Litli Bergþór - May 2019, Page 44

Litli Bergþór - May 2019, Page 44
44 Litli-Bergþór Það voru uppi tilraunir til að breyta aðeins til og halda þorra blótið í íþróttahúsinu, en þær breyttu engu. Svo sem verið hefur var þorrablótið haldið í Aratungu, á bóndadegi, sem bar upp á 25. janúar þessu sinni. Fyrir komulag blótsins var, sem fyrr þannig, að gestir komu með sinn þorramat eða allavega mat, í trogum eða öðrum ílátum, sem gátu verið plastpokar, taupokar eða bara einhverskonar ílát. Það er vissulega ákveðinn stíll yfir því að koma til blóts með trogið sitt, íklætt borðdúk, leysa hnútana síðan þegar sest er, þannig að snyrtilega frágengnar kræsingarnar blasa við og ilmurinn fyllir vitin. Diskarnir, hnífapörin og drykkjarföngin er tekin úr troginu og deilt út á þau sem eru í því (troginu) saman. Svo þegar blótið hefur verið sett og gestum boðið að gjöra svo vel að hefja borðhaldið, eða átið, fer fólkið að tína dásemdirnar upp úr troginu og skófla þeim í sig, ef ekki með hnífapörum þá með sjálfskeiðungum eða guðsgöfflunum. Svo er boðið að smakka: „Má ekki bjóða þér bita af þessum súra hval, sem mér áskotnaðist. Það er nefnilega frændi minn sem verkar svona. Mér finnst þessi óvenju gómsætur.“ Þá er þakkað fyrir og smakkað og lofað í bak og fyrir. Kannski boðin einhver dásemd til baka: „Ég hef sjaldan Þorrablótið 2019 fengið svona góða hrútspunga. Þú verður endi- lega að prófa.“ Það er þakkað og pungunum hrós að. Svona gengur þetta fyrir sig, milli þess sem bjórinn er teygaður, nú eða eitthvað annað sem auðveldar inntöku matvælanna og kætir: „Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur?“ Það er glatt á hjalla. Röðin var komin að Skálholtssókn að láta hend- ur standa fram úr ermum við undirbúning og fram- kvæmd þessu sinni. Það gerist á fjögurra ára fresti, að afloknum kosningum til sveitarstjórnar. Það er stundum haft á orði, að á fjögurra ára fresti komi íbúar Skálholtssóknar kjagandi út úr skóginum, með trogin undir hendinni. Allt kann það að vera satt og rétt, en ekki verður tekin afstaða til þeirrar þjóðsögu hér. Dansatriði æft. Víglundur í Höfða, Guðmundur á Iðu og Jakob Narfi. (mynd pms) Tæknifundur: Magnús Hveratúni, Böðvar Þór Ljósalandi, Áslaug Alda Spóastöðum og Anna Gréta. (mynd pms) Æft í Skálholtsbúðum: Benedikt Kirkjuholti, Sólrún Lilja, Hómfríður frá Iðu, Böðvar Þór Ljósalandi, Gestur Skálholti, Guðrún Ólafs., Ragnheiður Ljósalandi og Hildur María Spóastöðum. (mynd pms)

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.