Fréttablaðið - 02.04.2016, Blaðsíða 63
| AtvinnA | LAUGARDAGUR 2. apríl 2016 21
RARIK ohf • Dvergshöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 528 9000 • www.rarik.is
RARIK ohf. auglýsir laust til umsóknar starf tæknimanns við hönnun, áætlanagerð ofl. á rekstrarsviði
fyrirtækisins með aðsetur á Akureyri. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Hér er um
fjölbreytt starf að ræða við dreifikerfi fyrirtækisins.
Rekstrarsvið ber ábyrgð á rekstri og viðhaldi á dreifikerfi RARIK. Meginverkefni sviðsins eru hönnun,
nýframkvæmdir, breytingar, viðhald og rekstur dreifikerfa.
Starfssvið
● Áætlanagerð.
● Hönnun dreifikerfa
● Verkundirbúningur
● Verkbeiðnaútgáfa
● Samskipti við
viðskiptavini
Hæfniskröfur
● Rafmagnstæknifræði, Rafmagnsiðnfræði.
● Þekking og reynsla af háspennukerfum er kostur.
● Góð almenn tölvukunnátta
● Þekking á Microstation og/eða AutoCad æskileg.
● Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
● Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt
Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um, nánari upplýsingar veita deildarstjóri rekstrarsviðs á
Norðurlandi eða starfsmannastjóri RARIK í síma 528 9000. Umsóknarfrestur er til 18. apríl n.k. og skal skila
umsóknum með ferilskrá á netfangið atvinnuumsokn@rarik.is.
RARIK ohf. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu ríkisins. Hlutverk RARIK er að dreifa raforku auk þess að afla, dreifa og annast sölu á heitu
vatni. Starfsmenn RARIK eru um 200, aðalskrifstofa er í Reykjavík og um 20 starfsstöðvar eru dreifðar vítt og breitt um landið.
Hönnun og áætlanagerð Akureyri
Háspennukerfi RARIK
Aflstöðvar
Aðveitustöðvar
Okkur vantar vanan bifvélavirkja í hóp öflugra
starfsmanna sem vinnur að fjölbreyttum verkefnum
sem tengjast jeppum og ferðalögum. Verkstæði
Arctic Trucks er viðurkennt þjónustuverkstæði
fyrir Toyota, auk þess sem að við bjóðum
dekkjaþjónustu og ástandsskoðanir.
Helstu verkefni:
• Almennar viðgerðir
• Smurþjónusta
• Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur:
• Menntun í bifvélavirkjun skilyrði
• Reynsla í greininni er kostur
• Vandvirkni og samviskusemi
BIFVÉLAVIRKI
Umsóknarfrestur er til 10. apríl
Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á umsokn@
arctictrucks.is. Nánari upplýsingar veitir Hallveig
Andrésdóttir í síma 540 4911.
Arctic Trucks | Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík
sími 540 4900 | www.arctictrucks.is
Hjúkrunarfræðingar
Öldrunarheimili Akureyrar óska eftir að ráða hjúkrunar -
fræðinga í 50 – 90% starfshlutfall á á Eini- og Grenihlíð.
Vinnufyrirkomulag eftir samkomulagi. Æskilegt að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Á Öldrunarheimilum Akureyrar fer fram fjölbreytt og áhugaverð
starfsemi sem er í stöðugri þróun. Unnið er eftir Eden
hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, góðan heimilis-
brag og lífsgæði íbúana.
Helstu verkefni:
• Sinnir almennum hjúkrunarstörfum, skipuleggur og ber ábyrgð á að hjúkrun sé veitt í samræmi við Eden
hugmyndafræðina, markmið og gæðastefnu ÖA.
• Hvetur alla starfsmenn til að vinna markvisst að eins
taklingshæfðri þjónustu, svo hver og einn fái eftir þörfum
aðhlynningu, leiðbeiningar og örvun til sjálfshjálpar.
• Hefur frumkvæði að hagræðingu, faglegri þróun og
skipulagningu á þjónustu við íbúa. • Tekur þátt í þróunarverkefnum.
• Sér um eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar.
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á heimasíðu
Akureyrarbæjar, www.akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2016.
Skólastjóri Naustaskóla
Staða skólastjóra við Naustaskóla á Akureyri
er laus til umsóknar.
Leitað er að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi með
mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og
leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í góðu samstarfi
við aðra starfsmenn skólans. Ráðið verður í stöðuna frá og með
1. ágúst 2016.
Naustaskóli er staðsettur við Hólmatún, í Naustahverfinu á
Akureyri. Skólinn hóf starfsemi þann 24. ágúst 2009 og hefur
verið í stöðugri þróun. Fjöldi nemenda er nú um 370 í 1.-10. bekk
og starfsmenn eru um 60 talsins. Meðal sérkenna skólastarf-
sins má nefna aldursblöndun og teymiskennslu en skólinn er
opinn skóli og starfar í anda Jákvæðs aga.
Allar nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu
hans: www.naustaskoli.is
Naustaskóli starfar í nánu samstarfi við leikskólann Naustatjörn
sem staðsettur er á sömu skólalóð. Mikilvægt er að það farsæla
samstarf haldi áfram að þróast.
Starfssvið:
Skólastjóri ber faglega- og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans,
stjórnar honum og hefur forgöngu um mótun og framgang
faglegrar stefnu.
Menntunarkröfur:
• Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
• Viðbótarmenntun í skólaþróun, stjórnun, eða reynsla af kennslu og stjórnun á grunnskólastigi.
• Menntun á sviði reksturs er kostur.
Hæfnikröfur:
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar skólastarfi
• Reynsla og þekking á teymiskennslu og kennslu á opnum svæðum er kostur.
• Reynsla og hæfni í starfsmannastjórnun.
• Frumkvæði og samstarfsvilji.
• Góðir skipulagshæfileikar, sveigjanleiki og víðsýni
• Lipurð og færni í samskiptum
• Reynsla af störfum á sviði stjórnunar og reksturs er æskileg.
• Reynsla eða þekking á sviði markþjálfunar er kostur
• Gerð er krafa um vammleysi. s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans
samrýmist starfinu.
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu
Akureyrarbæjar, www.akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt
Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2016.
Verslunarstjóri hjá
Jóa Fel í Smáralind
Óskum eftir að ráða verslunarstjóra
í bakarí Jóa Fel í Smáralind
Viðkomandi þarf að sjá um vaktaskipun, starfsmanna-
ráðningar, innkaup og allan daglegan rekstur á bakaríinu.
Æskilegt að viðkomandi sé ekki yngri en 25 ára
og hafi starfsreynslu úr bakaríi eða veitingastað.
Viðkomandi þarf að hefja störf sem fyrst.
Vinsamlegast skilið inn umsóknum á joifel@joifel.is
eða hafið samband við Lindu í síma 863 7579.
Holtagarðar - Smáralind - Kringlan - Garðabær - Hringbraut