Fréttablaðið - 02.04.2016, Blaðsíða 62
| AtvinnA | 2. apríl 2016 LAUGARDAGUR20
FJARÐABYGGÐ
fjardabyggd.is
Spennandi starf
hjá Fjarðabyggð
Framkvæmda- og
þjónustumiðstöð
Fjarðabyggðar
Laust er til umsóknar fullt starf
vélstjóra hjá Fjarðabyggðarhöfnum.
Starf vélstjóra Fjarðabyggðarhafna er ölþætt og
kallar á mikil samskipti við fólk og fyrirtæki.
Nánari lýsing á starnu og hæfniskröfum er á vef
Fjarðabyggðar, ardabyggd.is, undir Laus störf.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launa-
nefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Skriegar umsóknir ásamt ferilskrá og afriti af
réttindaskírteinum skulu berast skrifstofu Fjarðabyg-
gðar eigi síðar en miðvikudaginn 20. apríl 2016 merkt
„Vélstjóri“. Einnig má sækja um starð á vef Fjarðabyg-
gðar undir Laus störf og skulu þá sömu gögn fylgja
umsókninni.
Upplýsingar um starð veitir Steinþór Pétursson,
framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna í síma
470 9000 eða á steinthor.petursson@ardabyggd.is.
Starð hær jafnt konum sem körlum og eru konur
hvattar til að sækja um.
Veruleg uppbygging á sér stað í Fjarðabyggð, bæði í atvinnulí og
þjónustu. Íbúar sveitarfélagsins eru um 4.800 talsins í sex
byggðarkjörnum, sem eru Mjóiörður, Neskaupstaður í Norðrði,
Eskiörður, Reyðarörður, Fáskrúðsörður og Stöðvarörður.
F
Mj
Landbúnaðarháskóli Íslands er leiðandi afl í rannsóknum, kennslu og nýsköpun á sviði
náttúruvísinda, auðlinda- og umhverfisfræða og landnýtingar. Rannsóknir eru drifkraftur
starfsins. Nemendur fá vandaða og gagnlega menntun, sem byggir á gagnrýnni hugsun,
sjálfstæðum vinnubrögðum og færni. Skólinn býður fram kjöraðstæður til náms og starfa.
Vísindamenn skólans vinna náið með öðrum háskólum og rannsóknastofnunum að kennslu
og rannsóknum. Þjóðfélagið leitar til skólans í ríkum mæli við lausn á aðkallandi viðfangsefnum á
fagsviðum hans. Höfuðstöðvar skólans eru á Hvanneyri í Borgarfirði.
Forseti auðlinda- og umhverfisdeildar
við Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ)
Laus er til umsóknar staða forseta auðlinda- og umhverfisdeildar við LbhÍ sem felur meðal annars í sér
yfirumsjón með starfsemi og rekstri deildarinnar og stefnumörkun í samræmi við stefnu LbhÍ.
Um er að ræða nýja stöðu sem stofnað er til vegna sameiningar tveggja deilda háskólans, auðlindadeildar og umhverfisdeildar
í eina deild. Starfið felur því m.a. í sér breytingastjórnun og endurskipulagningu á faglegu starfi.
Ráðið er til fjögurra ára í starfið með möguleika á framlengingu í önnur fjögur ár. Um fullt starf er að ræða.
Miðað er við að nýr deildarforseti geti hafið störf 1. ágúst 2016.
Helstu ábyrgðarþættir:
• Frumkvæði og forysta um málefni deildarinnar.
• Yfirumsjón með rannsóknavirkni og kennslu.
• Gæðastjórnun í samráði við sviðsstjóra kennslu- og gæðamála.
• Stjórnsýsluleg og rekstrarleg ábyrgð.
• Starfsmannamál.
• Yfirumsjón með innlendum og erlendum samskiptum.
• Seta í framkvæmdastjórn skólans.
Staða deildarforseta heyrir beint undir rektor. Til greina kemur að deildarforseti komi að kennslu og rannsóknum innan þeirra
fræðasviða sem heyra undir deildina.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjendur skulu uppfylla almenn hæfisskilyrði sem háskólakennarar á vettvangi þeirra fræða sem kennd eru við deildina
eða tengjast helstu viðfangsefnum þeirra.
• Doktorspróf er skilyrði
• Samskiptahæfni, jákvæðni, drifkraftur og geta til að takast á við breytingar
• Leiðtogahæfileikar og geta til að hvetja aðra til árangurs.
• Hæfileiki til að móta og miðla framtíðarsýn.
• Hæfileiki til að byggja upp og leiða teymi akademískra starfsmanna.
• Reynsla af rekstri og stjórnun æskileg.
• Reynsla af starfi innan háskóla æskileg.
Um ráðninguna fer að öðru leyti eftir reglum fyrir Landbúnaðarháskóla Íslands nr. 250/2016 og reglna um nýráðningar og
framgang akademískra starfsmanna við Landbúnaðarháskóla Íslands frá 20. september 2012.
Launakjör eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2016.
Umsóknir sendist til Landbúnaðarháskóla Íslands b/t Kristín Siemsen Ásgarði – 311 Hvanneyri eða í tölvupósti kristins@lbhi.is.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf
sem þeir hafa unnið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Auglýsing getur gilt í allt að sex mánuði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Björn Þorsteinsson rektor LbhÍ í síma 433 5000 eða tölvupósti bjorn@lbhi.is.
Sjá: einnig heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands, http://www.lbhi.is
www.hagvangur.is
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi