Litli Bergþór - maj 2019, Side 51

Litli Bergþór - maj 2019, Side 51
Litli-Bergþór 51 Í tilefni af 20 ára afmæli RKÍ 1944 var síðan samþykkt í stjórn að sækja um land í Laugarási undir sumardvalarheimili og samningur um 2 ha. land var undirritaður við Grímsneslæknishérað í nóvember 1944. Þetta land er í kvos vestan Kirkjuholts, norður af þeim stað sem húsdýragarðurinn í Slakka stendur nú. Afleggjarinn að þessu landi var upp frá Skálholtsvegi þar sem nú liggur leið í Kirkjuholt, í beinu framhaldi af Ferjuvegi. Þegar þarna var komið hafði ríkisstjórnin afhent félaginu 10 herskála, sem hver var 100 m², sem höfðu staðið við Hafravatn, í „Camp Jeffersonville“. Skálarnir voru fluttir í Laugarás 1945 og ætlunin að hefja rekstur í þeim vorið 1947. Af því varð þó ekki og fyrir því voru aðallega tvær ástæður: skortur á fjármagni og meiri vinna við standsetningu en gert var ráð fyrir. 1950 var stofnuð sérstök deild, Reykjavíkurdeild RKÍ, sem fékk m.a. það hlutverk að halda utan um sumardvalir Reykjavíkurbarna. Starfsemin hefst Fyrsta sumarið dvöldu í Krossinum 112 börn á aldrinum 3-8 ára, í átta vikur. Starfsfólkið, sem hélt hélt utan um hópinn, taldi 26 manns. Húsakynnin í Krossinum voru eins og sjá má á meðfylgjandi teikningu: 4 svefnskálar, og 5 skálar þar sem voru borðsalur, setustofa, híbýli starfsfólks, eldhús, þvottaaðstaða og böð. Þessir skálar voru tengdir saman með tengibyggingum. Loks stóð tíundi skálinn stakur og þar var upphaflega lítil íbúð í öðrum endanum, en að öðru leyti voru þar geymd leikföng og ferðatöskur barnanna. Það var heilmikið gert með þetta nýja barnaheimili í blöðum, sagt frá því þegar börnin héldu austur með rútu og erfiða kveðjustund, og síðan aftur þegar þau komu til baka í bæinn, þegar fögnuður og feimni einkenndu stundina. Þá voru skrifaðar frásagnir af heimsóknum blaðamanna á staðinn. Umfjöllun um Krossinn var nánast eingöngu jákvæð. Það þótti frekar mikilvægt að Reykjavíkurbörn fengju að kynnast lífinu í sveitinni. Svo liðu árin Fyrri hluta þess tíma sem Krossinn starfaði var aðsókn mikil og biðlistar á hverju vori eftir plássi fyrir börn í sumardvöl. Svo fór að bera á gagnrýni á starfsemi af þessu tagi og sálfræðingar og uppeldisfræðingar veltu upp skoðunum um að sálarlífi svo ungra barna sem þarna var um að ræða, gæti stafað hætta af svo löngum fjarvistum frá fjölskyldum sínum. Gagnrýnin hafði áhrif og þá aðallega þannig að smám saman urðu börnin sem tekin voru inn, eldri, þannig að síðustu árin voru yngstu börnin sex ára í stað þriggja þegar heimilið tók til starfa. Þá var einnig hægt að velja styttri dvalartíma og fóstrum var fjölgað. Gagnrýnin hafði hinsvegar ekki umtalsverð áhrif á aðsóknina og það voru aðrir þættir frekar sem ollu því að síðustu árin var æ meir rætt um framtíð heimilisins. Þar var um að ræða fjármagnsskort og húsnæði, sem stöðugt varð hrörlegra. Skálarnir höfðu, þegar þeir voru byggðir og settir upp við Hafravatn, aldrei verið hugsaðir til langframa. Þrátt fyrir ýmsar fyrirætlanir um endurbætur á þeim, varð að lokum ljóst að það myndi aldrei ganga og trú á það fór einnig minnkandi. Það sem síðan á endanum varð til þess að starfseminni var hætt, var úttekt eldvarnaeftirlits ríkisins, sem gerði kröfur um umfangsmeiri endurbætur á húsnæðinu en mögulegt eða skynsamlegt þótti að ráðast í. Frá því sláturhúsið í Laugarási tók til starfa haustið 1964 var nýtilegur hluti húsnæðisins nýttur sem mötuneyti og gistiaðstaða fyrir starfsfólk þar til um 1980. Sögu Krossins í Laugarási lauk endanlega með því að skálarnir voru rifnir og fjarlægðir árið 1987. Þess sér nú varla merki að þarna hafi verið þessi umfangsmikla starfsemi. Húsaskipan. (teikn. pms). Drengjahópur í Krossinum 1959, með fóstrum. (mynd Matthías Frímannsson).

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.