Sveitarstjórnarmál - okt. 2019, Blaðsíða 6
6
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Á réttu róli – Skólaþing sveitarfélaga
Skólaþing sveitarfélaga er haldið annað
hvert ár og að þessu sinni verður
fókus þingsins settur á framtíðarskipan
skólakerfisins og því velt upp hvort
núverandi skipan og framkvæmd
þess sé að skila nemendum besta
undirbúningi fyrir áskoranir framtíðar,
svara þörfum samfélagsins, markmiðum
aðalnámskráa, framtíðarvinnumarkaði
og almennt þeim markmiðum sem stefnt
er að með skólahaldi og menntun. Er sú
aldursskipting og aðgreining skólastiga
sem innleidd var fyrir næstum hálfri öld
(lög um skólakerfi nr. 55/1974) að þjóna
nemendum best og menntun þeirra
til framtíðar? Hverjar eru röksemdir
þess að leikskólastigið nær til 5/6 ára
aldurs, grunnskólastigið varir í 10 ár og
bóknámsbrautir framhaldsskólans aðeins
í 3? Er hugsanlegt að rekstraraðilinn
Svandís Ingimundardóttir
skólamálafulltrúi Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
hafi hagsmuna að gæta þegar kemur
að lengd og skipan skólastiga sem gæti
komið niður á inntaki náms? Hvað gæti
mælt með eða á móti því að skólastigin
væru skipulögð með öðrum hætti,
m.a. hvað lengd þeirra, inntak náms,
kennsluhætti, samsetningu nemenda- og
kennarahóps, rekstraraðila og annað
varðar?
Stjórnvöld hafa tekið ákvörðun um að
öll börn fái aðgang að leikskólum við
12 mánaða aldur. Leikskólinn mun
þá taka beint við eftir fæðingarorlof
og dagforeldrar, sem starfsfólk sem
komið hefur að uppeldi og menntun
yngstu barnanna, hverfa af vettvangi.
Skólaskylda grunnskólans hefur lengst
jafnt og þétt, og hvert skólaári jafnframt
verið lengt svo það skólastig hefur því