Litli Bergþór - May 2019, Page 43
Litli-Bergþór 43
Krummafréttir
Í Álfaborg er orðin hefð fyrir því, að febrúar er
sérlegur vinamánuður. Þá er mikið talað um
vináttu, hvað það er að vera vinur og mikilvægi
þess að vera góð hvert við annað. Við á Krumma-
klettum ákváðum að gera eina vikuna að góð-
gerða viku og mikil umræða skapaðist meðal
barnanna hvað er að gera góðverk. Þau komu með
margar hugmyndir og ein var sú að gefa öðrum
eitthvað. Þá var ákveðið að baka kökur og gefa
þeim sem búa í næsta nágrenni við leikskólann.
Við bökuðum 200 stk. af smákökum og löbbuðum
í hús. Það vakti mikla lukku bæði hjá börnunum
og okkar góðu nágrönnum. Við enduðum upp á
skrifstofu hreppsins og börnum fannst gaman að
koma þangað. Þau langaði líka að gleðja kokkinn
sinn og þau teiknuðu sameiginlega mynd af honum
og færðu honum. Binni var afskaplega ánægður
með það. Á miðvikudeginum var öskudagur, þá
fórum við upp á Lambadal og slógum köttinn úr
tunnunni og dönsuðum með yngri börnum. Eftir
matinn var
farið í hús og
sungið fyrir þá
sem voru heima
í Kistuholtinu
og ekki spillti
gleðinni að fá
smá góðgæti
fyrir. Við
nýttum líka
þessa viku
til að styrkja
vináttu böndin
á milli barn-
anna og létum
tvö og tvö börn
vinna saman.
Þau lærðu líka
að hjálpa hvert
öðru t.d. þegar
þau voru að klæða sig í útifötin. Þau voru látin
vinna bæði í stórum og litlum hópum og margt
fleira.
Nú fer að styttast í páska og erum við farin að
undirbúa páskaföndur og ætlum meðal annars
að búa til stóra hænu sem við ætlum að láta vera
úti og prýða Kistuholtið. Börnin er líka farin að
bíða eftir vorinu og hlakka til að geta hlaupið út
á peysunni.
Bestu kveðjur frá Krummaklettum!
Þetta er páskaunginn sem börnin á
Krummakletti bjuggu til.
hittast svona fyrir
utan vinnu tíma í
sínu fínasta pússi
og sýna sig og sjá
aðra.
Við héldum
seinni foreldra-
kvöld fundinn rétt
eftir miðjan mars.
Þar kynntum við
fyrir for eldr um
hvað við erum
búnar að vera
að gera síð an á
síð asta fundi,
hvað við erum að gera og hvað við ætlum að
gera fram að sumarfríi. Við ætl um að bæta við
málörvunarstundirnar okkar. Lov ísa er búin að
kynna sér málörvunarverkefnið Lubba í þaula
og við verðum með skipulagðar Lubbastundir
á hverjum miðvikudegi fyrir báða hópa. Fyrir
þá sem þekkja ekki Lubba, er hann hundur sem
langar mikið til að læra að lesa og er með málbein
fyrir hvert hljóð sem þarf að finna. Þá eru sögur
lesnar og sungnar vísur með hverju málhjóði
ásamt æfingum í bókinni.
Í apríl verður aðalþemað páskarnir og má búast
við miklu magni af fjöðrum og eggjum með
tilheyrandi tilhlökkun fram að mánaðamótum
apríl-maí. Þá ætlum við líka að fara að vera meira
á ferðinni í gönguferðum og vettvangsferðum
ef veður leyfir. Við búum okkur til sérstakan
vettvangsferðabakpoka, þar sem við setjum
grasa- og blómabók, fuglabók, stækkunargler,
blöð og blýanta, aukaföt og ýmislegt fleira, sem
er nauðsynlegt í vettvangsferðum. Við ætlum
líka að velja okkur tré til að fylgjast með og sjá
hvernig það breytist að vori og fram á sumar og
hvernig það lítur svo út þegar við komum til baka
úr sumarfríi og sjá breytingarnar frá hausti og
yfir veturinn. Í maí verðum við að fylgjast með
dýrunum og vorinu og hvernig náttúran breytist í
maí. Vorgleðin verður um miðjan maí og er þá oft
mikið stuð á bænum.
Í júní verðum við síðan mikið úti að leika og
njótum sumarsins eins og hægt er, hvort sem það
er sól eða rigning fram að sumarfríi.
Síðast en ekki síst höfum við verið dugleg að
gá til veðurs og erum með sérstakt veðurkort þar
sem við lærum heiti á veðurbrigðum og eins erum
við með dagatal sem við lítum einnig á á hverjum
degi og lærum um viku- og mánaðardagana ásamt
því hvaða mánuður er.
Bestu kveðjur frá öllum í Lambadal!
Jón og Hildur Inga að taka á móti kökum.