Fréttablaðið - 02.04.2016, Blaðsíða 115
Það var rosalega
gaman að taka Þátt
í ísland got talent, ég
lærði alveg ótrúlega mikið
enda mikil reynsla að koma
fram á svona stóru sviði.
Agla Bríet Einarsdóttir mun frumflytja nýtt lag í úrslitaþættinum á morgun. FréttABlAðið/Anton Brink
Agla Bríet ásamt dönsurum. FréttABlAðið/Anton Brink
Árið hefur verið viðburðaríkt hjá
Öglu, en hún hefur bæði verið að
leika í Borgarleikhúsinu og auglýs-
ingum ásamt því að koma fram við
ýmis tækifæri.
„Það var rosalega gaman að taka
þátt í Ísland Got Talent, ég lærði alveg
ótrúlega mikið enda mikil reynsla að
koma fram á svona stóru sviði. Árið
er búið að vera alveg einstaklega
skemmtilegt og viðburðaríkt. Ég hef
verið að leika mikið bæði í Borgar-
leikhúsinu og í auglýsingum og svo
tók ég þátt í söngvakeppni Samfés þar
sem ég lenti í þriðja sæti. Ég mundi
klárlega segja að Ísland Got Talent
hafi haft rosalega góð áhrif á mig sem
söngkonu og hjálpað mér mikið að
koma mér áfram í því sem mér finnst
skemmtilegast að gera,“ segir Agla
Bríet.
Á morgun fer fram úrslitakvöld
Ísland Got Talent, og spennan er í
hámarki, sex keppendur koma fram
og aðeins einn keppandi kemur til
með að vinna sér inn tíu miljónir
króna. Skemmtiatriðin verða ekki af
verri endanum en Agla Bríet kemur
fram með frumsamið lag. Sylvía Schev-
ing söngkona flytur einnig nýtt lag og
Hildur Kristín kemur til með að syngja
nýjasta smellinn sinn, I’ll Walk with
You, sem hefur fengið frábær viðbrögð.
„Ég ætla að syngja lag eftir Mána
Svavarsson, en textann gerðum við
í sameiningu. Ég er alveg ótrúlega
spennt fyrir að koma fram aftur og
leyfa fólki að heyra lagið,“ segir Agla
Bríet.
Framtíðin er björt hjá þessari
ungu og efnilegu söngkonu og segist
hún staðráðin í að halda áfram að
koma sér á framfæri enda finnst
henni ekkert skemmtilegra en að
syngja og koma fram.
„Fljótlega eftir Ísland Got Talent
var ég mikið bókuð og hef komið
fram við ýmis tækifæri, eins og
til dæmis í afmælum, á 17. júní
skemmtunum og fleira. Ég er alveg
ákveðin í því að fara lengra með
sönginn, fólk þekkir mig enn úti á
götu. Ég er í hljómsveit og æfi dans
í Dansskóla Birnu Björns, fram
undan er nemendasýning í Borgar-
leikhúsinu þar sem ég verð líka
með tón listar atriði og svo er ég líka
í hljómsveit og við spilum við ýmis
tækifæri,“ segir Agla Bríet ánægð.
gudrunjona@frettabladid.is
Hver vinnur í Ísland got Talent?
Jóhanna ruth Sindri Freyr
Eva MargrétSímon og Hallakyrrð
Baldur Dýrfjörð
Nú er Heimilispakkinn enn
stærri og skemmtilegri
13.000 kr. MÁn.
SPOTIFY PREMIUM
Skemmtilegi pakkinn er nú orðinn stórskemmtilegur
Heimilispakkinn hefur slegið í gegn enda stútfullur af gleði – og nú er hann orðinn enn stærri en áður.
Hafðu samband, komdu í pakkann og byrjaðu að horfa eins og þér hentar!
Þú getur meira með Símanum Hringdu núna í 800 7000 eða opnaðu Netspjall á siminn.is til að klára málið!
Nánar á siminn.is
*L
ín
ug
ja
ld
e
kk
i i
nn
ifa
lið
. V
er
ð
fr
á
2.
39
0
kr
.
*
L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð 67L A U G A R D A G U R 2 . A p R í L 2 0 1 6