Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - okt. 2019, Blaðsíða 52

Sveitarstjórnarmál - okt. 2019, Blaðsíða 52
52 SVEITARSTJÓRNARMÁL þessi stóru verkefni sem blöstu við. Ég ánetjaðist þessu starfi hreinlega og sótti um þótt ljóst væri að þetta væri hálfgert brjálæði vinnulega séð. Það skipti mig miklu máli að hjá borginni var mjög öflugt og samhent stjórnendateymi sem var tilbúið til að takast á við flóknar aðstæður með jafnt hefðbundnum sem óhefðbundum aðferðum. Það var mikil samstaða í yfirstjórn borgarinnar. Trúlega er algert einsdæmi hvernig stjórnendur og starfsmenn borgarinnar brugðust við á þessum tíma,“ rifjar Birgir Björn upp. Þegar hann tók við starfinu snemma árs 2008 var stutt í hrunið en á þeim tíma segir hann menn þó ekki hafa gert sér fyllilega grein fyrir í hvað stefndi. Borgarsjóður vel settur fyrir hrun „Við hófum strax í ársbyrjun 2008 að vinna greiningar á fjárhagslegu umhverfi borgarinnar. Það kom fram í opinberum gögnum að bankakerfið átti í erfiðleikum með að endurfjármagna sig og mikil ofhitnun var í hagkerfinu. Aðvörunarmerkin voru fyrir hendi en á þessum tíma sáum við ekki merki um hrun heldur breytingar sem gætu leitt til mikillar verðbólgu og lækkunar á gengi krónunnar. Um sumarið 2008 greip borgin til ýmissa ráðstafana, dregið var úr útgjöldum og menn bjuggu sig undir erfitt haust. Við sáum óneitanlega ýmsar válegar breytingar framundan. og sveitarstjóra, sem lifa margir hverjir við faglega einsemd þegar kemur að fjármálum sveitarfélaga. Það eru gerðar sívaxandi kröfur til að standa faglega að hlutunum og tileinka sér breytingar og nýjar leiðir. Mörg sveitarfélög tóku skarpa dýfu í hruninu og eru enn að glíma við afleiðingar þess. Fjármálaráðstefnan er mjög góður vettvangur til þess að miðla upplýsingum um leiðir til þess. Þarna eru flutt erindi sem eru nokkurs konar jafningjafræðsla en líka flóknari erindi um nýjungar sem vísa veginn fram á við. Einhverjum finnst flækjustigið í sumum erindum kannski stundum fullhátt en þau eru að mínu mati nauðsynleg svo við getum tileinkað okkur nýjar aðferðir. Ég hélt erindi um sviðsmynda- og áhættugreiningar árið 2012 og svo aftur í fyrra og mér fannst skilningur fólks og áhugi á efninu hafa aukist til muna í fyrra,“ segir Birgir Björn. Eftirsótt skuldabréf Hann segir gríðarlega mikilvægt að sveitarfélög tileinki sér nýja hluti í áætlanagerð með sviðsmynda- og áhættugreiningum en jafnframt í fjárstýringu, lána- og lausafjárstýringu og sjóðsstýringu. „Við hjá Reykjavíkurborg og fleiri sveitarfélögum erum stöðugt að læra nýja hluti, til dæmis við útgáfu skuldabréfa. Slík útgáfa var blómleg fyrir hrun, en borgin hefur verið nánast ein sveitarfélaga í henni á síðustu árum. Fleiri sveitarfélög í stærri kantinum eru þó að koma þar aftur inn. Reykjavíkurborg var fyrst til að hefja útgáfu grænna skuldabréfa á íslenskum markaði sem var gott brautryðjendastarf. Þar mætast metnaðarfull umhverfisstefna borgarinnar og samfélagslega ábyrgir skuldabréfakaupendur. Borgin er nú með traustustu útgefendum skuldabréfa í landinu. Ávöxtunarkrafa bréfanna fer hratt lækkandi, eftirspurn er mikil og þessi bréf eru augljóslega góður kostur til lengri tíma. Útlendingar sýna skuldabréfaútgáfunni vaxandi áhuga, enda ekki alls staðar hægt að bjóða upp á verðtryggð bréf með einhverjum vöxtum,“ segir Birgir Björn. Ánetjaðist starfinu Birgir Björn var mannauðsstjóri Reykjavíkurborgar til margra ára en 2007 var hann færður án auglýsingar í starf fjármálastjóra til eins árs. Það reyndist afdrifaríkt. Þegar starf fjármálastjóra var svo auglýst ári síðar ákvað hann að sækja um og var ráðinn 2008. „Ég hafði aldrei hugsað mér að verða fjármálastjóri en í aðdraganda hrunsins sá ég í þessu gríðarlega spennandi verkefni og ábyrgðarmikið starf. Mér fannst felast í því samfélagsleg ábyrgð að sækja um starfið og takast á við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.