólanum og í lok október fluttu Krumma- klettar úr grunnskólabyggingunni yfir í Berg- holt. Leikskólinn Álfaborg er því í dag stað settur til bráðabirgða í tveim húsum. Nýtt húsnæði er í smíðum og áætlað er að taka það í notkun í lok október 2019. Þá mun þriðja deildin opna í leikskólanum. Í mars var fyrsti foreldramorgunninn hér í Álfa- borg. Á foreldramorgnum opnar leikskólinn Álfa- borg dyrnar fyrir foreldrum ungra barna. Þá hitt- ast foreldrarnir í leikskólanum með börn sín, fá sér kaffi, hitta aðra foreldra og spjalla saman. Á þessum tíma hitta börnin einnig önnur börn og leika sér saman. Foreldramorgnar í Álfaborg í vor verða 11. apríl, 2. maí, 16. maí, 6. júni og 20. júni frá kl. 9:00 til 10:30. Hægt er að fylgjast með foreldramorgnunum á Facebook „Foreldramorgnar í leikskólanum Álfaborg“. Leikskólinn tók í haust í notkun Karellen leik- skóla kerfi,til að efla upplýsingaflæði og samskipti milli skóla og heimilis. Einnig er komin ný heimasíða: alfaborg.leikskolinn.is Lambadalur hefur verið til húsa í grunnskólanum í Reykholti um nokkurt skeið núna. Nýi leikskólinn er vel á veg kominn og fáum við vonandi að að komast þar inn á haustmánuðunum. Á Lambadal eru 15 börn í 2 hópum. Hóparnir eru Furuhópur og Birkihópur. Í Birkihóp eru 6 börn fædd 2015. Í Furuhóp eru 9 börn fædd 2015, 2016 og 2017. Starfsmenn deildarinnar eru Erla Jóhannsdóttir deildarstjóri, Lovísa Tinna Magnúsdóttir, Sigríður Ósk Beck Víkingsdóttir, Erla Þórdís Traustadóttir og Lucie Jírová. Sigrún Ásta Brynjarsdóttir er svo í afleysingum á Lambadal og Krummaklettum eftir þörfum hverju sinni. Elfa Dís Andersen stendur síðan vaktina í eldhúsinu og aðstoðar eftir þörfum. Álfafréttir Lieselot Simoen. Lambadalsfréttir Ingimar að taka á móti kökunum sem börnin bökuðu í góðgerðarvikunni.

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.